Fréttablaðið - 27.11.2020, Side 46
æðinu á föstudagsmorgni gripum
við konu sem var að troða frosnum
humarhölum ofan í buxurnar sínar.
Hún tók umbúðirnar utan af og
henti þeim á dekkjahrúgu sem var
þarna til sýnis.“
Blóðþyrsta móðirin
Sumar sögurnar eru beinlínis ógn-
vekjandi. „Á síðasta ári beindi ég
konu sem var í leit að dóti óvart í
vitlausa átt í mannhafinu sem hafði
myndast. Ég áttaði mig fljótlega á
mistökunum, hljóp á staðinn þar
sem Dóru-dúkkurnar voru, greip
eina og labbaði svo um búðina
þar til ég fann konuna. Í einfeldni
minni bjóst ég við að fá einhvers
konar þakkir og asnaðist til að
staldra við ögn lengur en ég hefði
átt að gera. Konan greip í handlegg-
inn á mér, dró mig aðeins of nálægt
sér, brosti og sagði: „Það er eins gott
að þú komast aftur.“ Svo benti hún
með hökunni niður að handtösk-
unni sinni svo ég gæti rétt séð glitta
í handfangið á skammbyssu áður
en ég færði mig snögglega frá henni
og hún bætti við: „Vegna þess að ég
var að fara að leita að þér!“ Svo gekk
hún blóðþyrst til baka í röðina þar
sem börnin hennar höfðu verið frá
því að búðin var opnuð.
Einn notandinn kveðst hafa
upplifað allar verstu hliðar mann-
skepnunnar en tekst þó að minnast
á eitt jákvætt við þetta allt saman.
„Ekkert sérstök saga en að vinna í
átján tíma samfleytt er martröð út
af fyrir sig. Fólk hefur hent hlutum í
mig, rifið hluti úr höndunum á mér
sem voru ætlaðir öðrum, stolið og
brotið hluti, notað mátunarher-
bergi sem salerni, ælt og liðið út af í
verslunum sem ég hef unnið í. Það
jákvæða er þó að ég er alltaf með
skrefamæli og labba allt að 13-16
kílómetra á Svörtum föstudögum
svo ég get réttlætt það fyrir mér að
belgja mig út á þakkargjörðarhátíð-
inni.“
Inn á milli leynast þó sögur sem
hægt er að hugga sig við. „Mjög
sorglegt. Ég fór á miðnæturút-
gáfu á Wii í Walmart. Við fengum
úthlutað númeri og allir sátu bara í
stólum og slökuðu á. Einn gaurinn
var með rafal í bílnum sínum og
leiddi framlengingarsnúru þangað
sem við sátum. Svo stillti hann
upp fartölvunni og kveikti á litlum
myndvarpa. Allir sátu bara saman,
horfðu á bíómyndir, fengu sér
poppkorn, mat og drykki. Þetta var
frábært og mér þykir það dapurlegt
að þetta sé svona einstakt tilfelli.“
Sem betur fer hafa ekki borist
margar sögur af hegðun fólks af
þessu tagi á stórútsölunum hér á
landi. En það er ágætt að hafa þetta
í huga og sýna náunganum og þá
sérstaklega starfsfólki verslana
sérstaka tillitssemi og virðingu
þegar örtröð myndast. Þá þarf auð-
vitað núna í ár fyrst og fremst að
gæta fjarlægðar og fara eftir öllum
sóttvarnafyrirmælum samvisku-
samlega. Svo er í mörgum tilfellum
hægt að versla á netinu og tilvalið
að notfæra sér það.
Hjördís Erna
Þorgeirsdóttir
hjordiserna@frettabladid.is
Á heimasíðunni Reddit má finna fjöldann allan af sögum frá starfsfólki versl-
ana sem hefur orðið vitni að eða
lent í viðskiptavinum sem svífast
einskis til að fá vörur á afslætti.
