Fréttablaðið


Fréttablaðið - 27.11.2020, Qupperneq 12

Fréttablaðið - 27.11.2020, Qupperneq 12
Heilbrigðistrygg­ ingar munu halda og lífeyrisgreiðslur munu áfram berast. Michael Nevin, sendiherra Bret- lands á Íslandi Rúmlega 450 þúsund hafa greinst með kóróna­ veiruna í Þýskalandi í nóvembermánuði. 20% AFSLÁTTUR AF ÖLLUM VÖRUM Í VEFVERSLUN Á SVÖRTUM FÖSTUDEGI COVID-19 Staðfest COVID-19 tilfelli á heimsvísu eru nú orðin f leiri en 60 milljón talsins. Þá hafa yfir 1,4 milljónir manna látist af völdum sjúkdómsins. Um 42 milljónir hafa sigrast á COVID-19 en um 17 millj- ónir eru með virkt smit. Yfir hund- rað þúsund þeirra sem eru með virkt smit eru alvarlega veik. Tilfellin eru f lest í Bandaríkj- unum þar sem rúmlega 13 millj- ónir manna hafa smitast, þar hafa tæplega 270 þúsund manns látist og gerð hafa verið yfir 186 milljón COVID-19 próf. Á Indlandi hafa verið staðfest yfir níu milljónir til- fella og yfir 135 þúsund hafa látist af völdum sjúkdómsins. Útgöngubann hefur verið í gildi í Bretlandi síðan í byrjun nóvember en dauðsföll af völdum COVID-19 eru nú orðin f leiri en 56 þúsund talsins í landinu. Þá eru staðfest til- felli í Bretlandi komin yfir 1,5 millj- ónir. – bdj Yfir 60 milljón smit á heimsvísu TYRKLAND Dómstóll í Tyrklandi dæmdi í gær 337 fyrrverandi her- flugmenn og aðra sakborninga í lífs- tíðarfangelsi fyrir aðild að meintri valdaránstilraun gegn forsetanum Recep Tayyip Erdogan. Um 500 manns voru sakaðir um þátttöku í valdaránstilrauninni sem hófst að sögn tyrkneskra yfirvalda í herstöð nálægt höfuðborginni Ankara. Rúmlega 250 manns létust í valdaránstilrauninni þegar her- mennirnir sem um ræðir reyndu að komast yfir vopn í von um að geta gert atlögu að lykilstofnunum í ríkisstjórn Erdogan. Þyngstu dóm- arnir voru 79 lífstíðardómar fyrir að leggja á ráðin um að drepa Erodgan. Það á enn eftir að rétta yfir mörg þúsund manneskjum fyrir aðild að valdaránstilrauninni en tyrknesk stjórnvöld hafa fullyrt að hún hafi verið að undirlagi stuðningsmanna útlæga klerksins Fethullah Gulen. Gulen sem dvelur í Bandaríkjunum hefur neitað að eiga aðild að valda- ránstilrauninni. – kpt Lífstíðarfangelsi fyrir tilraun til valdaráns UTANRÍKISMÁL Fjöldi Breta sem búsettir eru á Íslandi hefur leitað til sendiráðsins undanfarnar vikur til að spyrjast fyrir um hvernig staða þeirra verði eftir fulla útgöngu Bret- lands úr Evrópusambandinu um áramótin. Þá lýkur hinu svokallaða aðlögunartímabili. Hefur sendiráðið sent skilaboð og boðið fólki á fræðslufundi til þess að skýra stöðuna. Breska rík- isstjórnin hefur einnig sent bréf til 365 þúsund Breta í öllum Evrópu- sambands- og EFTA-löndum vegna lífeyrisréttinda. Bretar bíða með öndina í háls- inum yfir því mexíkóska þrátef li sem ríkir milli ríkisstjórnar Boris Johnson og samninganefndar Evrópusambandsins, með Michel Barnier í fararbroddi. Óttast margir að Bretland fari samningslaust inn í nýja árið. Michael Nevin, sendiherra Bret- lands á Íslandi, segir að þeir Bretar sem búsettir eru hér á landi fyrir 31. desember geti verið rólegir og að samningarnir muni ekki hafa áhrif á stöðu þeirra. „Skilaboð ríkisstjórnarinnar eru að Bretar noti síðustu vikur aðlög- unartímabilsins til að undirbúa sig undir breytinguna,“ segir Nevin. „Fólk þarf að ganga úr skugga um að það sé skráð hjá Þjóðskrá og með kennitölu. Ef svo er mun breytingin ekki hafa teljandi áhrif á líf þeirra.“ Með samningnum sem undirrit- aður var á milli Íslands og Bretlands í janúar eru réttindi fólks tryggð sem býr hér fyrir 31. desember. Gildir það einnig fyrir Íslendinga sem búa í Bretlandi. „Fólk getur haldið áfram að vinna hér og læra,“ segir Nevin. „Heilbrigðistryggingar munu halda og lífeyrisgreiðslur munu áfram berast.