Dagblaðið Vísir - DV - 04.12.2020, Blaðsíða 25
L ífið brosti við hinni 36 ára gömlu Maribel Ra-mos þegar hún hvarf
sporlaust vorið 2013. Sagan
gerist í Orange-sýslu í Kali-
forníu. Þar hafði Maribel
alist upp í fátækri fjölskyldu
mexíkóskra innflytjenda.
Hún skráði sig í herinn árið
2001 og þjónaði síðar á átaka-
svæðum í Írak. Maribel vann
sig upp í stöðu liðþjálfa en
lauk herþjónustu árið 2009.
Hún þjáðist af áfallastreitu-
röskun í kjölfar herþjónust-
unnar. En hún var staðráðin
í að koma lífi sínu í lag og
stefndi á störf innan lög-
reglunnar. Þar kom háskóla-
gráða sér vel og hún skráði
sig í Kaliforníuháskóla. Hún
átti skammt eftir í útskrift
þegar hún hvarf.
Maribel leigði tveggja
svefnherbergja íbúð í Orange
City en meðleigjandi hennar
var kínverskur maður á sex-
tugsaldri, Kwan Chol Joy,
ávallt kallaður KC Joy. Þau
voru nánir vinir og það var
KC sem tilkynnti um hvarf
hennar til lögreglu og var
hann mjög áhyggjufullur. Sól-
arhring síðar hafði lögregla
lýst eftir Maribel og fjöl-
skylda hennar dreifði flug-
ritum með mynd af henni.
Síðast sást til hennar
hjá leigusalanum
Maribel hafði horfið spor-
laust. Engar myndir fundust
til dæmis af henni í eftirlits-
myndavélum eftir 2. maí.
Haft var samband við fjölda
fólks sem þekkti til hennar
og enginn vissi hvar hún hélt
sig. Síminn hennar og bíl-
lyklar voru horfnir en bíllinn
var fyrir utan heimili hennar.
Inni í íbúðinni var handtaska
hennar og seðlaveski.
Eftirlitsmyndavél sýndi
Maribel fyrir utan skrifstofu
framkvæmdastjóra fjölbýlis-
hússins þar sem hún bjó en
hún var að borga leiguna.
Þetta var að kvöldi 2. maí
2013, laust eftir kl. 20. Eftir
þetta sást ekki til hennar. Það
furðulega var að hún var svo
léttklædd á myndbandinu að
erfitt var að sjá fyrir sér að
hún væri að fara að heiman.
En það virtist hún hafa gert.
Meðleigjandinn KC Joy var
mjög samvinnufús við lög-
reglu og áhugasamur um að
hún leysti málið. Hann veitti
lögreglu greiðlega leitarheim-
ild í íbúðinni og lét af hendi
snjallsíma sinn og fartölvu.
Ekkert grunsamlegt fannst
í íbúðinni eða tölvubúnaði í
eigu KC.
Maribel hafði oft
hringt í neyðarlínuna
Kærasti Maribel hét Paul Lo-
pez. Við yfirheyrslu hjá lög-
reglu sagði hann að samband
þeirra hefði ekki verið mjög
alvarlegt. Þau væru að deita
en hann hitti líka aðrar kon-
ur. Síðar kom í ljós að Mari-
bel hitti nokkra aðra menn og
kvöldið 8. maí, fimm dögum
eftir að hún hvarf, átti hún
stefnumót við annan mann.
Yfirheyrslur yfir honum og
Paul Lopez leiddu í ljós að
þeir höfðu báðir fjarvistar-
sönnun fyrir kvöldið sem
Maribel hvarf.
Tíð símtöl Maribel í neyðar-
línuna 911 vörpuðu grun á
meðleigjanda hennar, KC
Joy. Hún hafði hringt alloft,
sagt að ekki væri um neyðar-
tilvik að ræða, en hún væri
hugsanlega í hættu. Henni
var mikið í mun að símtölin
væru hljóðrituð og upptökur
geymdar, sem er vaninn hjá
neyðarlínunni. Hún sagði að
ef eitthvað alvarlegt kæmi
fyrir væri mikilvægt að hafa
í huga að hún hefði verið
að verja líf sitt. Lét hún að
því liggja að komið gæti til
hættulegra átaka milli sín
og vinar hennar og hún gæti
gert honum mein.
