Íslenskar landbúnaðarrannsóknir - 01.03.1977, Blaðsíða 89
THE EFFECT OF RAM ON EWE FECUNDITY 87
ÍSLENZKT YFIRLIT
Áhrif hrútsins á frjósemi œúnnar.
SVEINN HALLGRÍMSSON
Búnaðarfélagi Islands,
Bcendahöllinni, Reykjavík.
Sumir íslenzkir bændur hafa haldið því fram
að hrúturinn hefði áhrif á það hversu mörg
lömb ærin ætti. Rannsóknir Stefáns Aðal-
steinssonar (1970) sýna að slík áhrif hafa
sannast, þegar um vissar litararfgerðir er að
ræða. Einnig hafa komið fram hrútar í
Austur-Skaftafellssýslu, sem hafa sannanlega
gefið mun færri lömb en eðlilegt getur
talist (Stefán Aðalsteinsson og Sveinn
Hallgrímsson, 1977).
Rannsókn sú er hér er um fjallað var
gerð til að kanna hvort hrúmrinn hefði
áhrif á fjölda fæddra lamba hjá ám, sem hann
er notaður á. I fyrsta lagi voru könnuð
áhrif hrútsins á fjölda fæddra lamba, með
og án geldra áa og í öðru lagi voru könn-
uð áhrifin af skyldleika ærinnar og hrútsins.
Upplýsingar voru fengnar úr Sf. Þistli í
Svalbarðshreppi, N.-Þing. og Sf. Mýrahrepps,
A.-Skaftafellssýslu árin 1945—’6l. Voru
notaðar tölur frá 4 bæjum í Þistli sem allir
voru með öll árin, og tölur frá 9 bæjum
í upphafi en 13 bæjum í lok tímabilsins
hjá Sf. Mýrahrepps. Alls voru notaðar upp-
lýsingar um 12.651 burð, sem skiptust þann-
ig á flokka:
Lömb ................ 0 1 2 3
Fjöldi áa í flokki 308 6337 5972 34
Hundraðshluti % 2,43 50,09 47,21 0,27
Þar sem fjöldi þrílemba er mjög lítill var
ákveðið að sleppa þeim alveg úr rannsókn-
inni. I töflu 1 eru gefnar niðurstöður fervika-
greininga á áhrifum hrútsins á fjölda fæddra
lamba, með geldum ám og án geldra áa.
Samkvæmt fervikagreiningunni hafði hrút-
urinn engin áhrif á fjölda fæddra lamba,
hvort sem geldar ær voru teknar með eða
ekki. AUar fervikagreiningar eru gerðar inn-
an ára og bæja.
Til að kanna áhrif skyldleika ærinnar og
hrútsins var pörunum skipt í eftirfarandi
flokka:
1. Lítill eða enginn skyldleiki (minni en 12,5%)
2. Skyldleiki minnst............... 12,5%
3. — — ............... 25,0%
4. — — ................ 50,0%
Áhrifin voru nú könnuð á tvo vegu. Ann-
ars vegar var reiknaður aðhvarfsstuðull af
frjósemi ærinnar á skyldleikaflokk (1 til 4)
og fékkst b = — 0,007, þ. e. að 2,1 færri
lömb fæddust á 100 ær þegar skyldleikinn
var 50% eða meiri miðað við lítinn eða
engan skyldleika.
Svona reiknað hafði skyldleikinn ekki
marktæk áhrif á frjósemina.
Hins vegar voru áhrifin könnuð með
því að bera saman með fervikagreiningu,
frjósemina í flokk 1 (lítill eða enginn skyld-
leiki) á móti hinum þremur. Kom þá í
Ijós marktækur munur milli þessara flokka.
Niðurstöðurnar eru bornar saman við
erlendar niðurstöður um sama efni. Ymsir
höfundar hafa sýnt fram á áhrif skyldleika-
ræktar hrútsins á sæðisgæði og þar með
lambafjölda og einnig hefur verið sýnt fram
á mismunandi sæðisgæði hrúta, óháð skyld-
leikarækt, sem leitt hafa til færri lamba hjá
ánum sem þeir voru notaðir á. En þær rann-
sóknir sem gerðar hafa verið á áhrifum hrúts-
ins á frjósemi ærinnar, eins og þessi, sýna
flestar engin áhrif hrútsins, við venjulegar
aðstæður.