Fjölrit RALA - 15.01.2001, Side 39

Fjölrit RALA - 15.01.2001, Side 39
sendinn eða malarkenndur og rask grípur inn í framvindu, sem hamlar myndun þétts og hávaxins gróðurs (O’Leary 1982). Rannsóknir okkar sýna að alaskalúpína getur numið land og vaxið vel á rýrum, lítt grónum láglendissvæðum hér á landi þar sem flestar plöntur eiga erfítt uppdráttar og framvinda er hæg. Slíkt land eru áraurar, uppblásnir melar og moldir, skriður, flag- móar og sandorpin hraun, Jaínframt getur hún numið land og breiðst yfir gróið land með lágvöxnum gróðri og í sumum tilvikum fremur frjóum jarðvegi, eins og mosa- heiði og lyngmóa. Hvaða eiginleikar eru það sem gera henni þetta kleift? Þar ber fyrst að nefiia köfhunarefnisbindingu, en hún gerir lúpínunni mögulegt að vaxa í snauðum jarðvegi. Þá er fræ lúpínunnar stórt í samanburði við fræ flestra úthagaplanta hér á landi. Fræið er á stærð við eldspýtnahaus og vegur 10-20 mg (Borgþór Magnússon 1995). Kímplanta lúpínu er því fremur stór og köfhunarefhisbinding hefst í rótum hennar þegar á fyrsta sumri. Þetta leiðir af sér að vöxtur verður ör og myndast tiltölu- leg stór stöngull og djúpstæð rót á fyrsta hausti. Öflug rót auðveldar lúpínu að lifa af veturinn í berum og óstöðugum jarðvegi og hún er mikilvægur forðagjafi sem leyfir öran vöxt að vori. Við rannsóknir á uppvexti lúpínuplantna við Reykjavík hefur komið í ljós að þær bæði vaxa hratt yfir sumarið og verða mjög stórvaxnar er árin líða (Borgþór Magnús- son o.fl. 1995). Á fyrsta hausti ná plöntur um 10 cm hæð og mynda einn stöngul, á öðru hausti eru þær orðnar um 30 cm háar og hafa myndað tvo stöngla og á þriðja ári ná þær um 60 cm hæð og eru komnar með þrjá til fjóra stöngla. Flestar plöntumar blómstra þá og bera fræ í fyrsta sinn. Plöntumar halda síðan áfram að hækka og fjölga stönglum ffarnan af ævinni. Fullri hæð, um 120 cm við Reykjavík, ná þær á sex til sjö ámm. Stærstu plöntur sem mældar hafa verið höfðu liðlega 100 stöngla og vora lík- lega um 10 ára gamlar (Borgþór Magnússon o.fl. 1995). Þar sem vaxtarskilyrði eru góð myndast mikið sinulag í lúpínubreiðum sem samanstendur að mestu af gömlum stönglum, en þeir eru trénisríkari og rotna mun hægar en blöð og blómhlutar (Borgþór Magnússon og Bjami Diðrik Sigurðsson 1995, Hólmffíður Siguðardóttir, óbirt gögn). Stönglamir standa ffam á vetur en er á líður bælast þeir undan veðram og snjó og falla til jarðar, án þess að losna ffá rótar- hausnum. Þar sem lúpínan sækir út á gróið land veldur þetta stöngulfall talsverðu yfir- borðsraski á þeim gróðri sem undir því verður. Líklegt er að það bæti spírunar og upp- vaxtarskilyrði fyrir kímplöntur lúpínunnar og létti henni landnám í grónu landi. Á nokkram svæðum sem við könnuðum hafði lúpína breiðst yfir gróið land. Það var í mosaheiði í Múlakoti og lyngmóum í Hrísey, á Hveravöllum og á Húsavík. Á öllum þessum svæðum var gróður samfelldur og ógrónir blettir i sverði innan við 2% yfírborðs. í Múlakoti var mosaþekja nær samfelld og tegundin melagambri ríkjandi. Heildarþekja ranna og annarra háplantna var þar innan við 50%. I lyngmóum á Norðurlandi var mosaþekja hins vegar mun minni og náði hvergi meira en um fjórðungi af yfirborði. Lágvaxnar lyng- og rannategundir vora þar alls staðar ríkjandi í gróðri og var heildarþekja þeirra á bilinu um 55-95%. Aðaltegundir voru krækilyng, beitilyng, fjalldrapi, aðalblábeijalyng, blábeijalyng og holtasóley en misjafnt var hvar þær fundust og í hvaða hlutfollum. Þéttast og hávaxnast var runnalagið i lyngdæld á Hveravöllum þar sem aðalblábeijalyng, fjalldrapi og blábeijalyng mynduðu 20-25 cm hátt og nær samfellt runnalag með lágvaxnar krækilyngi. Annars staðar var runnalagið mim lágvaxnara og gisnara. Niðurstöður okkar benda því eindregið til að tiltölulega öflugt runnalag hindri ekki að ráði landnám lúpínu ef ljós kemst í gegnum það. Aftur á móti virðist þykkt svarðlag eða hávaxinn gróður, svo sem skógur, þétt kjarrlendi, gróskumikið blómlendi og graslendi vera þrándur í götu hennar. Reynsla af skógræktar- og landgræðslu- 37
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106

x

Fjölrit RALA

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fjölrit RALA
https://timarit.is/publication/1497

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.