Fréttablaðið - 24.10.2020, Qupperneq 92
Lífið í
vikunni
18.10.20-
24.10.20
ÞRÁTT FYRIR AÐ VERA
NÚ VIÐURKENND SEM
LYKILSTÖRF Í SAMFÉLAGINU,
HAFA ÞESSI STÖRF Í ÁRATUGI
VERIÐ METIN MINNA VIRÐI EN
ÖNNUR STÖRF ÞAR SEM KARLAR
ERU Í MEIRIHLUTA.
Tryggðu þér skemmtilegri vetur á stod2.is
MENNTUN GEGN FÁTÆKT
UNICEF á Íslandi stendur nú fyrir
sölu á peysum, en að sögn Stein-
unnar Jakobsdóttur mun fjárhæðin
sem safnast nýtast í að tryggja bág-
stöddum börnum greiðari aðgang
að menntun í heimsfaraldrinum.
TÓNELSK TAMNINGAKONA
Á dögunum kom út lagið Tímamót,
sungið og samið af tamninga- og
tónlistarkonunni Fríðu Hansen.
Fríða samdi sitt fyrsta lag á níutíu
ára gamalt fótstigið orgel þegar
hún var einungis tíu ára gömul.
Á MILLI STUNDA
Unnur Elísabet stendur fyrir lista-
hátíðinni Ég býð mig fram, sem
halda átti í þriðja skipti um þessar
mundir. Undirtitill hátíðarinnar í
ár er: Á milli stunda og gerði hún
myndband í tengslum við verkið
sem vakið hefur athygli.
Konur lifa
ekki á
þakklætinu
Í dag eru liðin 45 ár frá fyrsta kvennafrí-
deginum. Í ár er áhersla kvennafrídagsins
á kvennastéttir sem starfa í framlínunni í
baráttunni gegn COVID-19 faraldrinum.
Tatjana Latinovic, formaður Kvenréttindafélags Íslands. FRETTABLADID/STEFÁN
SKAPA LÍF Í LOKUN
Geoffrey Þ. Huntingdon-Williams
og Guðfinnur Sölvi Karlsson,
eigendur Priksins, hrundu í gær
af stað verkefninu Sköpum líf
í lokun. Því er ætlað að glæða
miðbæinn lífi með því að aðstoða
skapandi fólk að nýta tóm rými.
Kvennafrídagurinn er í dag en fjörutíu og fimm ár eru liðin frá því hann var haldinn í fyrsta skipti hér á landi. Konur hafa lagt
niður vinnu í sex skipti til að mót-
mæla kynbundnu misrétti, árin
1975,1985,2005, 2010, 2016 og 2018.
Venjulega hafa verið haldnir bar-
áttufundir í tilefni dagsins, en vegna
heimsfaraldursins fer dagurinn
fram með öðru sniði. Í ár er sérstök
áhersla lögð á kvennastéttir sem
starfa í framlínunni í baráttunni
gegn kórónaveirunni undir kjörorð-
unum: Konur lifa ekki á þakklætinu.
Áframhaldandi barátta
Kvennafrídagurinn var haldinn í
fyrsta sinn 24. október árið 1975.
