Íslenskar landbúnaðarrannsóknir - 01.03.1977, Blaðsíða 60
58 ÍSLENZKAR LANDBÚNAÐARRANNSÓKNIR
gamalla á fæti. Áhrif lambsburðar gemlings-
árið á gæruþunga tvævetlna voru aftur á
móti hverfandi.
b) Erfðaáhrif.
Niðurstöður útreikninga á arfgengi, erfða- og
svipfarsfylgni er að finna í 4.—-7. töflu.
Tölur þær, sem hér eru fundnar um arf-
gengi, frjósemi og afurðastig eru í ágæm
samræmi við eldri rannsóknir á þessum þátt-
um í íslenzku sauðfé (Sveinn Hallgrímsson,
1966, Stefán Aðalsteinsson, 1971, og Jón
Yiðar Jónmundsson, 1975).
Arfgengi ullarþunga áa hefur ekki áður
verið metið í íslenzku sauðfé. Niðurstöður
þær, sem hér er gerð grein fyrir, benda til,
að það sé 0.25—0.30.
Fjölmargir útreikningar hafa verið gerðir
á arfgengi ullarþunga erlendra sauðfjárkynja.
Niðurstöður þeirra útreikninga eru breyti-
legar, og nefna Turner og Young (1969)
tölur frá 0.0—0.7. Cunningham og Gjed-
rem (1970), sem birtu yfirlit yfir fjölda út-
reikninga, fundu meðaltal þeirra 0.35. Um-
fangsmestu útreikninga á þessum þætti hefur
Eikje (1975) gert á norskum sauðfjárkynj-
um. Hann fann arfgengið 0.36 metið sem
hálfsystrafylgni og 0.41 metið frá aðhvarfs-
smðli dóttur að móður. Enginn umtalsverð-
ur munur á fjárkynjum kom fram í rann-
sókn hans.
Arfgengistölurnar í 6. töflu benda til, að
ekki sé munur á arfgengi ullarþunga ánna
eftir afurðaámm. Á niðurstöðurnar í 5. töflu
um arfgengi ullarþunga vemrgamalla áa má
ekki leggja mikla áherzlu. Þeir útreikningar
ná til mjög lítils fjölda, og í öðru lagi má
ætla, að þar sé um að ræða valinn hóp að
einhverju leyti, þar sem aðeins eru teknar með
í útreikninga þær ær, sem átt hafa lamb
veturgamlar. I rannsókn sinni á arfgengi
norskra áa fann Eikje (1975) hæst arf-
gengi hjá veturgömlum ám, en lægst hjá
tvævetlum, og var munurinn á aldurshóp-
um vemlegur. Hann nefnir sem hugsanlega
skýringu ófullkomna leiðréttingu vegna áhrifa
af lambsburði ánna veturgamalla, en vegna
þeirra áhrifa var ekki leiðrétt. Eins og að
framan er greint, fundust slík áhrif í þessum
gögnum og hefur ekki verið leiðrétt vegna
8, Tafla. Samhengi milli gæruflokks lambshaustið og ullarflokks hjá ánni
tveggja vetra gamalli.
Table 8. Classificatiön of wool classes for two year old ewes in relation
to classification of lamb pelt at weaning.
Gæruflokkur lambs Pelt class as lamb Ullarflokkur - Wool class
A B C Samtals Total
A+B 346 68 5 419
C 169 150 39 358
D 73 169 195 437
Samtals Total 588 387 239 1214