Fréttablaðið - 24.10.2020, Page 78
Stefán A. Siljuson fjögurra ára er að
leika sér í sandkassa nálægt heimili
sínu, þegar ég hitti hann og móður
hans. Hann býður upp á alls konar
matvæli og þó þau líti öll út eins og
sandur þá heita þau ýmsum nöfn-
um, til dæmis salt og jafnvel mjólk.
Súkkulaðikökurnar eru bestar!
Hefurðu bakað alvöru súkkulaði-
köku heima? Já, og líka pönnu-
kökur, ein var með höndum, fótum
og haus.
Hvað finnst þér best að borða?
Bara allt – nema tré – kannski
gúmmítré.
Eigið þið gúmmítré heima? Nei,
það er búið.
Kannt þú að skrifa einhverja
stafi? Nei, en ég þekki alla stafina.
Áttu einhver jar uppá ha lds-
bækur? Já, Bangsímonbækurnar
um Grisling, hann er svo mikið
krútt. Svo erum við búin með risa-
bók um Emil. Við lesum oft þegar
ég kem heim úr skólanum og alltaf
þegar ég fer að sofa.
Hvað finnst þér mest gaman að
gera? Bara allt.
Finnst þér gaman að dansa? Dáld-
ið, sérstaklega þegar Pollapönk er
að spila og syngja um myglaðan
mat!
Á ég að segja þér soldið? Amma
mín á stóla alls staðar. Hún fékk
einn nýjan stól um daginn og gaf
mér kassann sem hann var í og við
bjuggum til hús úr honum. Hún tók
bara stóran hníf og bjó til glugga.
En hvenær áttu afmæli Stefán?
Ég á afmæli 17. júlí. Ég fékk sko
Hvolpasveitarturn í afmælisgjöf
frá mömmu og svo fékk ég leik-
fangabíla frá frænda mínum, einn
bíllinn er ruslabíll með krók og
ruslatunnu og köllum og skrúf-
járni. Þá get ég skrúfað dekkin. Það
er gaman. (Mamma hans bætir
við að fyrstu orð Stefáns á íslensku
hafi verið „skrúfa meira.“)
Hvað gerir þú helst í leikskól-
anum? Allt. Stundum er útikennsla
og þá förum við í Laugardalinn
eða út að kirkjunni eða í garðinn
við Ásmundarsafn þar sem stytt-
urnar eru.
En Stefán, hvað langar þig að
verða þegar þú verður stór? Auð-
vitað húsasmiður.
Þegar ég yfirgef Stefán og mömmu
hans er hann að róla hátt, upp í ský
og upp í geim.
Best að borða
bara allt - nema tré
Stefán útbýr alls konar rétti í sandkassanum. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
AMMA MÍN Á STÓLA
ALLS STAÐAR. HÚN
FÉKK EINN NÝJAN STÓL UM
DAGINN OG GAF MÉR KASSANN
SEM HANN VAR Í OG VIÐ
BJUGGUM TIL HÚS ÚR HONUM.Gátur Leikurinn:
Það sem við heyrum
Gögn: Tónlist, blað, litir
Einn er stjórnandi, aðrir
þátttakendur geta verið
margir eða fáir eftir að-
stæðum, jafnvel einn.
Stjórnandinn þarf að
hafa tilbúin nokkur lög
af mismunandi gerð,
til dæmis rólega klass-
íska tónlist, þungarokk,
krakkalag og popplag.
Þátttakendur slaka á,
loka augunum og nota
ímyndunaraflið meðan
þeir hlusta. Þegar hvert
lag er búið mega þeir
opna augun og teikna
eða/og lita á blað það
sem þeir heyrðu. Þá gildir
að gefa huganum lausan
tauminn og pæla í hvern-
ig þeim leið þegar þeir
hlýddu á tónlistina og
hvernig þeir geta lýst því
með litum eða myndum.
Ef margir taka þátt í
leiknum er gaman að
bera saman myndirnar
á eftir og spá í hvort þær
eigi eitthvað sameigin-
legt.
Þá kemur að næsta lagi
og svo koll af kolli.
1. Hvað getur mús dregið jafn
auðveldlega og fíll?
2. Tvær leiðir eru inn í húsið. Þegar
maður er kominn út með fæturna,
þá fyrst er maður almennilega
kominn inn. Hvað er þetta?
3. Hver hefur auga, en ekkert
höfuð?
4. Hver er barn foreldra minna, en
er þó hvorki bróðir minn né systir?
5. Hvað er það sem gengur og
gengur, en kemst þó aldrei úr
sporunum?
6. Fimm fóru inn um sömu dyr
en komu þó hver í sitt herbergi.
Hverjir voru þeir?
7. Hvað er það sem er bæði úti og
inni og ekkert hús getur án verið?
SVÖR: 1. Andann 2. Buxurnar 3.
Nálin 4. Ég sjálfur 5. Úrið 6. Fing-
urnir sem fóru í hanskann 7. Dyr
2 4 . O K T Ó B E R 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R34 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
KRAKKAR