Íslenskar landbúnaðarrannsóknir - 01.03.1977, Blaðsíða 57
ULLARÞUNGI ÁA 55
eru nokkur áhrif af áram í tölunum frá
Reykhólum. Óvegin meðaltöl hinna fjögurra
búanna eru sýnd á 1. mynd. Mestur ullar-
þungi er af tvæveflum. Lækkun ullarþunga
eftir tveggja vetra aldur virðist mjög regkdeg,
og má lýsa henni með eftirfarandi líkingu:
Y=3.54—0.356X-f-0.0156X2
en í líkingunni er Y ullarþungi og X áldur
ærinnar í áram. Ull af veturgömlum ám er
um 0.9 kg minni en af tvævetlum, en þriggja
vetra ærnar skila um 0.4. kg minni ull en
tvævetlurnar.
I rannsóknum á áhrifum aldurs á ullar-
þunga áa í Noregi fann Eikje (1971)
mestan ullarþunga af tveggja vetra ám, en
í Spælsau-kyninu, sem skyldast er íslenzku
sauðfé af þarlendu fé, er munur á aldurs-
flokkum nokkru minni en fundinn er hér.
I Merínó-sauðfé í Astralíu, þar sem aldurs-
áhrif á ullarmagn hafa verið rækilega könn-
uð, er ull mest af þriggja og hálfs árs göml-
um ám (Turner og Young, 1969). Merínó-
féð er sennilega mun seinþroskaðra fé en
íslenzkt sauðfé, meðferð þess állt önnur og
ullargerð mjög ólík, og er því ekki að vænta
samræmis með þessum kynjum.
Módelið, sem notað er til að kanna áhrif
umhverfisáhrifa á ullarþunga af veturgöml-
um ám, skýrði 18,67% af breytileika ullar-
þungans. Eini raunhæfi þátturinn var þó
haustþungi lambsins. Aðalhvarfsstuðullinn
fyrir ullarþunga að haustþunga var 0.0367
kg/kg.
Fjöldi lamba gemlingsárið hafði raun-
hæf áhrif á ullarþunga tvævetlna. Ull var
minni af þeim ám, sem átt höfðu lamb
gemlingar. Ær, sem höfðu gengið með tvö
lömb gemlingar, skiluðu að vísu meiri ull
en þær, sem áttu eitt lamb, en fjöldi tví-
lembdra gemlinga var svo lítill, að ekki er sá
munur marktækur. Ær, sem átt höfðu lamb
gemlingar skiluðu 0.26 kg minni ull en þær,
sem geldar voru gemlingsárið. Steine (1974)
fann 0.21 kg minni ull af ám í Noregi, sem
gengið höfðu með lambi gemlingar, en
þeim, sem geldar voru. Ahrifin af lambs-
burði gemlingsárið vora aftur á móti horfin
hjá þriggja vetra ám í hans rannsókn. I
4. Tafla Arfgengl, erfóa- og svipfarsfylgni, metið eftir aðferð I.
Arfgengi-á hornalínunni, erfóafylgnl yfir hornalínunni oq
svipfarsfýlgni undir.
Table 4. Heritability, genetic and phenotypic correlation estimated by
method I. Heritabilities on the diagonal and genetic correlations
above the diagonal.
Eiginleiki Trait Frjósemi Fecundity Afurðastig Carcass weight score Ullarþungi Fleece weight Ullarflokkur Wool class
Frjósemi 0.14+0.02 -0.30+0.10 0.29+0.10 0.06+0.11
Fecundity
Afuróastig -0.05 0.12+0.02 0.39+0.10 1 -0.58+0.07
Carcass weight score
Ullarþungi 0.01 0.02 0.19±0.03 0.28+0.09
Fleece weight
Ullarflokkur
Wool class 0.00 -0.06 -0.02 0.55 0.06