Íslenskar landbúnaðarrannsóknir - 01.09.1971, Qupperneq 60
58 ÍSLENZKAR LANDBLINAÐARRANNSÓKNIR
dreifingaraðferðir köfnunarefnisáburðar,
þar sem ekki var unnt að benda á mark-
tækan mun, á milli þeirra, að því er varðar
samband þroskastigs og próteínmagns upp-
skerunnar.
Línur allra áranna liggja fremur þétt
saman. Einna helzt er það línan fyrir árið
1968, sem sker sig úr. Um aðalsprettutím-
ann það ár, þ. e. júlí, var hlýtt í veðri. í er-
lendum heimildum hefur verið bent á, að
hitastigið á sprettutíma hafi áhrif á pró-
teínmagn grasa (Homb 1952; Kivimáe 1959).
Til þess að kanna áhrif hitastigsins var því
reynt að taka meðalhitann um aðalsprettu-
tímann með sem breytistærð ásamt þroska-
stigi grasanna. Með aðalsprettutíma er átt
við það tímabil, sem sláttutímar fyrri slátt-
ar falla á (júlímánuður í 5 af 6 árum). Sam-
bandi þáttanna má lýsa með eftirfarandi að-
hvarfslíkingu:
y = 10,81 -e- 0,24 • xi + 0,93 • x2
(R = 0,89 P<0,01)
y = próteín, % af þurrefni,
xi = þroskastig, dagar,
x2 = meðalhiti aðalsprettutíma, °C.
Próteínmagn grasanna fellur um 0,24%
á dag, það er um 1,7% á viku. Er það mjög
svipað og Homb (1952) og Kivimáe (1959)
hafa komizt að við rannsóknir á vallarfox-
grasi í Noregi og Svíþjóð. Líkingin sýnir
einnig, að einnar gráðu hækkun meðalhita
um aðalsprettutímann hefur í för með sér
tæplega 1,0% hækkun á próteínmagni gras-
anna.
í hlýviðri taka plönturnar fyrr út líf-
eðlislegan þroska sinn en á köklum sprettu-
tíma (Vik 1955). Blaðmyndunin gengur
hlutfallslega hægar en þroski plantnanna,
TAFLA 10 -TABLE 10
Uppskera af próteíni, kg/ha, í tilraun nr. 167—65. Meðaltal 5 ára
Yielcl, of crude protein, in kg/ha, in experiment no 167—65. 5 year average
Timi á milli slátta T ime bctween cuts I 120 kgN/ha — borið á í einu lagi. I 120 kgN/ha — applied in spring. 11 80 + 40 kgN/ha — tvískipt. II 80 kgN 1 ha applied in spring. 40 kgN/ha — applied after first cut.
Vikur Weeks Fyrri sl. First cut Seinni sl. Second cut Alls Total Fyrri sl. First cu t Seinni sl. Second cut Alls Total
Slegið snemma 7 441 240 681 395 303 698
Cut before shooting 9 371 272 643 336 318 654
Slegið, er grös skríða 7 577 128 705 487 191 678
Cut at shooting time 9 563 128 691 451 189 640
Slegið seint 7 603 60 663 538 114 652
Cut befor floiuering 9 618 53 671 531 102 633