Fréttablaðið - 27.11.2020, Page 42
Hjá mér er alltaf í
forgangi að finna
bestu gjöfina fyrir hvern
og einn af mínum nán-
ustu.
Sandra Guðrún
Guðmundsdóttir
sandragudrun@frettabladid.is
Caroline er upprunalega frá Frakklandi en flutti til Íslands fyrir tveimur og hálfu
ári ásamt fjölskyldu sinni. Hún
segir að afsláttardagar eins og
Black Friday hafi ratað til Frakk-
lands og verði sífellt fyrirferðar-
meiri þar í landi.
„Deginum þar í ár hefur meira
að segja verið frestað þar af því að
þar er útgöngubann og verslanir
lokaðar,“ segir hún.
Caroline segist sjálf ekki fylgjast
sérstaklega með afsláttardögum
eða bíða eftir þeim þegar hún
kaupir jólagjafir.
„Hjá mér er alltaf í forgangi að
finna bestu gjöfina fyrir hvern
og einn af mínum nánustu. Ég
gef ekki margar gjafir. Bara eina
á mann og ég hugsa frekar um
gæðin en verðið. Auðvitað tek ég
líka eftir verðinu svo ég sé ekki að
sóa peningum, en mér er oft sama
þó ég borgi meira ef gjöfin hentar
fullkomlega.“
Í Frakklandi byrjar fólk yfirleitt
ekkert að hugsa um jólin fyrr en í
desember að sögn Caroline og hún
er ekki byrjuð að kaupa jólagjafir
eða undirbúa jólin enn þá.
„Við kaupum yfirleitt gjafir og
skreytum húsið okkar og jólatréð
nokkrum vikum fyrir jól en ekki
svona mikið eins og á Íslandi. Ég er
þess vegna hissa á þessari íslensku
venju að byrja að undirbúa jólin
snemma í nóvember. En ég verð
að viðurkenna að þetta er mjög
glaðleg og skemmtileg hefð.“
Verslum í heimabyggð til að
styðja við litlu fyrirtækin
Aðspurð hvort hún hafi eitthvað
breytt kauphegðun sinni á þessum
óvenjulegu tímum sem við erum
öll að ganga í gegnum, svarar
Caroline að henni finnist sér-
staklega mikilvægt að versla við
lítil fyrirtæki sem mörg berjast í
bökkum núna.
„Mér finnst að við ættum að
versla minna á netinu og reyna að
versla meira í heimabyggð til að
styðja litlu fyrirtækin eins vel og
við mögulega getum. Þannig að á
þessu ári ætla ég að gera mitt besta
til að kaupa hluti framleidda á
Íslandi, eins og lopapeysur, skart-
gripi og snyrtivörur.“
Caroline segir að bestu kaupin
sem hún hafi gert á Íslandi hafi
verið í sumar þegar fjölmörg góð
tilboð voru á gistingu.
„Við vorum svo heppin að geta
gist á fallegum stöðum fyrir lítinn
pening, stöðum sem við hefðum
venjulega ekki haft efni á að gista
á. Til dæmis á Panorama Glass
Lodge rétt hjá Hellu, sem er mjög
góður staður að gista á.“
Caroline, sem rekur hönnunar-
stúdíóið Bonjour, hefur tekið eftir
því í gegnum sína eigin viðskipta-
vini að fólk er orðið meðvitaðra
um að skapa gott andrúmsloft
heima hjá sér nú þegar margir
vinna heima.
„Fólk er að óska meira eftir
litum og vill síður hafa allt svart-
hvítt. Ég held að það að vinna
heima hjálpi fólki að átta sig á
því að smá breytingar heima
geta aukið mjög á þægindi og
hamingju. Ég hef selt mikið af
þægilegum sófum og fólk óskar
meira eftir ullarteppum, litríku
veggfóðri og alls kyns ljósum og
kertum en áður. Það hefur aldrei
áður verið eins mikilvægt að fjár-
festa í eigin heimili.“
Caroline hefur sjálf fært
vinnuna sína nær heimili sínu á
Álftanesi en áður var hún með
stúdíóið sitt í miðbænum.
„Það er besta ákvörðun sem ég
hef tekið. Bæði vegna sjálfrar mín
og fjölskyldunnar, því núna er ég
meira til taks fyrir börnin mín, en
líka vegna viðskiptavina minna.
Nú tek á á móti þeim á hlýlegu
heimili með svolítilli sveitastemn-
ingu. Þeir hafa allir minnst á hvað
útsýnið er fallegt og það sitja allir
lengi og spjalla við mig með te eða
kaffi. Svo þökk sé COVID er ég að
bjóða upp á betri þjónustu fyrir
viðskiptavinina. Þessir skrýtnu
tímar hafa því orðið að einhverju
mjög jákvæðu fyrir mig.“
Fengu ódýra gistingu
á fallegum stöðum
Innanhússhönnuðurinn Caroline Cheron fylgist ekki mik-
ið með afsláttardögum en fylgist þó með verðlagi. Hún
var ánægð með afslætti á gistingu innanlands í sumar.
Caroline leggur áherslu á gæði umfram verð og vandar valið á því sem hún
kaupir. Í sumar nýtti hún sér afslætti á gistingu innanlands. MYND/AÐSEND
Fallegar gersemar
Vefverslun og sölustaðir á oskabond.is
í jólapakkann hennar
BLACK FRIDAY TILBOÐ Á VEFVERSLUN OSKABOND.IS
SVARTIR
DAGAR
27. nóv. - 2. des.
25%
afsláttur
af allri vöru í versluninni
Laugavegi 178 | Sími 555 1516
Opið: Virkir dagar 11-18 | Laugardagar 11-15
Kíkið á myndir og verð á Facebook
4 KYNNINGARBLAÐ 2 7 . N ÓV E M B E R 2 0 2 0 F Ö S T U DAG U RSVARTUR FÖSTUDAGUR