Fréttablaðið


Fréttablaðið - 27.11.2020, Qupperneq 36

Fréttablaðið - 27.11.2020, Qupperneq 36
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, Arnheiður Dröfn Klausen Strandgötu 21a, Eskifirði, lést 24. nóvember á hjúkrunarheimilinu Hulduhlíð, Eskifirði. Útför hennar fer fram frá Eskifjarðarkirkju 30. nóvember kl. 14. Vegna aðstæðna geta aðeins nánustu aðstandendur verið viðstaddir útförina. Athöfninni verður streymt á slóðinni Facebook, Eskifjarðarkirkja. Alrún Kristmannsdóttir Gísli Benediktsson Herdís Kristmannsdóttir Páll S. Grétarsson Guðrún Kristmannsdóttir Gungör Tamzok Kristmann Kristmannsson Agnes Jóhannsdóttir Þorgeir H. Kristmannsson Drífa Jóna Kristjánsdóttir barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, Stella Minný Einarsdóttir Skálarhlíð, Hlíðarvegi 45, Siglufirði, lést á Sjúkrahúsinu á Akureyri, fimmtudaginn 19. nóvember. Útför hennar fer fram frá Siglufjarðarkirkju laugardaginn 28. nóvember kl. 14. Í ljósi aðstæðna verða einungis nánustu aðstandendur viðstaddir athöfnina. Útförinni verður streymt í gegnum Facebook-hópinn „Stella Minný Einarsdóttir - Útför“, (facebook.com/ groups/Stella Minný Einarsdóttir - Útför) Páll Gunnlaugsson Ólafur Þór Ólafsson Halldóra Salbjörg Björgvinsdóttir Ásdís Vilborg Pálsdóttir Ástvaldur Jóhannesson Ásgrímur Pálsson Kristjana G. Bergsteinsdóttir Sigurjón Pálsson Róbert Pálsson Elín Björg Gissurardóttir barnabörn og barnabarnabörn. Jón Sigurður Eiríksson Drangeyjarjarl, lést á Heilbrigðisstofnun Sauðárkróks þann 24. nóvember sl. Eiríkur Jónsson Sigurjón Jónsson Viggó Jónsson Sigmundur Jónsson Alda Jónsdóttir Sigfús Agnar Jónsson Björn Sigurður Jónsson Ásta Birna Jónsdóttir Brynjólfur Þór Jónsson Jón Kolbeinn Jónsson og fjölskyldur. Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, Inga Hulda Eggertsdóttir lést á hjúkrunarheimilinu Eir 23. nóvember sl. Útför hennar fer fram 7. desember að viðstöddum nánustu ættingjum. Sérstakar þakkir sendum við starfsfólki á Eir sem annaðist hana síðustu árin. Eggert Guðmundsson Vhian Golosino Þorsteinn Guðmundsson Sigurður Guðmundsson Herborg Þorgeirsdóttir Erla Guðmundsdóttir Jón Guðmundsson Guðmundur Lárus Guðmundsson barnabörn og langömmubörn. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, Katla Vigdís Helgadóttir lést á Landspítalanum Fossvogi, laugardaginn 21. nóvember síðastliðinn. Útför auglýst síðar. Ólafur Bragi Ásgeirsson María Björk Traustadóttir Ásgeir Þór Ásgeirsson barnabörn og barnabarnabarn. Það er bannað að vinna lengur,“ segir Jón Gunnar Ottósson, forstöðumaður Nát t ú r u f r æ ði s t of nu n a r Íslands, um starfslokin sem fylgja sjötugsafmælinu í dag. „Síðasti vinnudagur er reyndar á mánu- daginn,“ heldur hann áfram. „Ég er bara að undirbúa arftaka minn, Þorkel Lind- berg Þórarinsson, sem hefur verið með Náttúrustofu Norðausturlands á Húsa- vík. Við þekkjumst vel.“ Viðtalið fer fram gegnum síma. Jón Gunnar býr fyrir austan fjall, ásamt konu sinni, Margréti Frímannsdóttur. „Við seldum í Hrauntungunni í Kópa- vogi í sumar og keyptum okkur hús á Selfossi. Vorum aðeins að minnka við okkur,“ segir hann. Mikið flökkudýr Jón Gunnar er doktor í náttúrufræði og hefur veitt stofnunum innan þeirrar fræðigreinar forstöðu í 30 ár eftir að hafa starfað sem sérfræðingur hjá Rannsókn- arstöð Skógræktarinnar á Mógilsá og við kennslu bæði á framhaldsskólastigi og í Háskóla Íslands. Hann segir náttúru Íslands hafa heillað hann frá því hann var krakki. „Ég var alltaf til sumardvalar í Mývatssveitinni og hún hafði mikil áhrif á mig,“ segir hann og upplýsir að hann hafi verið á Laxabakka við Hellu- vað. „Foreldrar mínir bjuggu í bænum en ég var ýmist á Dalvík eða í Mývatnssveit, var mikið flökkudýr.