Fréttablaðið - 27.11.2020, Side 38
Útgefandi:
Torg ehf
Ábyrgðarmaður:
Björn
Víglundsson
Fólk er kynningarblað sem býður auglýsendum að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og um-
fjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið ritstjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 550 5761 | Hjördís Erna
Þorgeirsdóttir | hjordiserna@frettabladid.is s. 550 5767 | Oddur Freyr Þorsteinsson, oddurfreyr@
frettabladid.is s. 550 57686 | Sandra Guðrún Guðmundsdóttir, sandragudrun@frettabladid.is, s. 550
5762 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is, s. 550 5768
Sölumenn: Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652, Atli
Bergmann, atli@frettabladid.is, s. 550 5657, Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@
frettabladid.is, s. 550 5654, Jóhann Waage, johannwaage@frettabladid.is,
s. 550 5656, Ruth Bergsdóttir, ruth@frettabladid.is, s. 694 4103.
Margrét Eir býr í fallegu húsi í ævintýralegu umhverfi í miðbæ Hafnarfjarðar, þar
sem hún tekur á móti blaðamanni
með rjúkandi kaffi og nýbökuðum
smákökum. Hún býr með Jökli
Jörgensen, hárgreiðslumeistara
og tónlistarmanni, en þau hafa
notað tímann vel í kóróna veiru
faraldrinum. „Við erum saman í
hljómsveitinni Thin Jim and the
Castaways og erum tilbúin með
nýja plötu, sem við höfum unnið
að um langt skeið. Vegna COVID
19 ákváðum við þó að fresta útgáfu
hennar fram á vorið, svo við getum
fylgt henni almennilega eftir með
tónleikahaldi. Lögin á plötunni
eru undir áhrifum kántrítón
listar, með sterkum textum, en við
vorum í samstarfi við tónlistarfólk
í Nashville við vinnslu hennar. Ég
er afar ánægð með útkomuna en
það er líka svo gaman að fara nýjar
leiðir, endurnýja sig sem listamað
ur og koma sjálfri sér á óvart,“ segir
Margrét, en tvö lög af plötunni eru
þegar komin í spilun.
„Leaves still green kom út í
október og í sumar kom út lagið
Piltur og stúlka, sem við Björgvin
Halldórsson syngjum saman,“
segir Margrét, en það samstarf vatt
sannarlega upp á sig. „Björgvin
hringdi í mig í haust, spurði hvað
ég væri að gera þann 19. desember
og bauð mér að syngja með sér á
tónleikunum Jólagestir Björgvins.
Tónleikunum verður streymt beint
frá Borgarleikhúsinu í ár. Þetta
verður í fyrsta sinn sem ég kem
fram á jólatónleikum Björgvins en
svo skemmtilega vill til að þegar ég
var þrettán, fjórtán ára var ég í kór
Öldutúnsskóla og söng bakraddir
á fyrstu plötunni með Jólagestum.
Þetta á eftir að verða svakalega
gaman,“ segir Margrét brosandi.
Líkt og undanfarin ár ætlar
hún að halda sína eigin jólatón
leika í Fríkirkjunni í Hafnarfirði,
ásamt tónlistarmönnunum og
bræðrunum Daða og Berki Hrafni
Birgissonum, þann 22. desember.
„Við erum með nokkuð óvenjulega
dagskrá og flytjum írska, skoska
og breska tónlist. Við höfum unnið
með þetta prógramm í fjögur,
fimm ár. Við verðum með eins
marga tónleikagesti og leyfilegt
verður, og tónleikunum verður
líka streymt,“ upplýsir hún.
Lærdómsríkir mánuðir
Þegar Margrét er spurð hvort
kórónaveirufaraldurinn hafi haft
mikil áhrif á líf hennar, segir hún
hiklaust að svo sé. Flestöllum
tónleikum var frestað eða þeir
felldir niður og allt í einu var lítið
sem ekkert að gera í söngnum, að
hennar sögn.
„Þetta hefur verið mjög lær
dómsríkt tímabil, eins og senni
lega hjá flestöllum. Þegar ég
neyddist til að setjast niður og
slaka á vegna samkomutakmark
ana kom ýmislegt upp úr kafinu.
Ég uppgötvaði að síðustu tuttugu
árin hef ég verið undir gríðarlega
miklu vinnuálagi og vart tekið
mér frí. Ég hef því nýtt tímann
til að vinda ofan af því og byrja
núna hvern dag á jógaæfingum,
áður en ég tek til við að sinna
hinum ýmsu verkefnum. Þetta
var bæði merkileg og kærkomin
reynsla, og ekki síður lærdóms
rík,“ segir Margrét, en líkt og hjá
flestum listamönnum hafa tekjur
hennar dregist verulega saman
vegna heimsfaraldursins. „Það er
búið að vera rólegt að gera frá því
snemma í vor en á næstu vikum
verður meira að gera í söngnum.
Ég viðurkenni að það er dálítið
erfitt að fara af stað aftur og því
fylgir bæði kvíði og óöryggi, enda
ekkert skrítið þegar maður hefur
ekki komið fram og sungið í marga
mánuði,“ segir Margrét.
