Dagblaðið Vísir - DV - 04.12.2020, Blaðsíða 26

Dagblaðið Vísir - DV - 04.12.2020, Blaðsíða 26
26 FÓKUS M eð auknu „náttúrulegu útliti“ sökum þess að hárgreiðslu- og snyrtistofur hafa verið lokað- ar reglulega í ár eru menn og konur til í að ganga lengra til að fegra útlit sitt með öðrum leiðum. Allavega ég. Hver vill ekki vera sólkysst- ur í miðjum faraldri, frosti og súld? Ég hef löngum verið hrifin af brúnkukremi, með mis- jöfnum árangri þó – vin- konum mínum til ómældrar gleði. Ég ákvað því að fórna mér og finna leiðina að sól- kysstum kroppi í desember. Það hefur jú oft verið sagt að það sé sálinni hollt að taka sig til þó ekki sé verið að fara neitt sérstakt. Þannig höfum við fjölskyldan haldið há- tíðarkvöldverði og jólaboð og klætt okkur upp á þó enginn sé að koma eða fara – bara til þess að gera okkur dagamun saman. Og þennan dag ætlaði ég að vera brún. Jólaföndrið í ár var við það að hefjast. Hvaða krem Þar sem engin u-tanlandsferð var í ár og verður ekki á næst- unni var þráin eftir andliti sem rennur ekki saman við gráu snjókögglana sem hrynja undan bílnum á svörtum vetr- armorgnum verkefni sem ég taldi vert að vaða í. Eftir nokkra yfirlegu kom í ljós að hægt er að fá mjög ódýrt brúnkukrem í Bónus og allt upp í tug þúsunda króna krem. Þar fyrir utan stendur svo valið á milli krems, klúta, úða eða froðu. Svo virðist vera sem alls ekki megi nota sama kremið á andlit og líkama. Oft eru líkamskrem feitari og geta þá stíflað húðina í andlitinu og valdið bólum og útbrotum. Ekkert jólalegt við það skraut. Ég prófaði ýmis krem og vökva en fannst Marc Inbane brúnkudroparnir út í dagkrem virka best á andlitið og burst- inn frá þeim virkar mjög vel til þess að fá hendurnar fallega brúnar. Hendurnar vandamál Guð einn veit að ég hef gengið EINS OG TRUMP HEFÐI VERIÐ SLÁTRAÐ MEÐ HÁÞRÝSTIDÆLU Í liðnum Blaðamaður fórnar sér er ýmislegt látið flakka. Nú var það hugmyndin að kom- ast upp úr grunnlit og fá sólkysst útlit til að gera rótina þolanlegri á næsta fjarfundi. Það tókst. Hendur í stíl við haus. MYNDIR/TM Spreyið kom vel út á kroppnum en síður á veggjum. Burstinn er mikilvægur til að hendurnar komi vel undan gjörningnum. MYND/MARCIBANE Þurrar hendur eru ekki góður strigi fyrir brúnkukrem. í gegnum alls konar brúnku- slys. Á tímabili reyndi ég fyrir mér með brúnkuklúta sem skiluðu mjög misgóðum árangri. Ég þóttist nú vera eldri en tvævetur og eftir nokkra yfirlegu og samræður við mis brúnar konur virtist þetta almennt ekki vera svo flókið nema að hendurnar voru yfirleitt mesta málið. Þar er komin ný tækni en internetið vill meina að það gefi góða raun að nota sér- stakan bursta – í ætt við kinna litarbursta – til að dreifa úr brúnkunni á höndunum og forðast þannig appelsínugula lófa. Ég var bjartsýn, með fullan poka af kremum sem ég hafði keypt um allan bæ (og beðið í röð á pósthúsi eftir að sækja), kveikti á jólarásinni og lét sloppinn falla. Undirbúningur Eins og með alla málningar- vinnu skiptir undirbúningur- inn máli. Teipa, hylja gólfið, sparsla, pússa og allt það. Hér hefur mér oft brugðist boga- listin allverulega en ekki í þetta sinn enda langt gengin í fertugt og kominn tími til að sýna lágmarks fyrirhyggju. n BLAÐAMAÐUR FÓRNAR SÉR 4. DESEMBER 2020 DV Þorbjörg Marinósdóttir tobba@dv.is SKREF 1 Byrja skal á því að skrúbba húðina í sturtu með skrúbb eða þar til gerð- um bursta/hanska til að losna við þurrar og dauðar húðflögur. Þetta á sérstaklega við um hendur sem eru mjög þurrar eftir spritt notkun. Brúnkukremið mun annars sitja sem fastast í þurrkublettum, hnúum o.fl. Ekki fallegt. SKREF 2 Gott er að bera létt rakakrem á húðina til að tryggja að þurrari svæði dragi ekki frekar í sig brúnku- kremið og „landakorts“ lúkkið sé ekki niðurstaða gjörningsins. SKREF 3 Í upphafi skal endinn skoða. Hér þarf að velta fyrir sér tilgangi gjörnings- ins. Ég ætlaði mér að verða sólkysst um allan kroppinn og ákvað að nota öll helstu stoðtæki sem voru: • Brúnkudropar – til að setja út í venjulegt andlitskrem • Brúnkufroða eða -úði • Hanski og/eða bursti SKREF 4 Undirbúa stað átaka. Ef úði er not- aður skal gera það í lokuðu rými svo sem sturtu, annars er fínt að standa á dökku handklæði á gólfinu. SKREF 5 Veljið krem og búnað. Ég prófaði úða sem kemur vel út – jafnt á kroppinn en fer líka jafnt á ALLT í kringum þig. Ég hafði vit á að spreyja mig inni í sturtunni sem í kjölfarið leit út eins og Donald Trump hefði verið slátrað með háþrýstidælu. Froða og hanski virka vel en þá situr eftir hvít hönd. Þar kemur burstinn sterkur inn. SKREF 6 • Berðu kremið/froðuna á þig með sérstökum hanska. Gættu þess að strjúka jafnt yfir húðina og ekki setja á hendur eða andlit. • Taktu af þér hanskann og settu 2-3 dropa af brúnkudropunum út í dag- kremið og berðu í andlit. Þurrkaðu yfir augnabrúnir með hreinum rökum klút. • Þvoðu hendurnar og þurrkaðu vel. • Gættu þess að hendurnar séu ekki of þurrar (þurrkublettir). • Úðaðu brúnkuspreyi eða notaðu froðu á handarbakið og dreifðu úr með þar til gerðum bursta. • Farðu í léttan víðan klæðnað – helst svartan og leyfðu herleg- heitunum að þorna og ekki sturta þig í að lágmarki 2 tíma. • Virtu fyrir þér fegurðina – farðu svo aftur í heimavinnugallann og upp í sófa. ALLS EKKI Setja á þig brúnkukrem 24 tímum áður en þú litar á þér augnabrúnirn- ar. Ó, guð! Kremið virkjar einhvern fjanda sem gerir það að verkum að augnabrúnaliturinn festist miklu meira í húðinni og þú færð „stimpil“ í stað augnabrúna. BRÚNKUSKREFIN 6

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.