Íslenskar landbúnaðarrannsóknir - 01.03.1977, Síða 7

Íslenskar landbúnaðarrannsóknir - 01.03.1977, Síða 7
RANNSÓKNIR Á VALLARFOXGRASI (ENGMO) 5 Jafnan var slegið í þurru og þegar útlit var fyrir þurrk. Veður á tilraunaskeiðum reyndist mjög breytilegt. Rigning féll í heyið í 65% tilvika; úrkomumagnið var mjög mismunandi, allt frá 0,2 mm upp í 66,0 mm. Má því gera ráð fyrir, að veðurskilyrði til þurrheysöflunar á tilraunaskeiðum hafi ekki verið mjög frábrugðin þeim, er að jafnaði þekkjast í Borgarfirði. NIÐURSTÖÐUR Við mat á niðurstöðum þessara tilrauna verð- ur einkum miðað við þær breytingar, sem verða á fóðurmagni og fóðurgildi, út reikn- að á grundvelli méltanleika þurrefnis heys- ins (in vitro). Tekið skal fram, að áður hefur verið gerð grein fyrir dálitlum hluta þessara tilrauna (Bjarni Guðmundsson, 1971). Sá þáttur, sem hvað mest áhrif virðist hafa á efnatap við hrakningu á velli, er lengd hrakningsins (x dagar). Ahrifum hans virðist mega lýsa með eftirfarandi aðhvarfs- líkingum: Tap þurrefnis y=2,19+0,87x r=0,84 Tap meltanlegs þurrefnis y=3,18+l,27x r=0,87 Rýrnun meltanlegra fóðurefna er samkvæmt þessu tæplega 1,5 sinnum meiri en þurr- efnisrýrnunin. Það, hve lágur þessi stuðull er, bendir til, að aðallega sé um að ræða magn-tap, en ekki gæðarýrnun heysins við hrakninginn. Stuðullinn (1,45) hefur svipað gildi og reiknað er með við verkun votheys (Breirem og Homb, 1970 eftir Jarl, 1952). Efnatap það, sem líkingarnar hér að ofan sýna, virðist við neðri mörk þess, sem erlend- ar heimildir herma (t. d. Banthien, 1970, Kosmos og Chestnutt, 1967 og 1968, Möller og Skovborg, 1971, Ruxton et. al., 1975). Þar kemur fram, að þurrefnistap við vallþurrkun hefur numið 1,5—4% á dag, en í innlendu tilraununum reyndist það 1—2% á dag. Skal ósagt látið, hvað mis- muninum veldur, enda hæpið, að gera megi sanngjarnan samanburð; svo ólíkar eru allar aðstæður. I ljós kom, að þroskastig vallarfoxgrass- ins við slátt hafði marktæk áhrif á efnatap við hrakning á velli: Tap þurrefnis y=7,09+0,83xi-0,15xo R=0,86 Tap meltanlegs þurrefnis y=9,11+1,22xi—0,18x2 R=0,89 xi = lengd hraknings á velli, dagar. X2= þroskastig við slátt, dagar. Vallarfoxgrasið að skríða við X2=20. Viðlíka áhrif þroskastigsins fundust í til- raunum á írlandi (Kosmos og ChestnuTT, 1968). Svo sem áður var minnzt á, fer nokkur hluti viðkvæmra plöntuhluta forgörðum við vélræna meðhöndlun heysins á velli. Þessu atriði var gefinn sérstakur gaumur í nokkr- um tilrunanna. Var það gert með þeim hætti, að tekin voru sýni við slátt og eftir þurrkun og fundið hlutfallslegt magn blaða og stöngla í þeim miðað við þurrefni. Þannig var greint á milli plöntuhlutanna, að blaðslíðrin voru Iátin fylgja stönglunum. Ut frá þessum gild- um mátti síðan reikna magn blaða og stöngla í uppskerunni við slátt og eftir þurrkun á velli. Niðurstöður athugananna má sjá á 1. mynd, en þar er sýnt samband blaðtaps (í % af heildarblaðmagni) og heildartaps, hvort tveggja miðað við þurrefni. Myndin sýnir, að drjúgur hluti blaðanna fer forgörðum, jafnvel við fremur lítinn hrakn- ing. Virðist mega ætla, að við 5% heildar- tap þurrefnis hverfi um 20% af þurrefnis- magni blaðanna. Við 10% heildartap er blaðtapið um 30%. Þetta er tilfinnanlegt
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92

x

Íslenskar landbúnaðarrannsóknir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íslenskar landbúnaðarrannsóknir
https://timarit.is/publication/1499

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.