Sögurnar eru margar skondnar og
skringilegar en aðrar hreint út sagt
óhugnanlegar.
Lygilegar uppákomur
Einn notandi segir frá óvæntri
atburðarás. „Á námsárum mínum
þegar ég var blankur var ég að
vinna í Walmart þegar það braust
út slagur vegna hjóls. Hnefar hófust
á loft og blóðið rann. Á endanum
náði einn gaurinn taki á hjólinu,
tókst að færa sig frá hópnum, svo
settist hann á hjólið og hjólaði á
flótta undan þvögunni. Án þess að
greiða fyrir hjólið.“
Enginn virðist ónæmur fyrir
brjálæðinu sem runnið getur á fólk
á stórútsölum. „Ég vann í Radio
Shack í ár á meðan ég var í mennta-
skóla. Þegar Black Friday skall á var
ein af útsöluvörunum vasareiknar
sem kostuðu vanalega tíu dollara
en þarna var búið að lækka verðið
niður í fimm dollara. Tvær blíðlegar
eldri konur komu inn í búðina
að leita að þeim. Þegar ég sagði
þeim að það væri bara einn eftir,
þá byrjaði ballið. Þetta var eins og
öldrunar-hjólaskauta-rallý – án
hjólaskautanna. Amman sem laut í
lægra haldi kallaði hina „andskot-
ans tík“ þar sem hún stóð í röðinni
og ríghélt í verðlaunin sem voru
andvirði fimm dollara. Ég sá alltaf
fyrir mér einhvern krakka að opna
gjafirnar á jólunum og fá þennan
heimskulega vasareikni án þess
að vilja hann í rauninni, algjörlega
ómeðvitaður um söguna að baki,
á meðan amma hans sat og sötraði
te, með sigrihrósandi glampa í
augunum.“
Annar notandi greindi frá þegar
hann varð vitni að því þegar kona
gerðist óþægilega kræf. „Þegar ég
vann í Sam’s Club, í miðju brjál-
Ömmuslagur og humarhalar
í brókum á svörtum degi
Þjónustustörf geta verið einstaklega krefjandi og á það sennilega aldrei betur við en á stórum út-
söludögum í Bandaríkjunum. Starfsfólkið hefur skondnar sögur að segja frá þessum svarta degi.
Mannmergð á Black Friday í New York í Bandaríkjunum árið 2011. Varla
verður svona mikil traffík í verslunum í dag, trúlega færist æðið yfir á netið.
Þegar Walmart
í Danvers var
opnað klukkan
fimm að morgni
árið 2005 hafði
fjöldi fólks
beðið í röð í
nístingskulda
frá miðnætti.
Þegar fólk sem
var nýmætt á
staðinn ruddist
fyrir framan
þá sem beðið
höfðu brutust
út slagsmál
og lögreglan
var kölluð á
svæðið. FRÉTTA-
BLAÐIÐ/GETTY
Svartur föstudagur!
Grettislaug okkar vinsælasti pottur
ásamt einangruðu loki á
frábæru tilboði, aðeins 259.000 kr.!
Auðbrekku 6 - Kópavogi - Sími 565 8899 - normx@normx.is
Íslenskframleiðsla í yfir 35 ár!
Tilboðin gilda aðeins föstudaginn 27. nóvember!
Háfur m/lengjanlegu skafti
Áður 5.900 kr.
Nú 4.425 kr.
Frábær pottabursti
Áður 7.900 kr.
Nú 5.925 kr.
Hitamælir, öndin vinsæla
Áður 2.500 kr.
Nú 1875 kr.
Fullt verð 328.400 kr.
Nú aðeins 259.000 kr.
Þú sparar 69.400 kr.
-25% -25% -25%
8 KYNNINGARBLAÐ 2 7 . N ÓV E M B E R 2 0 2 0 F Ö S T U DAG U RSVARTUR FÖSTUDAGUR