Fréttablaðið - 24.10.2020, Page 37
Betri samgöngur ohf. er opinbert
hlutafélag sem stofnað var til að hrinda í
framkvæmd uppbyggingu samgönguinnviða
á höfuðborgarsvæðinu í samræmi við
samgöngusáttmála sem ríkið annars vegar
og sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu hins
vegar gerðu með sér. Félagið hefur yfirumsjón
með framkvæmdum vegna uppbyggingar
á samgöngum á höfuðborgarsvæðinu og
fjármögnun þeirra.
Markmið félagsins er að stuðla að greiðum,
skilvirkum, hagkvæmum og öruggum sam
göngum á höfuðborgarsvæðinu með jafnri
uppbyggingu innviða allra sam göngu máta.
Auk þess að vinna að auknu umferðaröryggi
og stuðla að því að loftslagsmarkmiði um
sjálfbært og kolefnislaust borgarsamfélag verði
náð. Félaginu er ætlað að tryggja samstarf milli
ríkis og sveitarfélaga um skilvirka uppbyggingu
samgönguinnviða. Félagið hefur yfirumsjón
með framkvæmdunum og fjármögnun þeirra
m.a. með yfirtöku og þróun á landi við Keldur í
Reykjavík.
Umsjón með starfinu hafa Auður Bjarnadóttir
(audur@vinnvinn.is) og Hilmar Garðar
Hjaltason hilmar@vinnvinn.is) hjá Vinnvinn.
Umsókn skal fylgja ferilskrá og ítarlegt
kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir
ástæðu umsóknar og rökstuðningur um
færni viðkomandi til að gegna starfinu og
upplýsingar um árangur sem viðkomandi
hefur náð og telur að nýtist í starfi
framkvæmdastjóra Betri samgangna ohf.
Framkvæmdastjóri
– Betri samgöngur ohf.
Stjórn Betri samgangna ohf. leitar að framsýnum leiðtoga til að taka virkan þátt í stórfelldri
uppbyggingu innviðasamgangna á höfuðborgarsvæðinu með m.a. borgarlínu, göngu- og
hjólastígum, umferðarstýringu og stofnvegaframkvæmdum.
Framkvæmdastjóri skal hafa skýra sýn á undirbúning og framkvæmd verkefna félagsins ásamt
frumkvæði og metnaði til að sýna árangur og kraft til að hrinda þeim í framkvæmd. Viðkomandi
þarf að hafa sýnt hæfni í samskiptum og samvinnu, breiða þekkingu, reynslu og metnað til að ná
árangri í þágu samfélagsins.
Starfssvið
• Ábyrgð á uppbyggingu félagsins, daglegum rekstri og stjórnun.
• Talsmaður Betri samgangna ohf.
• Ábyrgð á heildstæðri áætlunargerð og áhættustýringu.
• Yfirumsjón með samræmingu verkefna milli sveitarfélaga og mat á forgangsröðun.
• Eftirfylgni gagnvart sveitarfélögum um nauðsynlegar breytingar á skipulagsáætlunum.
• Yfirumsjón með þróunarvinnu á landi við Keldur.
• Yfirumsjón innheimtu, flýti- og umferðargjalda á höfuðborgarsvæðinu,
verði ákveðið með lögum að leggja slík gjöld á.
• Yfirumsjón með samningsgerð við hagaðila.
• Samskipti við hagaðila.
• Undirbúningur stjórnarfunda og eftirfylgni stjórnarákvarðana.
Menntunar- og hæfniskröfur
• Háskólapróf skilyrði, meistarapróf er kostur eða sambærileg reynsla sem nýtist í starfi.
• Leiðtogahæfileikar og framúrskarandi samskiptahæfni.
• Víðtæk og árangursrík reynsla af stjórnun og rekstri, stefnumótun og áætlanagerð.
• Reynsla af fjármögnun og rekstri umfangsmikilla verkefna.
• Reynsla af að leiða viðamikil þróunarverkefni og samningum sem fylgja er kostur.
• Frumkvæði og metnaður til að ná árangri.
• Reynsla af framkvæmdum er kostur.
• Reynsla af opinberri stjórnsýslu og alþjóðasamstarfi er kostur.
• Mjög góð færni til tjáningar í ræðu og riti á íslensku og ensku er nauðsynleg.
Umsóknarfrestur um starfið er til og með 8. nóvember 2020.
Umsóknir óskast fylltar út á www.vinnvinn.is.
Við hvetjum áhugasama til að sækja um, óháð kyni og uppruna.