Þá tóku kvennasamtök, kvenfélög
og stéttarfélög sig saman og skipu-
lögðu dag þar sem konur lögðu
niður vinnu, til að leggja áherslu á
mikilvægi vinnuframlags kvenna á
Íslandi. 24. október er dagur Sam-
einuðu þjóðanna, en Allsherjar-
þing Sameinuðu þjóðanna helgaði
áratuginn 1975 til 1985 málefnum
kvenna. Tatjana Latinović, formað-
ur Kvenréttindafélags Íslands, segir
að í dag, 45 árum síðar, sé framlag
kvenna til samfélagsins enn ekki að
fullu metið að verðleikum. „Konur
eru enn með 25 prósenta lægri
atvinnutekjur að meðaltali en karl-
ar. Þar með hafa konur unnið fyrir
launum sínum eftir sex klukku-
stundir og eina mínútu miðað við
fullan vinnudag frá klukkan níu
til fimm. Daglegum vinnuskyldum
kvenna er því lokið klukkan 15.01
í dag.“
Konur í framlínu gegn COVID-19
Í ár er lögð sérstök áhersla á konur
sem starfa í framlínunni gegn
COVID-19 hér á landi, enda sinna
konur að stærstum hluta störfum
sem skilgreind eru á tímum veir-
unnar sem nauðsynleg grunn-
þjónusta. Konur eru 75 prósent af
starfsfólki í heilbrigðis- og félags-
þjónustu, 73 prósent starfsfólks
í fræðslustarfsemi og 57 prósent
þeirra starfa við þjónustu og versl-
un. Á heimsvísu eru konur um 70
prósent þeirra sem starfa í heilsu-
gæslu og við félagsþjónustu, og þær
eru í meirihluta þeirra sem standa
í framlínunni í baráttunni gegn
COVID-19. „Kvennastörf eru undir-
staða samfélags okkar, undirstaða
vinnumarkaðarins. En þrátt fyrir
að vera nú viðurkennd sem lykil-
störf í samfélaginu, hafa þessi störf
í áratugi verið metin minna virði
en önnur störf, þar sem karlar eru
í meirihluta. Konur bera líka enn
þann dag í dag hitann og þungann
af umönnun barna og aldraðra, og
án dagvistunar og hjúkrunarheim-
ila og án ólaunaðrar vinnu kvenna á
heimilum, væri ekki hægt að halda
vinnumarkaðnum gangandi. Án
þeirra væri íslenskt samfélag óstarf-
hæft. Konur í framlínustörfum
munu ekki leggja niður störf sín í
dag, á kvennafrídeginum, þrátt fyrir
að ærin ástæða sé til,“ segir Tatjana.
Staðan breyst lítillega
Samkvæmt tölum Hagstofu Íslands
ættu konur að leggja niður störf
klukkan 15.01 í dag. Árið 2005 voru
konur hvattar til að leggja niður
vinnu klukkan 14.08, en tímasetn-
ing verkfallsins var þá reiknuð út
frá mun á heildarlaunum kynjanna.
Árið 2010 sýndu útreikningar að
konur hefðu unnið fyrir kaupinu
klukkan 14.25. Tímasetningin árið
2016 var 14.38 og 2018 14.55, í fyrra
var það heilli mínútu síðar eða
14.56. Staðan virðist því skána lítil-
lega með árunum þó enn sé langt í
land.
Baráttufundur með öðru sniði
Ekki verður hægt að safnast saman
á baráttufundi í ár eins og venjan
er, vegna samkomutakmarkana.
Konur á Ísafirði standa hins vegar
fyrir rafrænum samstöðufundi.
Fundurinn verður í beinu streymi á
Facebook- síðunni Kvennaverkfall-
netviðburður og hefst klukkan eitt.
Bryndís Friðgeirsdóttir, fyrrverandi
varaþingmaður, opnar fundinn með
því að lesa upp yfirlýsingu frá Kven-
réttindafélagi Íslands og samtökum
launþega. Kvenréttindafélagið
stendur einnig fyrir stafrænni her-
ferð sem hófst á samfélagsmiðlum í
gær og í dag verða birtar auglýsingar
á netmiðlum. Þá hefur einnig verið
útbúið nýtt merki kvennafrídagsins
í tilefni 45 ára afmælisins.
Mikilvægt að sýna samstöðu
Tatjana segir að COVID-19 hafi haft
ýmsar afleiðingar í för með sér, sjúk-
dómurinn hafi ekki aðeins stefnt
heilsu okkar í hættu heldur ýti far-
sóttir undir kynjamisrétti og annað
ójafnrétti í samfélaginu.
„Nú er mikilvægt fyrir okkur öll
sem unnum jafnrétti að slá ekki af
í baráttu okkar fyrir betri heimi.
Við verðum að tryggja að kynja-
jafnrétti verði ekki utanveltu í því
samfélagi sem við sköpum í kjölfar
faraldursins. Við verðum að tryggja
kjarajafnrétti til frambúðar. Áfram
stelpur!“ segir Tatjana að lokum.
urdur@frettabladid.is
2 4 . O K T Ó B E R 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R48 L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð