Íslenskar landbúnaðarrannsóknir - 01.09.1971, Page 43

Íslenskar landbúnaðarrannsóknir - 01.09.1971, Page 43
RANNSÓKNIR á vallarfoxgrasi 41 koma til greina, því að hún leiðir til hagstæðara hlutfalls milli kolvetna og próteins í grasinu. Sé heyið þurrkað á velli og í hlöðu, virðist rétt að bíða með að slá vallarfoxgrasið, þar til 7—14 dögum eftir að það skríður. Sökum lægra rakainnihalds verður þá léttara að þurrka heyið, en fóðurgildi grassins er nokkru minna en þess, sem fyrr er slegið. Þegar fyrri sláttur er sleginn þetta seint, er ekki við því að búast, að há spretti að marki. INNGANGUR Engmo vallarfoxgras hefur á síðari árum verið notað meira í grasfræblöndur en aðr- ar grastegundir. Engmo vallarfoxgras er upphaflega frá býlinu Engmo í Norður- Noregi, en komst í hendur tilraunamanna frá tilraunastöðinni Holt, sem framrækt- uðu það. Tilraunastöðin Holt er um 100 km fyrir norðan heimskautsbaug, og Engmo vallarfoxgras hefur reynzt vetrarþolið þar (Jetne 1964). Rubin túnvingull er upprunninn í Dan- mörku, en þar er túnvingull yfirleitt lítið notaður til túnræktar, en fremur í skrúð- garða, flugvelli og íþróttavelli (Andersen 1969). í sömu heimild er greint frá, að um árabil hafi fengizt gott verð fyrir túnving- ulsfræ, en það liefur aukið áhuga jurtakyn- bótamanna og fræframleiðenda á túnvingli. Dönsku kynbótamennirnir reyna aðallega að framleiða stofna af túnvingli, sem þola vel traðk og spark, en reyna ekki að fram- leiða jurt til túnræktar. Þetta skýrir nokk- uð, hvers vegna Rubin og aðrir danskir stofnar af túnvingli gefast ekki betur í tún- rækt en raun ber vitni. Þar við bætist, að uppruninn er sennilega of suðlægur fyrir íslenzkar aðstæður. Árið 1965 var liafin tilraun á Hvanneyri með áhrif sláttutíma og dreifingartíma köfnunarefnisáburðar á Engmo vallarfox- gras. Ári síðar hófst tilraun, þar sem rann- saka átti, hvaða áhrif það hefði á uppskeru og fleiri atriði, þegar blandað væri saman Engmo vallarfoxgrasi og Rubin túnvingli. Tilraunirnar voru gerðar á mýrartúni. Mýrin var ræst fram 1960, landið plægt og kýft 1963 og unnið með jarðtætara 1964 og 1965. Mýrin er fremur flöt og er 1,0—1,5 m djúp. Rúmþyngd jarðvegsins er 0,2—0,3 g/ cm3 og glæðitap 55—65%. Athygli skal vakin á því, að í grein þessari tákna tölur um fosfór og kalí í áburði og uppskeru hrein efni, P og K, en ekki sýringa efnanna, P2O3 og K2O, eins og áður liefur tíðkazt. Önnur tilraunin, sem hér er ritað um, kemur við sögu í grein Friðriks Pálmason- ar (1970) um vatnsleysanlegar sykrur í grasi. Jón Snæbjörnsson og Magnús Ósk- arsson (1970) hafa áður gert grein fyrir bráðabirgðaniðurstöðum úr sömu tilraun, að því er varðar áhrif sláttutíma á magn próteíns, kalsíums og fosfórs í uppskerunni. Loks er þess að geta, að grein hefur verið gerð fyrir áhrifum sláttutímans á rakastig grassins á grundvelli talna úr þessari tilraun (Bjarni Guðmundsson 1970). LÝSING TILRAUNA Þegar tilraunirnar, sem greinin fjallar um, voru skrásettar, hlutu þær númerin 167—65 og 199—66, sem gefur til kynna, að þær hóf- ust árin 1965 og 1966. Tilraun nr. 167—65 var skipulögð þannig: Engmo vallarfoxgrasi var sáð í tilraunina 3. júní 1964 og notað 15 kg/ha af fræi. Árið 1964 var borið á sem svaraði 80 kg/lia N, 59 kg/ha P og 83 kg/ha K. Árin 1965—1971 var grunnáburður 29,5 kg/ha P og 83 kg/ha K. Stærð tilraunareita var 4 x 8,9 = 35,6 m2. Þegar tilraunin var skipulögð, var gert ráð fyrir að slá e- og f-liði, eftir að vallarfox-

x

Íslenskar landbúnaðarrannsóknir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Íslenskar landbúnaðarrannsóknir
https://timarit.is/publication/1499

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.