Dagblaðið Vísir - DV - 04.12.2020, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 04.12.2020, Blaðsíða 8
BÓLUEFNIÐ ER Á LEIÐINNI Bóluefni gegn Covid-19 hefur verið þróað á mettíma. Bretar verða fyrstir í heiminum til að fá bóluefni til almennrar dreifingar. Þann 9. nóvember vöknuðu landsmenn hér heima, og víðar reyndar, við nýjan raunveruleika: góðar fréttir. Bandaríski lyfjarisinn Pfizer og þýskt líftæknifyrirtæki í Mainz tilkynntu að bóluefnið sem þau höfðu verið að þróa saman veitti vernd í um 90% tilfella, og að þau hygðust sækja um leyfi á næstu vikum. Lyf Pfizer og BioNTech var á miðvikudaginn samþykkt af breska lyfjaeftirlitinu til al- mennrar notkunar í landinu og er samþykkis einnig að vænta í Bandaríkjunum og Evrópu. Covid-19 tilfelli eru nú orð- in um 65 milljónir talsins í heiminum og dauðsföllin um ein og hálf milljón. Í Banda- ríkjunum eru þau 274 þúsund þegar þetta er skrifað, og fjölgar um þrjú þúsund á dag. Eru þá ónefndar hörmulegar efnahagslegar afleiðingar. At- vinnuleysi í methæðum um heim allan og ein dýpsta efna- hagslægð sögunnar hefur sett sitt mark á faraldurinn. Enn fremur eru ferðatakmarkanir þær sem nú eru í gildi þær ströngustu síðan þotuhreyf- illinn var fundinn upp. Bandaríska lyfjafyrirtækið Moderna hefur einnig sótt um neyðarleyfi á bóluefni sínu. Lyfjastofnun Evrópu- sambandsins hefur sagt að hún muni taka afstöðu til lyfs Pfizer ekki seinna en 29. des- ember og Moderna um miðjan janúar næsta árs. Bandaríska matvæla- og lyfjastofnunin FDA hefur áður sagst ætla að klára yfirferð yfir neyðarum- sóknir bæði Pfizer og Moderna á þessu ári. Þróun og prófun lyfsins Svo til um leið og alvarleiki SARS-Cov-19 veirunnar og Covid-19 sjúkdómsins lá fyrir hófu líftækni- og lyfjafyrir- tæki um allan heim að kort- leggja genamengi veirunnar með það að markmiði að búa til bóluefni sem framkallar sams konar svörun í ónæmis- kerfi mannslíkama og veiran, en án skaðlegra eiginleika veirunnar. Fyrstu tilraunir á virkni bóluefna í mannslíkama hófust í mars. Þegar bóluefni er kannað er ekki bara verið að rannsaka virkni efnisins og vernd gegn veirunni, heldur einnig hugs- anleg aukaáhrif. Rannsóknir af þessu tagi fara þannig fram að sjálfstæð nefnd lækna og annarra vísindamanna annast rannsóknina og aðeins hún hefur aðgang að öllum gögnum hennar. Í tilfelli rannsóknar- innar á Pfizer- bóluefninu komu 44.000 einstaklingar að henni. Helmingur þeirra fékk bóluefnið en hinn helmingur- inn lyfleysu. Aðeins eftirlits- nefndin vissi hver fékk hvað. Hvorki æðstu yfirmenn fyrir- tækisins né læknarnir sem annast sjúklingana eða sjúkl- ingarnir sjálfir vissu hvort þeir væru að fá lyfleysu eða lyfið. Niðurstöðurnar voru Heimir Hannesson heimir@dv.is Lyf Pfizer og BioNTech var á miðvikudaginn samþykkt af breska lyfjaeftirlitinu til almennrar notkunar í landinu. MYND/GETTY þær að af þessum 44 þúsund einstaklingum urðu 94 veikir af Covid. Niðurstöður þess- ara rannsókna voru sem fyrr sagði, að bóluefnið virðist veita vernd í 90% tilfella. 