Fréttablaðið - 27.11.2020, Qupperneq 25
Guðmundur
Steingrímsson
Í DAG
Vestur í Kísildal í Kaliforníu hafa nokkrir snjallir for-ritarar náð að hanna æði
fullkomna gervigreind. Sam-
kvæmt fréttaskýringu sem ég
las í vikunni eru tölvunördar
heimsins — og takið eftir því að
orðið „nörd“ er ekki lengur notað
til skaprauna eins og í gamla daga,
heldur er fólk núorðið stolt af
nördaskap sínum, sem er gott —
en semsagt: Nördar heimsins eru
að missa sig yfir þessari gervi-
greind, og það skiljanlega.
Nú er ég enginn sérfræðingur í
þessum fræðum, en miðað við það
sem ég las er hér um mikil tíðindi
að ræða. Gervigreindarforritið
heitir GPT-3. Gervigreindarmið-
stöðin OpenAI hefur hannað
fyrirbrigðið. Samkvæmt tíðindum
getur GPT-3 gert alla skapaða hluti.
Það yrkir ljóð, getur skrifað fyrir
fólk tölvuforrit eftir beiðni, sett
færslur á samfélagsmiðla, svarað
heimspekilegum spurningum og
staðið í allra handa daglegum sam-
skiptum við fólk um hitt og þetta.
Forritið lærir sjálft, sem þýðir að
það skannar netið og nemur allt
sem þar fer fram og byggir síðan
„greind“ sína á þeim lærdómi.
Allt er þetta gott og gilt og svo-
sem hefur svona fyrirbæri verið
í þróun í nokkurn tíma, en það
sem er athyglisvert við þetta dæmi
er hins þegar þetta: Sá hvimleiði
galli er á GPT-3 að í samskiptum
við manneskjur þykir forritið
heldur dónalegt. Þess eru dæmi
að fólk verði algjörlega miður
sín. Tilhneigingar til rasisma eru
allnokkrar. Nærgætni skortir.
Greina má slíkan lygaþvætting
og alls kyns fordóma í tungutaki
forritsins, að fólk er jafnvel slegið
á eftir.
Forritarar klóra sér í kolli.
Hverju sætir? Af hverju eru tölvan
svona ókurteis? Jú, ástæðan er
vitaskuld sú að hún byggir orðaval
sitt á því sem hún hefur safnað
saman af internetinu. Hún speglar
því orðræðu mannkynsins.
Ímyndið ykkur ef Siri eða
Alexa, þessi ófullkomnu gervi-
greindarforrit sem við tölum
við þegar við tölum við tækin
okkar, færu að taka upp á því að
niðurlægja okkur með tilsvörum
sínum á degi hverjum. Kannski
fyndið til skamms tíma, en án efa
þreytandi til lengdar. „Hey, Siri,
hvað er klukkan?“ Svar: „Éttu skít.“
Kannski er hér visst ljóðrænt rétt-
læti á ferðinni fyrir hið hatursfulla
mannkyn. Talsmáti GPT-3 er auð-
vitað mátulegur á okkur. Spegli
er brugðið upp. Svona erum við
þá almennt ömurleg. Spurningin
í þeim kringumstæðum blasir við
í framhaldinu: Er þetta eitthvað
sem mikilvægt er að breyta? Er
vandi jarðar aðallega samskipta-
vandi?
Hversu mikla orku skyldi
mannkynið nota í skæting, fals
og illdeilur á ársgrundvelli? Tími
er verðmæti. Tími er orka. Hversu
mikla orku nota Íslendingar í
fingrabendingar og hnútuköst?
Þegar einhver segir við einhvern
á kommentakerfi netmiðla að
viðkomandi eigi ekki skilið að lifa
vegna skoðana sinna, hvað gerist
við slík samskipti? Nú ætla ég að
tala fyrir sjálfan mig. Mín reynsla
er sú, að ef ég verð reiður út af
dónaskap annarra í minn garð eða
í garð minna nánustu, á netinu
eða annars staðar, tekur það mig
um það bil þrjá daga að jafna mig.
Dónalega tölvan
Í þessa þrjá daga er ég að tuldra
mögulegan dónaskap á móti í
einveru minni, f lyt langa reiði-
lestra einn í bílnum — ímynda
mér hvernig ég ætli að láta gerpið
finna fyrir því — og svo tekur álíka
mikla orku að birta ekki einhvern
slíkan ófögnuð á móti — og það
tekur á — og ég sperri andlitsvöðv-
ana óeðlilega mikið í illsku minni
og er almennt tens. Missi jafnvel
svefn. Óhemjuorka fer í þetta. Hin
leiðin er að koma sér upp skráp eða
tileinka sér viðvarandi truntuskap
í forvarnarskyni, en það þarfnast
líka mikillar orku. Lykilatriðið er
það, að skætingur annarra er tund-
urskeyti inn í líf fólks. Ímyndið
ykkur, svo ég noti tungutak sem
kannski þarf að nota svo alvarleiki
málsins sé viðurkenndur, hvað
svona lagað þýðir fyrir framlegð á
vinnumarkaði? Hversu mikill tími
fer í vitleysu út af ókurteisi?
Ég hallast að því að CPT-3 sé
að sýna okkur að líklega sé þetta
stærsta verkefni mannkyns: Að
koma betur fram við hvert annað.
Að sýna væntumþykju og skilning.
Við þurfum bara ást, eins og
Bítlarnir bentu á. Líklega náum
við aldrei að minnka koltvísýring
í andrúmsloftinu eða útrýma
fátækt nema við gerum þetta fyrst.
Sýnum að okkur sé ekki sama um
náungann.
Í öllu falli væri gaman ef mann-
kynið, sem nú er orðið býsna
samheldið í heimsfaraldrinum—
faraldurinn hefur eiginlega
breytt veröldinni í heimsþorp —
myndi gera þetta að tilraun sinni
til næstu ára. Að tala fallega hvert
til annars, þó ekki væri nema
bara til að sjá svo hvort CPT-3
breyti talsmáta sínum í kjöl-
farið og fari að sýna almennilega
mannasiði.
FYRIR HREINAR OG
FRÍSKAR TENNUR
HUGSAÐU
VEL UM
TANNHEILSUNA
S K O Ð U N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 23F Ö S T U D A G U R 2 7 . N Ó V E M B E R 2 0 2 0