Fréttablaðið - 24.10.2020, Síða 30

Fréttablaðið - 24.10.2020, Síða 30
Elín Albertsdóttir elin@frettabladid.is MEIRI ORKA OG MINNI STREITA “Þegar ég tek Adapt Energy Boost kem ég meiru í verk og er full af orku í vinnunni og til að stunda áhugamálin af krafti”. - Ragnheiður Brynjólfsdóttir - Ú ts öl us ta ði r: A pó te ka ri nn , A pó te k H af na r ar ða r, A pó te k Ve st ur la nd s, A pó te k Su ðu rn es ja , L yf o g he ils a, L y av al , L y av er , Ly fs al in n, H ei ls uv er o g á w w w .r ar it et .is Adapt Energy Boost er sérhannað fæðubótarefni fyrir þá sem þurfa á auka orku að halda í dagsins önn. Það bætir svefn og dregur úr streitu, eykur framtakssemi og kemur jafnvægi á hugann. Sönnuð virkni í klínískum rannsóknum. Frosti skyr er ný vara sem samanstendur af íslenskum skyrflögum og spírulínu. Varan er hugarfóstur þeirra Anítu Þórunnar Þráinsdóttur, sem útskrifast með BS-gráðu úr matvælafræði um jólin, og Guð- rúnar Ölfu Einarsdóttur, en hún útskrifaðist með BS-gráðu úr matvælafræði síðastliðið sumar. Hugmynd þeirra varð í þriðja sæti í bæði frumkvöðlakeppninni Gull- egginu og Ecotrophelia, evrópskri samkeppni háskólanema um vistvæna nýsköpun matvæla, sem er jafnframt besti árangur Íslands í keppninni frá upphafi. Aníta og Guðrún Alfa kynntust á fyrsta ári sínu í matvælafræði við Háskóla Íslands árið 2017 og tóku þá við viðburðarík og skemmtileg ár. „Á þriðja árinu okkar í náminu tók alvaran við, en þá hófst þró- unin á vörunni okkar, Frosta skyri. Við höfum báðar mjög mikinn áhuga á nýsköpun og gæðum matvæla og sameinuðum þennan áhuga í Frosta skyri,“ segir Guðrún Alfa, þegar hún er spurð um upp- hafið að samstarfi þeirra. Hágæða próteinduft „Frosti skyr er hágæða íslenskt próteinduft sem einnig er hægt að nota sem hefðbundið skyr. Varan samanstendur af frostþurrkuðum, laktósafríum skyrflögum með blárri spírulínu, en spírulína er næringarmikill þörungur og talinn til svokallaðrar ofurfæðu. Frosta skyr er mjög einfalt í notkun. Aðeins þarf að blanda vatni saman við skyrflögurnar og hræra hressi- lega og þá fær maður skyr í sinni upprunalegu mynd. Varan þarf ekki að vera geymd í kæli og getur geymst í mörg ár án viðkomu rot- varnarefna,“ útskýrir Aníta Þórunn og bætir við að einnig megi bæta Frosta skyr í holla þeytinga fyrir aukið próteinmagn. Þegar þær eru spurðar hvernig hugmyndin hafi kviknað, svarar Aníta Þórunn. „Hugmyndin að Frosta skyri kviknaði í byrjun þessa árs í áfanganum vöruþróun matvæla í Háskóla Íslands, þar sem mark- miðið var að þróa ný matvæli sem innihéldu blágræna smáþörunginn spírulína. Bláa spírulínan sem við notum í Frosta skyr er mjög næringarrík, en jafnframt laus við fiskbragðið sem margir tengja við þörunga og hentar því einstaklega vel sem viðbót í matvæli.“ Guðrún Alfa bætir við að þær hafi unnið dag og nótt að vöru- þróun. „Eftir sex vikur vorum við komnar með fyrstu frumgerð af vörunni í hendurnar. Við fengum styrk frá Nýsköpunarsjóði náms- manna í framhaldinu til áfram- haldandi þróunar á vörunni. Í sumar bauðst okkur svo vinna hjá fyrirtæki sem sérhæfir sig í þörungaræktun, en þar sóttum við okkur reynslu við ræktun á þörungum spírulínu. Frosti skyr er í stöðugri þróun og mun þeirri vinnu líklega aldrei ljúka, en varan er þó nánast söluhæf eins og er,“ segir hún. Tvenn verðlaun Vinkonurnar létu ekki þar við sitja heldur skráðu sig í frumkvöðla- keppnina Gulleggið og síðan Ecotropheliu. „Aníta hringdi í mig eitt kvöldið og sagði mér frá auglýsingu um umsóknarfrest í frumkvöðlakeppnina Gulleggið, sem