Íslenskar landbúnaðarrannsóknir - 01.09.1971, Síða 6

Íslenskar landbúnaðarrannsóknir - 01.09.1971, Síða 6
4 ÍSLENZKAR LANDBUNAÐARRANNSÓKNIR kaldþurrkaðs heys. Ekki kom fram mikill munur á verkun heysins. Efnatapið reynd- ist nokkru minna við ylþurrkun, væri veð- urfar óhagstætt til þurrkunar. í góðu tíðar- fari var munurinn svo til enginn. I þess- um tilraunum var miðað við, að lofthitinn við ylþurrkunina færi ekki yfir 25° C. Dijkstra og Philipsen telja aðalkost yl- þurrkunarinnar vera þann, að hægt er að hirða nokkru blautara en þegar urn kakl- þurrkun er að ræða. Dijkstra (1970) greinir frá tilraunum með fóðrun mjólkurkúa á ylþurrkuðu og kaldþurrkuðu heyi. í ljós kom, að enginn munur var á fóðurgildi heysins né heldur nythæð kúnna á milli samanburðarflokk- anna. Danskar tilraunir frá árunum 1958—1965 leiddu í Ijós, að þurrefnistapið við þurrkun og geymslu var um 12% niinna við ylþurrk- un en við súgþurrkun með köldu lofti (Winther et al. 1970). Kostnaðurinn við ylþurrkunina var hins vegar um 43% meiri en við kaldþurrkunina. Loftið var hitað upp um 5 til 10° C. Telja höfundarnir, að ylþurrkunin eigi einkum rétt á sér, þar sem erfitt er að forþurrka heyið nægilega vel úti fyrir hirðingu (<40% rakastig). Fleiri hafa bent á, að ylþurrkunin dregur úr efnarýrnun og leiðir til betri verkunar heysins en kaldþurrkun (Beckhoff 1965). Á árunum 1960—1962 og 1964 voru gerð- ar tilraunir nteð ylþurrkun á heyi í súg- þurrkunarhlöðu á vegum Verkfæranefndar ríkisins og Tilraunaráðs búfjárræktar. l’il- gangur þessara tilrauna var að kanna áhrif ylþurrkunarinnar á verkun heysins og fóð- urgildi, svo og að kanna þurrkunarkostnað heysins. RANNSÓKNAREFNI OG AÐFERÐIR í skýrslum Verkfæranefndar ríkisins nr. 7 (1961), nr. 9 (1963) og nr. 11 (1965) hefur verið gerð grein fyrir framkvæmd tilraun- anna, og verður það atriði því aðeins rakið rnjög lauslega hér. Árin 1960—1962 var gerður samanburður á súgþurrkun nreð köldu lofti og upphit- uðu lofti. Var loftið hitað upp allan sólar- hringinn. Þessu atriði var breytt í tilraun- inni árið 1964. Þá var upphitunin aðeins miðuð við þær stundir sólarhringsins, þegar rakastig útiloftsins fór yfir 75%. Eins og áður var súgþurrkun með köldu lofti höfð til samanburðar. Var kalda súgþurrkunin látin ganga nær stöðugt til þess að forða hitamyndun í heyinu. Tilraunirnar voru gerðar á Hvanneyri og voru framkvæmdar í tveimur hlöðum, sem hvor um sig eru 64 m2 að flatarmáli. Súg- þurrkunarkerfin í báðum hlöðum, svo og 1)1 ásarar, eru eins að allri gerð. Við 3—4 m háa heystæðu er lofthraðinn upp úr stæðu 6,0—6,5 cm/sek. í báðum hlöðum. Árin 1960—1962 var loftið hitað upp með olíukynditæki, sem Guðmundur Jóhannes- son, ráðsmaður á Hvanneyri, smíðaði. Orkunýting tækisins var góð, eða um 90% (Verkfæranefnd ríkisins 1957). Árið 1964 var notað Bacho olíukynditæki af gerðinni VTA 60 (Verkfæranefnd ríkisins 1965). Var olíunýting tækisins góð. Við hirðingu var heyinu blásið inn í hlöðurnar og sitt hlassið jafnan látið í hvora hlöðu, þannig að sams konar hey var látið í báðar hlöðurnar. Á meðan á þurrk- un stóð, voru gerðar mælingar á hita- og rakastigi útilofts, upphitun og fleiri þáttum, er varða þurrkun heysins. Til ákvörðunar á efnatapi var ákveðið þurrefnismagn vegið í netpoka og þeir lagð- ir eftir vissu kerfi í heystæðurnar. Er pok- arnir komu í Ijós að vetri, var þurrefnis- magnið í þeirn mælt. Efnatapið var síðan fundið sem mismunur á innlátnu og út- teknu efnamagni. Að meðaltali liðu um sjö mánuðir frá því pokarnir voru lagðir í stæðu og þar til þeir komu í leitirnar að vetri, og var þurrefnismagnið í pokunum mælt fljótlega eftir það. I.oks voru tekin

x

Íslenskar landbúnaðarrannsóknir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íslenskar landbúnaðarrannsóknir
https://timarit.is/publication/1499

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.