Maðurinn sem hún var að
ræða um var KC Joy og hún
nafngreindi hann. Kom í
ljós að vaxandi ágreiningur
hafði verið milli þeirra. KC
hafði misst vinnuna og gat
ekki staðið í skilum með sinn
hluta leigunnar. Vildi Maribel
þess vegna að hann flytti út.
KC var ástfanginn af Maribel
og vildi að samband þeirra
þróaðist úr vináttusambandi
yfir í ástarsamband. Hún
sagði að hann væri of gamall
fyrir hana.
Netnotkun kom
upp um hann
Lögregla yfirheyrði KC nú af
meiri hörku en áður en hann
neitaði að eiga nokkurn hlut í
hvarfi Maribel. Engin sönn-
unargögn gegn KC fundust
og ekki var hægt að handtaka
hann.
Náin vinkona Maribel,
Emily C, birti tilkynningu
á vefnum Yelp.com þar sem
hún lýsti eftir vinkonu sinni
og skildi eftir símanúmer
foreldra hennar fyrir hvern
þann sem gæti búið yfir
upplýsingum um afdrif
Maribel. Þetta var nokkuð
sérkennilegt þar sem um-
ræddur vefur snýst aðallega
um veitingahúsarýni. Enn
skrýtnara var þó hvernig
KC blandaði sér í umræð-
urnar. Hann lýsti með há-
stemmdum og hjartnæmum
hætti vináttu sinni og Mari-
bel, að hann myndi fórna lífi
sínu fyrir hana og að hann
hefði gert hana að arfþega
að líftryggingu sinni.
Aðrir þátttakendur í um-
ræðunum töldu grunsam-
legt að KC talaði um Mari-
bel í þátíð og þeim þótti
hann veita óviðeigandi upp-
lýsingar um vináttu þeirra
og samskipti.
Lögregla fylgdist nú náið
með ferðum KC og sá að
hann var daglegur gestur
á almenningsbókasafni.
Hann notaði tölvur safnsins
en hans eigin tölva var hjá
lögreglunni. Lögregla fékk
heimild til að fylgjast raf-
rænt með tölvunotkun KC
á safninu. Kom þá í ljós að
hann var sífellt að fara inn
á svæði á Google Maps sem
var utan við þjóðveginn, ekki
langt frá Orange City.
Lögreglan fór á þetta svæði
og fann þar líkamsleifar
Maribel í grunnri gröf. Þær
voru það mikið rotnaðar að
ekki var hægt að kveða upp
úr um dánarorsök hennar.
En KC Joy var ákærður
fyrir morðið á Maribel Ra-
mos og var réttað yfir honum
árið 2014. Hann neitaði stað-
fastlega sök og engin bein
sönnunargögn tengdu hann
við morðið. En sú staðreynd
að hann hafði gúgglað í sí-
fellu svæði þar sem líkið af
Maribel fannst var kviðdómi
nægileg til að sakfella hann.
Var KC Joy fundinn sekur
um morð af annarri gráðu
dæmdur í 15 ára til ævilangs
fangelsis. n
Ágúst Borgþór
Sverrisson
agustb@dv.is
SAKAMÁL
Kærasti
Maribel hét
Paul Lopez.
Við yfir-
heyrslu hjá
lögreglu
sagði hann
að samband
þeirra hefði
ekki verið
mjög alvar-
legt.
KONAN SEM HVARF OG FANNST
Í GEGNUM GOOGLE MAPS
Maribel Ramos var fyrrverandi liðþjálfi í bandaríska hernum. Hún var í þann veginn
að útskrifast frá háskóla þegar hún hvarf sporlaust. Síðast sást til hennar í eftir-
litsmyndavél 2. maí 2013, þar sem hún var hjá leigusalanum að greiða húsaleigu.
Maribel Ramos hvarf vorið 2013. MYND/FACEBOOK KC og Maribel voru nánir vinir. MYND/YELP
FÓKUS 25DV 4. DESEMBER 2020