“ Segir Nevin fólk sem leiti til sendiráðsins spyrja um ýmsa hluti, til að mynda um heilbrigðisþjón- ustu og ökuskírteini. Sendiráðið leitist við að svara, bendi fólki á kynningarefni (Living in Iceland) og haldi sérstaka fræðsluviðburði (BritIce) um breytinguna. „Ég held að flestir átti sig á breytingunni en eftir því sem við nálgumst dagsetn- inguna fá f leiri áhuga á þessu. Þess vegna búumst við við því að fólk muni leita í auknum mæli til okkar út árið,“ segir hann. Breska ríkisstjórnin hefur lagt ríka áherslu á að útgangan hafi sem minnst áhrif á daglegt líf þegna sinna erlendis. Síðan 2017 hafa verið haldnir rúmlega 850 kynningarvið- burðir, bæði í viðkomandi löndum og á netinu. Þá hefur stjórnin varið 3 millj- ónum punda, eða rúmum hálfum milljarði króna, til að styrkja góð- gerðar- og sjálf boðaliðasamtök til að aðstoða Breta við að tryggja stöðu sína í viðkomandi löndum, svo sem fatlaða, eldri borgara og þá sem búa á afskekktum svæðum. kristinnhaukur@frettabladid.is Helst spurt um ökuskírteinin og heilbrigðistryggingarnar Sendiherra Bretlands á Íslandi hvetur Breta hér á landi til að skrá sig hjá Þjóðskrá og fá kennitölu. Þá ætti útganga Bretlands úr Evrópusambandinu ekki að hafa teljandi áhrif á líf þeirra. Álag á sendiráðið hefur aukist upp á síðkastið. Hefur sendiráðið því gripið til þess ráðs að halda fræðslufundi og kynningar. Brexitklukkan tifar og fleiri og fleiri Bretar leita til sendiráðsins á Íslandi eftir svörum. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Hermaður leiddur fyrir dómstóla í Tyrklandi. FRÉTTABLAÐIÐ/EPA ÞÝSKALAND Ef miðað er við niður- stöður úr skimunum síðustu daga í Þýskalandi má búast við að Þýska- land verði í dag tólfta þjóðin á heimsvísu og sjötta Evrópuþjóðin með milljón staðfest tilfelli af kórónaveirunni. Þær fregnir koma rúmum sólarhring eftir að þýsk stjórnvöld framlengdu samkomu- takmarkanir til 20. desember í von um að hægja á útbreiðslunni. Ákvörðunin var tekin sama dag og nýtt met var sett í dauðsföllum af völdum COVID-19 á einum degi í Þýskalandi þegar 416 létust. Í byrjun nóvember síðastliðins settu stjórnvöld í Þýskalandi nýjar reglur á landsvísu þar sem ákveðið var að loka veitinga- og skemmti- stöðum ásamt kvikmyndahúsum og líkamsræktarstöðvum. Aðeins tíu máttu koma saman hverju sinni nema í atvinnumannaíþróttum sem fengu undanþágu frá reglu- gerðinni. Þær aðgerðir virðast ekki hafa skilað tilætluðum árangri því til þessa hafa rúmlega 450 þúsund manns greinst með kórónaveiruna í nóvembermánuði. Líklegt er að sú tala nái yfir hálfa milljón fyrir lok mánaðar og verður því rúmlega helmingur kórónaveirusmitaðra í Þýskalandi í nóvembermánuði. Til samanburðar tók átta mánuði að ná 450 þúsund tilfellum frá því að það fyrsta var staðfest í Þýskalandi um miðjan febrúar. Samkvæmt nýjum reglum þýskra stjórnvalda verður aðeins fimm manns heimilt að koma saman hverju sinni en yfir jólatímann mun sá fjöldi hækka í tíu manns og eru börn undanskilin í þeirri tölu. Þá sammæltust stjórnvöld um að innleiða bann við skíðaferða- lögum fram yfir áramótin þvert á vilja ferðamálayfirvalda en talið er að veiran hafi fyrst náð útbreiðslu í Evrópu á skíðasvæði í Austurríki. „Markmið okkar er og verður að fækka nýsmiti til að auðvelda heilbrigðisyfirvöldum að ná aftur tökum á smitrakningu.“ – kpt Boða hertar aðgerðir í Þýskalandi Grímuklæddir borgarar bíða eftir lest í Berlín. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY DANMÖRK Forsætisráðherra Dan- merkur, Mette Frederiksen, heim- sótti minkaræktanda sem missti lífsviðurværi sitt á dögunum þegar ríkisstjórn Danmerkur ákvað að aflífa skyldi alla minka landsins. Með þeirri ákvörðun var ljóst að af lífa þyrfti um sautján millj- ónir dýra eftir að nýtt af brigði af kóróna veirunni fannst í minkum. Rúmlega hundrað minkabú reynd- ust vera með smitaða minka. Pressan eykst á Frederiksen þessa dagana og hefur stjórnarand- staðan kallað eftir því að ríkisstjórn hennar segi af sér eftir að í ljós kom að ríkisstjórninni var óheimilt að taka ákvörðun um að af lífa alla minka í landinu. Búið er að leggja á bann við minkarækt í Danmörku út næsta ár en feldurinn af dönskum minkum þykir eftirsóttur á heims- vísu. Um sex þúsund manns vinna við minkarækt í Danmörku sem skilar landinu hátt í fimm millj- örðum danskra króna á ári. „Þarna eru afar færir minka- ræktendur af annarri kynslóð en á stuttum tíma er búið að þurrka lífs- viðurværi þeirra út. Þetta er erfiður tími fyrir þá og fyrir sjálfa mig líka,“ sagði Mette við danska fjölmiðla í gær. – kpt Mette Frederiksen heimsótti minkaræktanda Frederiksen var í sóttvarnaklæðum á meðan á heimsókninni stóð. 2 7 . N Ó V E M B E R 2 0 2 0 F Ö S T U D A G U R10 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.