“ Hann þarf aðeins að hugsa sig um þegar ég spyr hvað honum finnist standa upp úr á ferlinum. „Aðallega það að hafa byggt upp þessa Náttúrufræðistofnun sem við vinnum í hér í Urriðaholtinu og það sem stendur upp úr starfinu hér er að upplýsingarnar sem við höfum um íslenska náttúru, bæði á landi og fiski- miðum, hafa aldrei verið betri en í dag. Ég hef líka verið mikið í alþjóðlegu sam- starfi og verið formaður náttúruverndar- samtaka Evrópuríkja. Hef ferðast mjög mikið.“ Hvar skyldi honum hafa þótt fegurst. „Ég veit það ekki, hvert land hefur sín sérkenni. Mér hefur alltaf líkað vel við Miðjarðarhafið og svo eru norður- hjarinn og Suðaustur-Asía heillandi líka, allt hefur sinn sjarma.“ Hann kveðst taka eftir miklum breytingum á náttúrufari frá því hann hóf að skoða heiminn og þykir  þær yfirleitt ekki til bóta. „Við eigum erfitt með að taka upp skynsamleg vinnubrögð í náttúru- verndarmálum,“ segir hann og telur okkur Íslendinga dálítið aftarlega á merinni í þeim efnum, miðað við mörg erlend ríki sem við berum okkur saman við á Vesturlöndum. „Ég vildi friða nátt- úruna með skipulagðari hætti en gert er. Við þurfum að vernda það sem er verndar þurfi en ekki bara það sem er í boði að vernda,“ segir hann. „Ég get tekið sem dæmi svartfuglastofnana sem við berum ábyrgð á. Mér finnst það þyrfti að draga verulega úr veiðum á þeim.“ Hátíðahöld í hófi – í kófi Eins og f leiri sem átt hafa merkisaf- mæli á þessu ári verður Jón Gunnar að stilla hátíðahöldum í hóf í dag. „Fyrir- komulagið er bara þetta sígilda á tímum COVID, nánasta fjölskylda sem verður í sambandi,“ segir hann og viðurkennir að það sé reyndar nokkuð stór hópur í allt, börnin séu fimm og barnabörnin níu. „Það eru allir á landinu núna, aldrei þessu vant. Þetta er listafólk að stórum hluta svo það getur unnið hvar sem er.“ gun@frettabladid.is Vill vernda það sem þarf Jón Gunnar Ottósson náttúrufræðingur er sjötugur í dag. Hann er opinber starfsmaður og er því að breyta um lífsstíl en þarf fyrst að koma arftaka sínum inn í embætti. Jón Gunnar segir náttúru Íslands hafa heillað hann frá því hann var krakki norður í Mývatnssveit. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR Jón á svölum Evrópu, (Balcón de Eu- ropa) í bænum Nerja á Spáni. MYND/MARGRÉT FRÍMANNSDÓTTIR Upplýsingarnar sem við höfum um íslenska náttúru, bæði á landi og fiskimiðum, hafa aldrei verið betri en í dag.  Merkisatburðir 1450 Langaréttarbót er gerð í Kaupmannahöfn af Krist- jáni konungi 1. Tilgangur hennar er að koma á friði og lögum á Íslandi. Þar er bann lagt við ribbaldaskap, ráns- ferðum og gripdeildum, fjölmennum yfirreiðum valds- manna og mönnum er bannað að halda „manndrápara, biskupsdrápara, prestadrápara, kirknabrjóta og kirkna- þjófa...“ 1804 Trampe greifi verður amtmaður í Vesturamti. 1903 Selvík á Skaga verður löggiltur verslunarstaður. 1927 Ferðafélag Íslands er stofnað. 1950 Flugbjörgunarsveitin í Reykjavík er stofnuð í kjölfar Geysisslyssins. 1956 Vilhjálmur Einars- son, 22 ára, setur Íslands- met og Norðurlandamet í þrístökki á Ólympíu- leikunum í Melbourne í Ástralíu er hann stekkur 16,25 metra. Jafnframt er þetta Ólympíumet í nokkrar mínútur, en endar með silfurverðlaunum. 2000 Lengstu veggöng heims, Lærdalsgöngin í Noregi, 25,5 km að lengd, eru opnuð. 2010 Kosningar til stjórnlagaþings fara fram á Íslandi. 2013 Bandaríska teiknimyndin Frosinn er frumsýnd. 2 7 . N Ó V E M B E R 2 0 2 0 F Ö S T U D A G U R34 T Í M A M Ó T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð TÍMAMÓT
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.