90% vernd er mjög mikil vernd. Til samanburðar má nefna að þröskuldurinn sem Matvæla- og lyfjaeftirlit Bandaríkjanna hafði sett fyrir samþykki við neyðarumsókn- um var 50%, og virkni bólu- efna við hinum árlegu flensum er á milli 40-60% að jafnaði. Enn sem komið er hafa engin aukaáhrif komið upp af notkun lyfsins í rannsóknum Pfizer. Hvernig virka bóluefni? Þegar ný baktería, veira eða sveppur bætist í flóru manns- líkamans mætir þeirri örveru ónæmiskerfi. Það ónæmiskerfi ræðst á þennan nýja aðskota- hlut og sendir prótein til þess að eyða ófögnuðinum. Þessi prótein eru í daglegu tali köll- uð mótefni. Með hverri nýrri „árás“ örvera lærir líkaminn að framleiða nýjar tegundir próteina, eða mótefna. Bóluefni gegn veirusmiti er byggt á erfðaefni (RNA) veir- unnar sjálfrar og er hannað til þess að kalla fram sömu svör- un líkamans eins og um væri að ræða veirusmit, án þess þó að kalla fram alvarlegar afleiðingar veirusmitsins. Þannig mun bóluefni við Co- vid-19 framkalla framleiðslu mótefna í líkamanum við veir- unni sem veldur Covid-19, án þess að sjúklingurinn sjálfur veikist af Covid-19. Í grunn- inn er þetta sama aðferð og notuð var fyrst gegn bólusótt árið 1796. Þar sem frumur ónæmis- kerfisins eru af sömu stærð í fílefldum karlmönnum og 15 ára krökkum sem verða þeir yngstu til að verða bólusettir fyrir Covid-19 verður ekki um mismunandi skammtastærðir að ræða. Samþykki – en hvað svo? Það er ekki nóg að samþykkja bóluefnin því þá á eftir að flytja bóluefnið til neytandans og sprauta því í hann. DV hefur áður sagt frá því að bóluefni Pfizer mun þurfa að flytja við -80°C. Það skapar gríðarlega mikil vandamál í flutningi efnisins, en til þess að framkalla svo mikið frost þarf ýmist miklar og þungar kælivarmadælur, eða þurrís í miklu magni. Þurrís er frosinn koltvísýringur. Í viðtali við DV fyrr í vikunni sagði Júlía Rós Atladóttir, framkvæmdastjóri Distica dreifingaraðila bólu- efna á Íslandi, að þau hefðu reynslu af því að flytja lítið magn af frosnum sýnum áður, en þetta magn hefði aldrei áður verið flutt við þessi skil- yrði hér á landi. Líklegast þykir að Ísland muni fá sendar fáar stórar sendingar af bóluefninu með flugi. Þeim sendingum þarf svo að skipta upp í fleiri smærri sendingar og koma á bólusetningastöðvar sem lík- lega verða heilsugæslur um allt land. Bóluefnið er óstöðugt nema við þessa miklu kælingu og má því aðeins vera án kæl- ingar í um tvo sólarhringa. Það er því ljóst að heilbrigðisyfir- valda og Distica bíður mikið verk að skipuleggja bólusetn- ingu og flutning bóluefnis þannig að ekkert fari til spillis af dýrmætu bóluefni. Forgangsröðun í bólusetningu Heilbrigðisráðuneytið birti í lok síðustu viku forgangs- lista fyrir bólusetningar. Í fyrstu flokkunum er fram- línustarfsfólk í baráttunni við sjúkdóminn. Starfsfólk á gjör- gæslu, Covid-göngudeildum, fólk sem sinnir sýnatökum, sjúkraflutningamenn og aðr- ir viðbragðsaðilar og annað heilbrigðisstarfsfólk. Í kjöl- farið koma eldri borgarar, fólk með undirliggjandi sjúkdóma og fólk í viðkvæmri stöðu fé- lagslega eða efnahagslega. Þá hefur jafnframt komið fram að börnum fæddum 2006 eða síðar mun ekki standa bólu- setning til boða. n Ekki verður um mismunandi skammtastærðir að ræða. 8 FRÉTTIR 4. DESEMBER 2020 DV

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.