Íslenskar landbúnaðarrannsóknir - 01.09.1971, Síða 52

Íslenskar landbúnaðarrannsóknir - 01.09.1971, Síða 52
50 ÍSLENZKAR LANDBÚNAÐARRANNSOKNIR háarinnar. Fylgnin reyndist allhá eða frá r = 0,76 til r = 0,98 og marktæk fyrir alla þrjá liðina (P < 0,05). Eftir fyrsta sláttutíma fyrri sláttar, sem að meðaltali var 30. júní, reyndist háarmagnið aukast um 8,8 hkg/ha við hverja °C, sem meðalhiti fyrsta mánaðar frá fyrra slætti hækkaði. Hliðstæðar tölur fyrir annan og þriðja sláttutíma, sem voru 13. og 28. júlí að meðaltali, reyndust vera 4,2 og 3,8 lrkg/ha og °C. Nýting hitans virðist bezt miðsumars, en fellur ört, er líður á sumarið, enda byrjar Engrno vallarfoxgras snemma að búa sig undir vetur, sökum liins norðlæga uppruna síns. GRÓÐURRANNSÓKNIR Árin 1965 og 1966 voru gerðar mælingar á vallarfoxgrasi úr tilraun nr. 167—65. Voru 100 sprotar af vallarfoxgrasi mældir við hvern slátt. Sproti rnerkir hér stöngul með blöðum og axi. Vallarfoxgrasið mældist hæst 7. júlí 1965 eða 77,8 cm að meðaltali. Minnst var meðal- hæð grassins við fyrsta slátt 22. júní 1966 eða 25,6 cm. Mælingar voru gerðar á liæð grasanna í tilrauninni með vallarfoxgras og túnvingul, nr. 199—66, hinn 12. júlí 1967. Niðurstöð- una má sjá á mynd 1, en Jiar kemur frarn, að meðalhæð grasanna var mest, þegar vallar- foxgrasið óx eitt sér, og þar sem túnvingull óx einn sér, var meðalhæð grasanna minnst, Þar sem vallarfoxgras og túnvingull uxu í blöndu, voru tegundirnar jafnar að hæð. Þetta má skýra þannig, að túnvingullinn hafi teygt úr sér, þar sem hann átti í baráttu við vallarfoxgrasið um ljósið. Líklega liefur túnvingullinn á einhvern liátt þrengt kost vallarfoxgrassins, svo að það náði ekki sömu hæð, þar sem það var í samkeppni við tún- vingul, og það náði í lireinrækt. Athuganir á fjölda lifandi blaða á hverj- um sprota á vallarfoxgrasi sýndu, að lifandi blöð á hverjum sprota voru flest, meðan grösin voru ung. Þegar gróðurinn hækkaði og þéttist, visnuðu neðstu blöðin vegna þverrandi birtu, og lifandi blöðum fækk- aði. Þetta hefur vafalaust mikil áhrif á efna- samsetningu grasanna. Flest voru lifandi TAFLA7 - TABLE7 Dagsetningar, þegar tilraunareitirnir voru orðnir grænir og vallarfoxgrasið skreið. Tilraun nr. 167—65 Date when the experimental fielcl turned green and ivhen Phleum pratense shooted. Experiment no 167—65 Ár Year Reitir orðnir grænir Field became green Grös að skríða Grasses shooting 1965 12. maí (May) 7. júlí (July) 1966 20. - - 7. - - 1967 28. - - 11. - - 1968 27. - - 16. - - 1969 24. - 10. - 1970 13. - 6. - 1971 10. - - 4. - -

x

Íslenskar landbúnaðarrannsóknir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íslenskar landbúnaðarrannsóknir
https://timarit.is/publication/1499

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.