Fréttablaðið - 27.11.2020, Síða 82
SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Gústaf Bjarnason gustaf@frettabladid.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5050:
Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson, hlynur@frettabladid.is , Sigfús Örn Einarsson sigfus@frettabladid.is, Örn Geirsson orn.geirsson@frettabladid.is
FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI 550 5077: Atli Bergmann atli@frettabladid.is, Arnar Magnússon arnarm@frettabladid.is, Jóhann Waage johannwaage@frettabladid.is, Jón Ívar Vilhelmsson
jonivar@frettabladid.is, FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir elin@frettabladid.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 550 5056: Hrannar Helgason hrannar@
frettabladid.is, Viðar Ingi Pétursson vip@frettabladid.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 550-5055: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@frettabladid.is
UMBOÐSMAÐURINN
OKKAR, SEM VAR
BÚINN AÐ VERA EDRÚ Í TUTT-
UGU ÁR, HANN FÉLL Í ÞESSARI
FERÐ.
Þetta er þrusuplata. Við erum alveg með eina rokkstjörnu í bandinu líka vegna þess að Jenni í Brainpolice var söngv-ari í þessu bandi,“ segir
Baldvin Z, trommari og einn stofn-
enda hljómsveitarinnar Toymach-
ine, um plötuna Royal Inbreed sem
kemur á vínyl 4. desember, tveimur
áratugum á eftir áætlun.
„Það er voða gott að hafa alvöru
söngvara í svona hljómsveit,“ heldur
Baldvin áfram en auk hans og Jens
Ólafssonar spila þeir Atli Her-
geirsson og Kristján Örnólfsson á
plötunni sem verður aðgengileg á
Spotify eftir áramót.
Platan inniheldur tíu lög sem
voru samin á árunum 1998-2001
en koma nú út í nýjum upptökum,
tveimur áratugum of seint þar
sem rokkstjörnudraumurinn bar
strákana ofurliði á sínum tíma og
bandið leystist upp áður en platan
var tilbúin.
„Eitt lag er byrjað í spilun á X-inu
þannig að þetta er voða gaman fyrir
okkur,“ segir Baldvin sem er þekkt-
ari sem leikstjóri kvikmyndanna
Vonarstræti og Lof mér að falla en
sem rokkstjarna.
„Ég var trommari í þessu bandi og
var reyndar líka alltaf í kvikmynda-
gerð áður en ég stofnaði hljómsveit-
ina en svo hélt ég bara áfram í því
þegar bandið leystist upp og hélt
mig við það.“
Svaka tækifæri
Toymachine kom fram á fyrstu Ice-
land Airwaves- hátíðinni í f lugskýli
4 á Reykjavíkurflugvelli árið 1999
og var í kjölfarið boðið til Banda-
ríkjanna þar sem þeir spiluðu á
hinum goðsagnakennda klúbbi
CBGB’s í New York.
„Við semsagt spilum í f lugskýli
4 og fáum þetta svaka tækifæri í
Ameríku eftir það, gigg sem bara
einhver fimm bönd voru valin inn
á og það var bara allt að gerast hjá
þessari hljómsveit.
Nítján ára gaurar bara skelltu sér
til Ameríku í tíu daga og þessi ferð
hún bara fokkaði okkur alveg upp,“
segir Baldvin og hlær þegar hann
rekur upphaf langrar eyðimerkur-
göngu plötunnar. „Þetta er bara
svona fyndin Almost Famous-saga,
eftir á að hyggja sko.“
Fall í draumi falið
Umboðsmaðurinn okkar, sem var
búinn að vera edrú í tuttugu ár,
hann féll í þessari ferð og bróðir
minn, sem fór með til að halda utan
um þetta, fékk taugaáfall og ég veit
ekki hvað.
Þetta var alveg … það tók okkur
hljómsveitina alveg fjórtán ár að
setjast niður og ræða þessa ferð.
Það fylgdi þessu alveg uppgjör. Við
komumst ekkert yfir þessa ferð og
allt sem gerðist. Bandið einhvern
veginn sprakk.“
Rokkararnir þagna
Baldvin segir vinnuna við fyrstu
plötu sveitarinnar hafa verið í full-
um gangi þegar hún leystist upp.
„Við vorum bara á fullu að æfa og
taka upp demó og gera klárt og þá
bara… og þetta varð alveg til þess að
sumir meðlimir töluðu ekki saman
í mörg ár á eftir og eitthvað svona.“
Hljómsveitin hefur því lítið sem
ekkert spilað í þessi tuttugu ár. „En
svo bara urðum við aftur vinir og
héldum tónleika 2015 á Akureyri og
það var bara ógeðslega gaman sem
varð til þess að við höfum spilað
í brúðkaupum og afmælum vina
okkar og einhverjum svona litlum
uppákomum hér og þar.
Þannig að við höfðum ekkert
spilað neitt af viti áður en við fórum
í stúdíóið og tókum bara þrettán
tíma æfingu helgina áður og unnum
plötuna svo bara á sex dögum.“
Í upphafi skyldi Airwaves skoða
Airwaves er mikill örlagavaldur í
dramasögu hljómsveitarinnar. Þar
byrjaði ævintýrið fyrir aldamót og
svo aftur þegar Toymachine kom
fram á Iceland Airwaves 2018 á 20
ára afmæli hátíðarinnar.
Baldvin segir að niðurstaða
strákanna eftir þá tónleika hafi í
raun einfaldlega verið: „Ókei, gerum
þessa plötu,“ og þeir hafi fundið
þörfina fyrir að klára þetta ein-
hvern veginn.
„Þannig að við bara settum Karo-
lina Fund af stað og söfnuðum fyrir
plötu og fórum í stúdíó í sumar og
gerðum þetta. Og erum ógeðslega
glaðir,“ segir trommari björtustu
vonarinnar á Íslensku tónlistar-
verðlaununum tuttugu árum síðar
þegar fyrsta platan er loksins að
koma út.
toti@frettabladid.is
Platan sem aldrei
kom út er væntanleg
Strákarnir sem stofnuðu hljómsveitina Toymachine 1996 ætluðu
sér stóra hluti en fall, rokkstjörnudraumar og taugaáfall sprengdu
bandið þannig að fyrsta platan er nú að koma út 20 árum of seint.
Árni Elliott, Jenni, Atli Hergeirsson, umboðsmaðurinn Guðmundur Cesar,
sem er látinn, Kristján Örnólfsson og Baldvin nýlentir í New York 1999.
Baldvin Z mættur aftur á Airwaves þegar Toymachine tróð upp á sérstakri afmælisdagskrá. MYNDIR/AÐSENDAR
Frí
heimsending
innanlands á
öllum bókum
á forlagid.is
27.–30. nóv.
LANDSINS MESTA ÚRVAL BÓKA
Bókabúð Forlagsins | Fiskislóð 39 | www.forlagid.is
2 7 . N Ó V E M B E R 2 0 2 0 F Ö S T U D A G U R64 L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð