Fjölrit RALA - 15.01.2001, Page 46

Fjölrit RALA - 15.01.2001, Page 46
Hvaða áhrif hefur lúpína á jarðveg? Köfhunarefhi er það efiii sem að jafhaði takmarkar vöxt planta og framvindu mest á norðurslóðum og í rýrum jarðvegi skiptir aukning þess sköpum (Bradshaw 1983, Vitousek og Lawrence 1989, Marrs og Bradshaw 1993). Þau miklu áhrif sem alaskalúpína hefur á gróður og jarðveg þar sem hún nemur land byggjast á hæfni hennar til að binda mikið köfnunarefni úr lofti. Lúpínan er miklu stórvaxnari og uppskerumeiri en villtar belgjurtir sem finnast hér á landi (Hörður Kristinsson 1986, Berglind Orradóttir og Áslaug Helgadóttir 1997). Einnig hlýtur að skipta miklu sá eiginleiki lúpína að leysa ffemur auðveldlega og taka upp fosfór og fleiri óaðgengileg steinefni úr jarðvegi. Svepprót mun vera fátíð meðal lúpína en margar þeirra geta hins vegar myndað þétta finrótaklasa (enska: proteoid roots) þar sem matarholur er að finna í jarðvegi (Sprent 1993, Longnecker o.fl. 1998). í erlendum rannsóknum á jarðvegi í lúpínubreiðum hefur komið frarn að ffamboð af aðgengilegu köfnunarefhi fyrir plöntur (NH4 og NO3) eykst til muna þar sem lúpínur nema land (Palaniappan o.fl. 1979, Halvorson o.fl. 1991, Alpert og Mooney 1996, Pickart o.fl. 1998). Ætla verður að það sama eigi við um alaskalúpínu en í þessari rannsókn var aðeins mælt heildarmagn köfnunarefnis í jarðvegi. Mælingar sem gerðar hafa verið á vexti trjáplantna innan og utan lúpínubreiða hér á landi hafa sýnt að vöxtur er meiri inni í breiðum sem líklega má rekja til áburðaráhrifa ffá lúpínu (Þröstur Eysteinsson 1988, Ása Aradóttir 1999). Köfhunarefnisbinding alaskalúpínu hér á landi hefur mælst um 80 kg N/ha á ári en þar var um að ræða 5 ára gamla breiðu sem ekki var mjög þétt (Friðrik Pálmason og Jón Guðmundsson 1997). Líklegt er að binding geti orðið talsvert meiri þar sem vaxtarskilyrði eru góð og breiður þéttar. Til samanburðar má geta þess að ákoma köfnunarefnis með úrkomu hér á landi er um 2 kg N/ha á ári (Veðurstofa Islands, óbirt gögn, Sigurður H. Magnússon 1997b) en hún getur verið aðaluppspretta þess á lítt grónum, rýrum svæðum þar sem lítið er um lífVerur sem binda köfhunarefni. Á Bretlandi hefur köfhunarefhisbinding Lupinus arboreus, sem er notuð til uppgræðslu námahauga og er talsvert stórvaxnari en alaskalúpína, mælst ffá um 70 til 180 kg N/ha á ári (Palaniappan o.fl. 1979, Marrs og Bradshaw 1993) og mun meiri binding, eða allt að 400 kg N/ha, hefur mælst hjá einærum lúpínum í ræktun (Howieson o.fl. 1998). Samkvæmt rannsóknum okkar var uppskera af lúpínunni um 100-1000 g/m2 eftir þéttleika breiða en miðað við 2% köfnunarefhisinnihald í sprotum í lok sumars (Borg- þór Magnússon og Bjami Diðrik Sigurðsson 1995) jafngildir það 20-200 kg N/ha í sinufalli af lúpínu að hausti sem bætist ofan á jarðveginn og tekur að rotna. Er þá ótalinn vöxtur og umsetning róta sem líklega er umtalsverður því rætur alaskalúpinu em stórar og þyngri en ofanjarðarhlutinn að hausti (Borgþór Magnússon o.fl. 1995). Eins og niðurstöðumar sýna varð alls staðar aukning á forða kolefnis og köfnunarefhis í jarðvegi þar sem lúpína myndaði breiður á ógrónu eða lítið grónu landi (16. og 18. mynd). Þar sem jarðvegssýni vom aðeins tekin úr efstu 10 cm og rúmþyngd jarðvegs var ekki ákvörðuð er ekki unnt að reikna heildaruppsöfnun á þessum efnum í jarðvegi í lúpínubreiðum. Hins vegar gemm við hér tilraun til að áætla hana út frá niðurstöðum um rúmþyngd sambærilegs mela- og móajarðvegs ffá sunnan- og norðanverðu landinu en hún er að meðaltali um 1,3 (0,5-2,7) (Jón Guð- mundsson og Grétar Guðbergsson, Rannsóknastofnun landbúnaðarins, óbirt gögn). Á Kvískeijum og í Múlakoti varð mest aukning á líffænum efnum í jarðvegi, en á báðum þessum stöðum hafði lúpína upphaflega verið sett í lítt gróna áraura sem gera má ráð fyrir að hafi verið mjög snauðir og sennilega sambærilegir við viðmiðunarreiti á Ássandi og í Þjórsárdal (C -0,1%, N -0,01%, 16. mynd). Eftir um 30 ára vem lúpínu á þessum stöðum var kolefnisforði í jarðvegi kominn í liðlega 3% og 44
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106

x

Fjölrit RALA

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fjölrit RALA
https://timarit.is/publication/1497

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.