Fréttablaðið - 24.10.2020, Blaðsíða 29
Ég er einstaklega hrifin af Better You-vörulínunni en fyrirtækið leggur mikið
upp úr gæðum. Better You-línan
býður upp á fjölbreytt úrval af
vítamínum og steinefnum og öll
eru þau í munnúðaformi, sem
er þægileg og einföld leið til að
taka inn bætiefni. Ekki skemmir
fyrir að munnúðarnir eru sérlega
bragðgóðir og hentugir í notkun.
Með því að úða þeim út í kinn eða
undir tungu frásogast bætiefnin
í gegnum slímhúð í munni,“ segir
Kristín Steindórsdóttir næringar-
þerapisti.
D-vítamín alla ævi
„Það hefur orðið mikil vitundar-
vakning um mikilvægi D-víta-
míns. Framan af var talið að eina
hlutverk D-vítamíns væri fyrir
beinheilsu og til að koma í veg fyrir
beinkröm hjá börnum og bein-
þynningu hjá fullorðnum. Rann-
sóknir gefa til kynna að D-vítamín
gegni mun víðtækara hlutverki
en áður var talið og það sé í raun
grundvallarefni fyrir manns-
líkamann til að viðhalda heilsu og
lífsþrótti,“ segir Kristín.
„D-vítamín er ekki eins og önnur
vítamín, því við getum framleitt
okkar eigið D-vítamín þegar UVB-
geislar sólarinnar skína á húðina.
Þrátt fyrir það hefur komið í ljós að
allt of margir eru með skort, eða við
skortsmörk. Ástæðan er sú að við
verjum sífellt meiri tíma innandyra
og þegar við erum úti klæðumst við
gjarnan fatnaði, eða berum á okkur
sólarvörn til að verjast skaðlegum
geislum sólarinnar og útilokum
um leið D-vítamínframleiðsluna
í húðinni. Á Íslandi fáum við yfir-
höfuð of litla sól yfir vetrarmánuð-
ina og þar sem það er einnig erfitt
að fá nóg af D-vítamíni úr fæðunni,
hefur Landlæknisembættið ráðlagt
fólki að taka inn D-vítamín í formi
bætiefna daglega.“
Kristín segir aldrei of seint að
sporna gegn D-vítamínskorti og
besta leiðin til þess sé að taka það
inn í bætiefnaformi alla ævi. DLUX
4000 er nýjasta og sterkasta D-
vítamínið í Better You-línunni og
eru 4000 AE í hverjum úða.
C-vítamín fyrir
öflugt ónæmiskerfi
„Flestir þekkja hlutverk C-víta-
míns fyrir ónæmiskerfið og taka
það inn sem bætiefni, til að efla
viðnám líkamans gegn flensum
og sýkingum, en C-vítamín er
einnig mikilvægt fyrir myndun
kollagens sem er eitt af byggingar-
efnum líkamans, fyrir betri upp-
töku og nýtingu á járni úr fæðunni
og það spilar stórt hlutverk sem
verndandi andoxunarefni. C-víta-
mín munnúðinn frá Better You
inniheldur einnig grænt te, B2
sem er gríðarlega mikilvægt víta-
mín fyrir orkubúskap frumna, og
selen sem er eitt hinna svokölluðu
andoxunarnæringarefna líkam-
ans. C-vítamínblandan frá Better
You er frábrugðin flestum C-víta-
mínum á markaðnum, það er í
munnúðaformi sem gerir það afar
hentugt í notkun,“ segir Kristín.
Járnskortur algengasti nær-
ingarskortur í heiminum
Járn er nauðsynlegt snefilefni
sem gegnir mörgum mikilvægum
hlutverkum í líkamanum en eitt af
lykilhlutverkum þess er að flytja
súrefni til vefja líkamans. Járn
er einnig mikilvægt fyrir meðal
annars ónæmiskerfið og fyrir vöxt
og þroska barna og unglinga.
Samkvæmt Alþjóðaheilbrigðis-
málastofnuninni er járnskortur
algengasti næringarefnaskortur í
heiminum í dag. Ástæða járnskorts
er oftast ónóæt járn í fæðunni,
blóðmissir, aukin járnþörf,
sjúkdómar, meltingarvandamál
eða lélegt frásog. Konur á barn-
eignaraldri, einkum konur sem
fá miklar tíðablæðingar, þurfa í
sumum tilfellum viðbótarjárn til
að komast hjá járnskorti. Einnig er
börnum og unglingum sérstaklega
hætt við járnskorti, þar sem þau
þurfa hlutfallslega meira járn en
fullorðnir til að styðja við vöxt og
þroska.
Einkenni járnskorts geta verið
veikt ónæmiskerfi, þrekleysi,
skert úthald, föl húð, svimi, mæði,
óeðlilegur hjartsláttur og jafnvel
hárlos. Járn er að finna í ýmsum
matvælum en líkaminn getur nýtt
það misvel. Nýtingu járns er hægt
að auka með því að neyta C-víta-
mínríkrar fæðu eins og ávaxta og
grænmetis eða taka inn C-vítamín
samhliða.
Better You býður upp á járn-
munnúða í tveimur styrkleikum,
5 mg og 10 mg, sem veldur ekki
meltingarvandamálum.
„Meltingarvandamál og
hægðatregða er vel þekktur
fylgikvilli þess að taka inn járn á
bætiefnaformi. Járnið frá Better
You frásogast gegnum slímhúð
í munni. Þannig er alfarið sneitt
hjá meltingarfærunum, upptakan
er tryggð og magavandræði úr
sögunni,“ segir Kristín.
Útsölustaðir: apótek, heilsubúðir
og heilsuhillur stórmarkaðanna
Margir lenda í
vandræðum með
meltinguna við inntöku
á járni en þar sem járn
blöndurnar frá Better
You eru í munnúðaformi
sem frásogast beint frá
slímhúð í munni og út í
blóðrásina eru maga
vandamál tengd járn
inntöku því úr sögunni.
Inulin eru vatnsleysanlegar trefjar sem bæta meltinguna,
efla fjölgun vinveittra gerla í þörmunum og
hjálpa til við að koma reglu á hægðirnar.
Bragðlaust og einfalt
í notkunGóð melting - lykill að góðri heilsu
Inulin fyrir meltinguna
Prófaðu að setja teskeið af Inulín trefjum í vatnsglas
eða út í kaffibollann. Einnig má strá Inulíni yfir
morgungrautinn eða bæta út í morgunþeytinginn.
Fæst i Krónunni og apótekum.
Byltingarkennd vítamín sem
sniðganga meltingarveginn
Fyrir þá sem eiga erfitt með að nýta næringarefni úr fæðunni vegna undirliggjandi meltingar-
vandamála, eða eiga erfitt með að kyngja töflum, koma munnúðarnir frá Better You sér vel.
Better You-lín-
an býður upp á
fjölbreytt úrval
af vítamínum
og steinefnum í
munnúðaformi.
Kristín Steindórsdóttir.
FÓLK KYNNINGARBLAÐ 3 L AU G A R DAG U R 2 4 . O K TÓ B E R 2 0 2 0