Dagblaðið Vísir - DV - 04.12.2020, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 04.12.2020, Blaðsíða 6
6 FRÉTTIR 4. DESEMBER 2020 DV NUDDARINN JÓHANNES FYRIR DÓM Í VIKUNNI Jóhannes Tryggvi Sveinbjörnsson var fyrr á þessu ári ákærður fyrir fjórar nauðganir. Upphaf málsins teygir sig aftur til ársins 2017 og hafa miklar tafir orðið á rekstri þess fyrir dómi. Í gær hófst loks aðalmeðferð gegn honum í Héraðsdómi Reykjaness. V atnaskil urðu í máli Héraðssa ksók na ra gegn stjörnunuddar- anum Jóhannesi Tryggva Sveinbjörnssyni vegna fjög- urra meintra nauðgana er málið var tekið til aðalmeð- ferðar í Dómsal 1 í Héraðs- dómi Reykjaness klukkan 10 á fimmtudagsmorgun. Miklar tafir hafa orðið á málinu, meðal annars vegna átaka um hæfi réttargæslumanna kvennanna sem Jóhannes er sagður hafa nauðgað. Málið gegn Jóhannesi teygir sig aftur til ársins 2017 þegar talsverður fjöldi kvenna steig fram og ásakaði Jóhannes um kynferðisbrot. Hluti þeirra lagði fram kæru og leitaði á fjórða tug kvenna til Sigrúnar Jóhannsdóttur lögmanns með sín mál. Árið 2018 varð ljóst að kærurnar yrðu á þriðja tug, samkvæmt heimildum DV. Að- eins var ákært í málum fjög- urra kvenna. Um þær ákærur er nú tekist á í Héraðsdómi Reykjaness. Ekki kírópraktor Konurnar sem Jóhannes er sagður hafa brotið á kyn- ferðislega leituðu til hans í meðferð vegna stoðkerfis- vandamála. Jóhannes rekur fyrirtækið Postura, sem sér- hæfir sig einmitt í slíkri með- ferð. Samkvæmt umfjöllun Fréttablaðsins um málið sögðu konurnar Jóhannes hafa meðhöndlað sig í gegnum leg- göng og endaþarm. Í samtali við DV árið 2018 sóru þáver- andi formenn Osteópatafélags Íslands, Kírópraktorafélags Íslands og Sjúkranuddara- félags Íslands manninn af sér. „Stétt kírópraktora er slegin yfir þessum fréttum. Maður sá sem kærður er, hefur ekki menntun kírópraktors, er ekki meðlimur í Kírópraktora- félagi Íslands og tengist ekki stétt kírópraktora á nokkurn hátt,“ sagði Egill Þorsteinsson formaður Kírópraktorafélags- ins árið 2018. Auglýsti í september Jóhannes hélt starfi sínu áfram sem meðhöndlari og auglýsti síðast þjónustu sína í septemberbyrjun með svo- hljóðandi smáskilaboðum: „Kæru viðskiptavinir. Vegna fjárhagsástands þjóðarinnar hef ég ákveðið að lækka verðið á minni þjónustu tíma- bundið. Verðið er nú komið úr 11.900 krónum niður í 10.000 krónur. Þá fá atvinnulausir þjónustuna á enn betra verði eða á 8.000 krónur,“ stóð í skilaboðunum sem send voru meðal annars á einstaklinga sem hafa aldrei sótt þjónustu hjá Jóhannesi. Þegar blaðamaður DV hafði samband við Jóhannes 9. september var hann stuttur í spuna. „Hvað með það?“ spurði Jóhannes þegar blaða- maður spurði hann út í skila- boðasendingar. Aðspurður um hvernig gengi eftir að hann sendi út tilboðið svarar Jóhannes: „Það gengur bara fínt.“ „Ég er allavega ennþá á lífi,“ bætti hann síðan við. Þegar blaðamaður ætlaði að halda samtalinu áfram vildi Jóhannes slíta samtalinu. „Ef þig vantar svör við einhverjum spurningum þá talar þú bara við lögfræðinginn minn.“ Réttargæslumaður verður vitni Málið gegn Jóhannesi var þingfest fyrr á árinu og hafa sem fyrr sagði orðið miklar tafir á meðferð málsins. Að hluta til má rekja þær tafir til þess að tekist var á um hæfi Sigrúnar Jóhannsdóttur sem réttargæslumanns kvennanna. Sigrún var réttargæslumaður allflestra kvennanna í málinu, en var úrskurðuð vanhæf af héraðsdómi til þess að gegna því starfi áfram vegna kröfu Steinbergs Finnbogasonar, lögmanns Jóhannesar, um að hún bæri vitni í málinu. Ósk um að Jóhannes S. Ólafsson tæki að sér réttargæslu var enn fremur hafnað. Lands- réttur felldi þessa úrskurði síðar úr gildi. Sigrún fékk því áfram að sinna réttargæslu í málinu, þó hún vermi áfram sæti á vitnalista Jóhannesar. Þá má, samkvæmt heimildum DV, einnig rekja tafir til þess að vitni í málinu búi erlendis og hefur dómari þurft að úr- skurða um mál er tengjast skýrslugjöf vitnisins með fjar- fundabúnaði. Ósmekkleg ummæli Haft var eftir lögmanni Jó- hannesar, Steinbergi Finn- bogasyni, í fjölmiðlum í tengslum við kröfu hans um að Sigrún bæri vitni í málinu að lögfræðilegur tilbúningur málsins stæðist tæpast skoðun og hann hygðist draga það fram í vitnaleiðslum. Þar má væntanlega gera ráð fyrir því að hann vísi til meintrar smölunar Sigrúnar á fórnar- lömbum á fyrstu stigum máls- ins árið 2018. Í tilkynningu til fjölmiðla af því tilefni sagði Sigrún um- mæli Steinbergs ósmekkleg og dæma sig sjálf. „Það sé enda fullkomlega óásættanlegt að lögmenn geti rutt svona hver öðrum úr dómsmálum með því einu að láta þá bera vitni um störf sín í þágu málsins. Það ógni öllu réttaröryggi,“ sagði í tilkynningunni. Samkvæmt dagskrá Héraðs- dóms Reykjaness var aðal- meðferð málsins á dagskrá í gær og gert ráð fyrir að henni verði haldið áfram í dag og aftur á mánudaginn. Afar fátítt er að þrír heilir dagar séu lagðir undir aðalmeðferð dómsmála, og því ljóst að um umfangsmikið mál er að ræða. Samkvæmt heimildum DV eru vitnalistar langir og bersýni- lega gert ráð fyrir löngum tíma í skýrslutökur. Þing- haldið er lokað. n Heimir Hannesson heimir@dv.is Jóhannes Tryggvi mætir í Héraðsdóm Reykjaness. MYND/ANTON BRINK Leitaði á fjórða tug kvenna til Sigrúnar Jóhanns dóttur lögmanns.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.