Dagblaðið Vísir - DV - 04.12.2020, Side 26
26 FÓKUS
M eð auknu „náttúrulegu útliti“ sökum þess að hárgreiðslu- og
snyrtistofur hafa verið lokað-
ar reglulega í ár eru menn og
konur til í að ganga lengra til
að fegra útlit sitt með öðrum
leiðum. Allavega ég.
Hver vill ekki vera sólkysst-
ur í miðjum faraldri, frosti og
súld?
Ég hef löngum verið hrifin
af brúnkukremi, með mis-
jöfnum árangri þó – vin-
konum mínum til ómældrar
gleði. Ég ákvað því að fórna
mér og finna leiðina að sól-
kysstum kroppi í desember.
Það hefur jú oft verið sagt að
það sé sálinni hollt að taka
sig til þó ekki sé verið að fara
neitt sérstakt. Þannig höfum
við fjölskyldan haldið há-
tíðarkvöldverði og jólaboð og
klætt okkur upp á þó enginn
sé að koma eða fara – bara til
þess að gera okkur dagamun
saman. Og þennan dag ætlaði
ég að vera brún. Jólaföndrið í
ár var við það að hefjast.
Hvaða krem
Þar sem engin u-tanlandsferð
var í ár og verður ekki á næst-
unni var þráin eftir andliti
sem rennur ekki saman við
gráu snjókögglana sem hrynja
undan bílnum á svörtum vetr-
armorgnum verkefni sem ég
taldi vert að vaða í.
Eftir nokkra yfirlegu kom
í ljós að hægt er að fá mjög
ódýrt brúnkukrem í Bónus og
allt upp í tug þúsunda króna
krem. Þar fyrir utan stendur
svo valið á milli krems, klúta,
úða eða froðu. Svo virðist vera
sem alls ekki megi nota sama
kremið á andlit og líkama. Oft
eru líkamskrem feitari og geta
þá stíflað húðina í andlitinu
og valdið bólum og útbrotum.
Ekkert jólalegt við það skraut.
Ég prófaði ýmis krem og
vökva en fannst Marc Inbane
brúnkudroparnir út í dagkrem
virka best á andlitið og burst-
inn frá þeim virkar mjög vel
til þess að fá hendurnar fallega
brúnar.
Hendurnar vandamál
Guð einn veit að ég hef gengið
EINS OG TRUMP HEFÐI VERIÐ
SLÁTRAÐ MEÐ HÁÞRÝSTIDÆLU
Í liðnum Blaðamaður fórnar sér er ýmislegt látið flakka. Nú var það hugmyndin að kom-
ast upp úr grunnlit og fá sólkysst útlit til að gera rótina þolanlegri á næsta fjarfundi.
Það tókst. Hendur í stíl við haus. MYNDIR/TM
Spreyið kom vel út á kroppnum
en síður á veggjum.
Burstinn er mikilvægur til að
hendurnar komi vel undan
gjörningnum. MYND/MARCIBANE
Þurrar hendur eru ekki góður
strigi fyrir brúnkukrem.
í gegnum alls konar brúnku-
slys. Á tímabili reyndi ég
fyrir mér með brúnkuklúta
sem skiluðu mjög misgóðum
árangri. Ég þóttist nú vera
eldri en tvævetur og eftir
nokkra yfirlegu og samræður
við mis brúnar konur virtist
þetta almennt ekki vera svo
flókið nema að hendurnar
voru yfirleitt mesta málið.
Þar er komin ný tækni en
internetið vill meina að það
gefi góða raun að nota sér-
stakan bursta – í ætt við
kinna litarbursta – til að dreifa
úr brúnkunni á höndunum og
forðast þannig appelsínugula
lófa.
Ég var bjartsýn, með fullan
poka af kremum sem ég hafði
keypt um allan bæ (og beðið í
röð á pósthúsi eftir að sækja),
kveikti á jólarásinni og lét
sloppinn falla.
Undirbúningur
Eins og með alla málningar-
vinnu skiptir undirbúningur-
inn máli. Teipa, hylja gólfið,
sparsla, pússa og allt það. Hér
hefur mér oft brugðist boga-
listin allverulega en ekki í
þetta sinn enda langt gengin
í fertugt og kominn tími til að
sýna lágmarks fyrirhyggju. n
BLAÐAMAÐUR
FÓRNAR SÉR
4. DESEMBER 2020 DV
Þorbjörg
Marinósdóttir
tobba@dv.is
SKREF 1
Byrja skal á því að skrúbba húðina í
sturtu með skrúbb eða þar til gerð-
um bursta/hanska til að losna við
þurrar og dauðar húðflögur. Þetta
á sérstaklega við um hendur sem
eru mjög þurrar eftir spritt notkun.
Brúnkukremið mun annars sitja
sem fastast í þurrkublettum, hnúum
o.fl. Ekki fallegt.
SKREF 2
Gott er að bera létt rakakrem á
húðina til að tryggja að þurrari
svæði dragi ekki frekar í sig brúnku-
kremið og „landakorts“ lúkkið sé
ekki niðurstaða gjörningsins.
SKREF 3
Í upphafi skal endinn skoða. Hér þarf
að velta fyrir sér tilgangi gjörnings-
ins. Ég ætlaði mér að verða sólkysst
um allan kroppinn og ákvað að nota
öll helstu stoðtæki sem voru:
• Brúnkudropar – til að setja út í
venjulegt andlitskrem
• Brúnkufroða eða -úði
• Hanski og/eða bursti
SKREF 4
Undirbúa stað átaka. Ef úði er not-
aður skal gera það í lokuðu rými svo
sem sturtu, annars er fínt að standa
á dökku handklæði á gólfinu.
SKREF 5
Veljið krem og búnað. Ég prófaði úða
sem kemur vel út – jafnt á kroppinn
en fer líka jafnt á ALLT í kringum þig.
Ég hafði vit á að spreyja mig inni í
sturtunni sem í kjölfarið leit út eins
og Donald Trump hefði verið slátrað
með háþrýstidælu. Froða og hanski
virka vel en þá situr eftir hvít hönd.
Þar kemur burstinn sterkur inn.
SKREF 6
• Berðu kremið/froðuna á þig með
sérstökum hanska. Gættu þess
að strjúka jafnt yfir húðina og ekki
setja á hendur eða andlit.
• Taktu af þér hanskann og settu 2-3
dropa af brúnkudropunum út í dag-
kremið og berðu í andlit. Þurrkaðu
yfir augnabrúnir með hreinum
rökum klút.
• Þvoðu hendurnar og þurrkaðu vel.
• Gættu þess að hendurnar séu ekki
of þurrar (þurrkublettir).
• Úðaðu brúnkuspreyi eða notaðu
froðu á handarbakið og dreifðu úr
með þar til gerðum bursta.
• Farðu í léttan víðan klæðnað –
helst svartan og leyfðu herleg-
heitunum að þorna og ekki sturta
þig í að lágmarki 2 tíma.
• Virtu fyrir þér fegurðina – farðu
svo aftur í heimavinnugallann og
upp í sófa.
ALLS EKKI
Setja á þig brúnkukrem 24 tímum
áður en þú litar á þér augnabrúnirn-
ar. Ó, guð! Kremið virkjar einhvern
fjanda sem gerir það að verkum að
augnabrúnaliturinn festist miklu
meira í húðinni og þú færð „stimpil“
í stað augnabrúna.
BRÚNKUSKREFIN 6