Íslenskar landbúnaðarrannsóknir - 01.03.1977, Blaðsíða 56
54 ÍSLENZKAR LANDBÚNAÐARRANNSÓKNIR
an hrúta einstök afurðaár allt að 5 vetra
áldri og tilsvarandi samvikagreining milli
ára. Greining þessi var gerð til að kanna
hugsanleg aldursáhrif á erfðabreytileika í
ullarmagni. Fjöldi mælinga að baki þessari
greiningu er sýndur í 2. töflu.
Arfgengi, erfðafylgni milli einstakra áa
og skekkjan á stuðlunum var metin á sama
hátt og gerð er grein fyrir við 1. greiningu.
IV. AÐHVARFSSTUÐULL
Arfgengi frjósemi, afurðastigs og ullarmagns
tvævetlna ásamt erfðafylgni milli þessara
eiginleika var metið frá aðhvarfsstuðli dótt-
ur að móður.
Greiningin var gerð innan feðra, og tvö-
faldur aðhvarfsstuðull dóttur að móður gefur
arfgengi eiginleikans. Skekkja arfgengisins
var reiknuð samkvæmt formúlu frá Fal-
coner (1960) og skekkja erfðafyigninnar
eftir formúlu frá Reeve (1955).
Þessi greining náði til samtals 856 móður-
dóttur para.
NIÐURSTÖÐUR OG UMRÆÐUR
a) Umhverfisþættir.
í 3. töflu er sýndur meðalullarþungi eftir
árgöngum áa á einstökum búum. Á öllum
þessum búum er hluti fjárins rúinn að vetr-
inum. Er það allt yngra féð, en misjafnt er
KG ULL
ALDUR
1. mynd. Breyting á ullarþunga áa með aldri.
Ovegin meðaltöl úr töflu. Oll bú.
Fig. 1. Variation in wool weight of ewes with age
unweighted means from table.
eftir búum og árum, hversu mikið af fénu
er vetrarrúið. Ekki verður sagt um, hver
áhrif þetta hefur á samanburð aldurshópa,
en þó má ætla, að þau áhrif séu lítil, þar
sem í tilraunum með vetrarrúning kom ekki
fram neinn munur í ullarmagni af vetrar-
rúnu og sumarrúnu fé. (Stefán AðalsTeins-
son o. fl. 1976).
Tölurnar frá Reykhólum gefa ekki rétta
mynd af aldursáhrifum, þar sem aðeins yngri
árgangar voru til þar fyrsta hluta tímabilsins
vegna fjárskiptanna árið 1961. Vegna þess
3, Tafla. Ullarþungi eftir aldursflokkum áa. Óveqin meðaltðl einstakra ára.
Table 3. Fleece weight of different age groups of ewes. Unweighted
mean of years.
BÚ Farm Aldur Age of ær , ewe, ár year
1 2 3 4 5 6 1 8 9 10
Hestur 1966-1975 2.08 2.91 2.48 2.17 2.06 1.91 1.75 1.59 1.61 1.33
Hvanneyri 1968-1975 1.89 2.83 2.48 2:19 2.14 1.95 1.80 1.59 1.29
Reykhólar 1966-1975 2.33 3.01 2.77 2.67 2.66 2.55 2.50 2.44 2.12 2.09
Skriðuklaustur 1971-1975 2.22 3.09 2.65 2.46 2.35 2.25 2.12 2.00 1.89 1.74
Hólar 1968-1975 1.94 3.01 2.58 2.29 2.03 1.90 1.74 1.67 1.57 1.49