Íslenskar landbúnaðarrannsóknir - 01.09.1971, Side 13

Íslenskar landbúnaðarrannsóknir - 01.09.1971, Side 13
SÚGÞURRKUN HEYS MEÐ YLJUBU LOFTI 11 hitun, á meðan hitunartækið var í notkun, reyndist vera 12,8° C. Gengið er út frá sarna verði á olíu og rafmagni og við gerð töflu 2. Þurrefnistapið var ákvarðað með poka- aðferð þeirri, sem áður er lýst. Tafla 7 greinir frá niðurstöðum mælinganna. Við stærðfræðilegt mat á þessum niður- stöðum kom í ljós, að ekki var marktækur munur á milli þurrkunaraðferðanna, að því er varðar þurrefnistap (P > 0,05). Svo sem fram kemur í töflu 6, var heyið illa þurrt, er það var hirt (rakastig ~ 50%). Er þetta vafalaust ástæðan til þess, að þurr- eínistapið við kaldþurrkunina varð svo hátt. Meðalfrávik þurrefnistapsins er einnig hátt, og bendir það til ójafnrar verkunar heysins. Er þetta í samræmi við niðurstöð- urnar frá árinu 1961, en þá tókst verkun heysins í kaldþurrkuninni rniður vel. Það ár var heyið einnig mjög illa þurrt við hirð- ingu. Veðurfar á tilraunaskeiði 1964 var óhag- stætt til heyþurrkunar (sbr. töflu 1). Þurrk- unargeta útiloftsins var rúmlega 25% minni á tilraunaskeiðinu 1964 en á árunum 1960— 1962. Þetta kemur þó ekki fram á afköst- um súrþurrkunarinnar, sem voru að meðal- tali 12,9 kg vatns á klst. árin 1960—1962, en 13,0 kg vatns á klst. árið 1964. Skýring- in á svo miklum afköstum köldu súgþurrk- unarinnar þetta ár er hugsanlega sú, að það ár hafi varmamyndun i heyinu orðið óeðlilega mikil, sökum þess hve heyið var hirt illa þurrt. Við svo hátt rakastig, sem hér um ræðir, má búast við, að allt að 30% af varmamagni því, sem þarf til þurrk- unarinnar, komi frá heyinu sjálfu, ef súg- þurrkað er með köldu lofti (Bjarni Guð- mundsson 1972). Elið háa þurrefnistap, sem mældist við kaldþurrkunina árið 1964, bend- ir einnig til þess, að varmamyndun hafi orðið talsverð, en ekki liggja fyrir beinar mælingar, er styðja þá tilgátu. Þurrefnistapið við ylþurrkunina þetta ár varð nokkru minna en meðaltap þurrefnis í sama tilraunalið árin 1960—1962. Þessu s Q 3: Q ÍS 20 10 0 20 10 ° 10. ' 20. ' 30. 5. júli agúst r 10. 20. 30. júli 31. 10. 20. 30. ágúst 1960 1961 1962 1. mynd. Vatnsmagn í heyi við hirðingu 1 lilöðu (upphitað loft). Fig. 1. Loading rate (barn drying with pre- heated air) expressed by the relation between the water quantity in hay (tons) and the time of loading, 1960—1962. til skýringar má geta þess, að árið 1964 var jafnan hirt lítið heymagn í einu, en oft að sama skapi. Meðalvatnsmagn, sem hirt var með heyi í ylþurrkunina í einu, var 3,8 tonn. Niðurstöður tilraunarinnar benda til þess, að tímabundin upphitun jiurrklofts- ins liafi aukið hagkvæmni þurrkunarinnar samanborið við það að liita loftið upp all- an sólarhringinn. í þessari tilraun fylgdist afkastaaukning súgþurrkunarinnar vegna upphitunar að við kostnaðaraukninguna, sbr. töflu 6. í tilraununum frá 1960—1962, þar sem upphitunin var notuð stöðugt, varð kostnaðaraukningin hins vegar 40—

x

Íslenskar landbúnaðarrannsóknir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íslenskar landbúnaðarrannsóknir
https://timarit.is/publication/1499

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.