Kórinn syngur á Zoom
Margrét hefur kennt söng við
Tónlistarskóla FÍH um nokkurt
skeið. „Öll kennslan hefur haldist í
föstum skorðum í vetur og krakk
arnir verið ótrúlega duglegir að
mæta. Auðvitað erum við mjög
varkár og gætum fyllstu sóttvarna.
Við prófuðum að kenna í gegnum
ZOOM en það er ekki alveg það
sama,“ segir Margrét.
Fyrir ári tók hún við starfi
kórstjóra Kvennakórs Kópavogs
og segir starfið skemmtilegt og
fjölbreytt. „Í raun er þetta í fyrsta
sinn sem ég er formlegur kórstjóri.
Ég er þó ekki algjör nýgræðingur
í að stjórna hópum því ég sá um
söngleiki í Versló í tvö ár og þá
kom ég mér upp góðu skipulagi
sem hefur nýst vel í kófinu. Ég er
með öll undirspil á tölvunni, söng
allar raddir inn á band og deildi á
Dropbox með kórfélögunum, sem
gátu þá lært allar raddirnar.
Í haust hittumst við af og til og
fórum saman í gönguferðir til að
auðga andann og núna erum við
með Zoomsöngæfingu í hverri
viku. Ég fæ oft leynigest til að lífga
upp á æfingarnar. Í þessari viku
vorum við í fyrsta sinn með svo
kallaðan hybridfund, en þá komu
níu í einu á hálftíma æfingu, síðan
var allt sprittað og sótthreinsað og
næstu níu komu og þannig gekk
Margrét Eir
segir að í kjölfar
kórónaveiru
faraldursins
hafi öllu tón
leikahaldi verið
frestað og hún
haft mun minna
að gera en
vanalega. Hún
uppgötvaði að
síðustu tuttugu
árin hefur hún
verið undir gríð
arlega miklu
vinnuálagi og
vart tekið sér
frí. FRÉTTABLAÐIÐ/
ERNIR
Sigríður Inga
Sigurðardóttir
sigriduringa@frettabladid.is
þetta koll af kolli en alls eru 45
konur í kórnum. Þær voru allar svo
glaðar að sjást, en í þessu ástandi
finnur maður nýjar leiðir til að láta
hlutina ganga,“ segir Margrét.
Æfingar og undirbúningur fyrir
jólatónleika kórsins eru í fullum
gangi en ekki er enn ljóst hvort eða
hvernig þeir fara fram. „Kannski
verðum við með tónleika, kannski
ekki. Ef til vill skiptum við okkur
í hópa og syngjum fyrir utan
hjúkrunarheimili til að láta gott af
okkur leiða. Það kemur bara í ljós.
Ég er ánægð og þakklát fyrir hvað
kórfélagar hafa verið duglegir að
mæta í vetur, þrátt fyrir allt. Svo
vorum við með svakalegan pepp
fund á Zoom um daginn. Stjórn
kórsins tók sig þá til, keypti litlar
freyðivínsflöskur og bollakökur
og keyrði út til allra kórfélaga. Við
klæddum okkur allar upp á, ég fór
meira að segja í einn af Frostrósar
kjólunum mínum, og við áttum
saman góða stund í gegnum netið,“
segir Margrét brosandi.
30 ára söngafmæli 2021
Á næsta ári fagnar Margrét því að
þrjátíu ár eru frá því að söngferill
inn komst á f lug og hún varð lands
þekkt söngkona. „Það er ótrúlegt,
miðað við hvað ég er ung,“ segir
hún og skellihlær.
„Ég bar sigur úr býtum í Söng
keppni framhaldsskólanna árið
1991. Í kjölfarið fór ég að syngja
með hljómsveit og fljótlega var ég
komin á kaf í sönginn. Ég ætlaði
ekki að verða söngkona heldur var
draumurinn að verða leikkona.
Ég fór til Boston að læra leiklist og
Musical Theater, og var við nám í
fjögur ár og bætti síðar tveimur
árum við. Ég hef sungið í fjöl
mörgum söngleikjum, nú síðast í
Mary Poppins og Vesalingunum.
Stundum sakna ég þess að vinna
í leikhúsi en það er sannarlega
töfrandi heimur,“ segir Margrét.
Næstu mánuðina ætlar hún
að halda áfram að kenna söng og
stjórna kórnum en gæta þess að
vinna ekki of mikið. „Ég vil líka
einbeita mér að því að syngja og
sinna mínum söngferli. Ég hef
lent í því að kenna of mikið og átti
ekkert eftir fyrir sjálfa mig og það
var ekki góður staður að vera á.
Undanfarið hef ég lært að standa
með sjálfri mér og ætla að vera
duglegri við það. Ég er orðin 48 ára
og ætla að syngja í fjörutíu ár í við
bót,“ segir söngdívan Margrét Eir
að lokum.
Framhald af forsíðu ➛ Undanfarið hef ég
lært að standa með
sjálfri mér og ætla að
vera duglegri við það. Ég
er orðin 48 ára og ætla að
syngja í fjörutíu ár í
viðbót.
2 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 2 7 . N ÓV E M B E R 2 0 2 0 F Ö S T U DAG U R