hafði þá lent í ruslpóstinum hjá okkur báðum. Við tókum skyndiákvörðun um að skrá okkur 20 mínútum fyrir lokun skrán- ingar og helgina eftir vorum við mættar í fyrstu vinnusmiðjuna. Áður en við vissum af höfðum við verið valdar af 170 hugmyndum í topp tíu og lönduðum síðan þriðja sætinu í úrslitunum. Allt ferlið var ótrúlega skemmtilegt og reynsluríkt og erum við mjög fegnar að Aníta ákvað að skoða ruslpóstinn sinn þetta umrædda kvöld,“ segir Guðrún Alfa og Aníta bætir við. „Á fyrsta árinu okkar í matvælafræði heyrðum við af keppninni Ecotropheliu, evrópskri keppni háskólanema um vistvæna nýsköpun matvæla. Keppninni svipar að mörgu leyti til Eurovis- ion en þar taka þátt fulltrúar frá hverju Evrópulandi. Á bak við keppnina standa nokkrir risar í matvælageiranum, meðal annars Nestlé. Við vorum staðfastar í því að fara erlendis og taka þátt fyrir Íslands hönd. Það varð svo að veruleika núna síðastliðinn sunnudag, þegar við lentum í þriðja sætinu, sem er jafnframt besti árangur Íslands frá upphafi.“ Væntanlegt á næsta ári Þegar þær eru spurðar hvort verðlaunin geti hjálpað þeim að markaðssetja vöruna, svarar Aníta Þórunn. „Já, heldur betur. Jákvæð umfjöllun hefur skapast í kjöl- farið, en það sýnir okkur að það er markaður fyrir Frosta skyr og að við séum á réttri leið. Einnig hafa fyrstu viðskiptavinirnir nú þegar haft samband og bíða í röðum eftir að Frosti skyr líti dagsins ljós í versl- unum,“ segir Aníta Þórunn. Guðrún Alfa segir að stefnan sé sett á að koma vörunni á markað á næsta ári. „Áhugasamir geta fylgst með okkur á samfélagsmiðlum fyrir upplýsingar þegar nær dreg- ur,“ segir hún. Þær segja að Frosti skyr þurfi ekki að geymast í kæli og geti geymst í langan tíma án rot- varnarefna. Einnig verður kostur á því að selja marga skammta af skyri saman í einni pakkningu og jafnvel að selja skyrið umbúða- laust, en með því sparast hellingur af umbúðum. „Með Frosta skyri er hægt að sporna gegn matarsóun með því að þurrka skyr sem komið er á síðasta söludag og gefa því þannig nýtt líf. Frosti skyr sem íslenskt próteinduft, getur líka verið staðgengill innflutts pró- teindufts að einhverju leyti, en þannig mætti spara gjaldeyri og stuðla að bættri nýtingu innlendra auðlinda,“ segja þær. Guðrún Alfa og Aníta stefna á að setja vöruna á markað og benda á að með auknum ferðamanna- straumi hingað til lands hafi vin- sældir skyrs dreifst um heiminn. Þær eru með margþætt framtíðar- áform fyrir Frosta skyr „Fyrst á dag- skrá er að koma vörunni á markað. Stefnan er að auðvelda útflutning á íslensku skyri, að selja umbúða- laust skyr í fyrsta sinn, minnka matarsóun og halda áfram þróun á vörulínunni Frosti skyr. Okkar helsta markmið er að framleiða hágæða og bragðgóða vöru sem neytendur þekkja og treysta.“ Hægt er að fylgjast með Frosta Skyr á frostiskyr.net eða á insta- gram @frostiskyr eða hafa sam- band frostiskyr@gmail.com. Íslenskt skyr í nýjum búningi Aníta Þórunn Þráinsdóttir og Guðrún Alfa Einarsdóttir hlutu á dögunum evrópsk frumkvöðla- verðlaun fyrir sköpun sína Frosti skyr sem er ný vara sem unnin er úr íslensku skyri. Gulleggið góða sem þær Guðrún Alfa og Aníta Þórunn fengu í viðurkenningarskyni fyrir Frosta skyr. Frosti skyr kemur á íslenskan markað á næsta ári. Varan samanstendur af frostþurrkuðum, laktósafríum skyrflögum með blárri spírulínu, sem gefur skemmtilegan lit. MYNDIR/AÐSENDAR 4 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 2 4 . O K TÓ B E R 2 0 2 0 L AU G A R DAG U R
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.