Dagblaðið Vísir - DV - 04.12.2020, Page 6
6 FRÉTTIR 4. DESEMBER 2020 DV
NUDDARINN JÓHANNES
FYRIR DÓM Í VIKUNNI
Jóhannes Tryggvi Sveinbjörnsson var fyrr á þessu ári ákærður
fyrir fjórar nauðganir. Upphaf málsins teygir sig aftur til ársins
2017 og hafa miklar tafir orðið á rekstri þess fyrir dómi. Í gær
hófst loks aðalmeðferð gegn honum í Héraðsdómi Reykjaness.
V atnaskil urðu í máli Héraðssa ksók na ra gegn stjörnunuddar-
anum Jóhannesi Tryggva
Sveinbjörnssyni vegna fjög-
urra meintra nauðgana er
málið var tekið til aðalmeð-
ferðar í Dómsal 1 í Héraðs-
dómi Reykjaness klukkan 10
á fimmtudagsmorgun. Miklar
tafir hafa orðið á málinu,
meðal annars vegna átaka
um hæfi réttargæslumanna
kvennanna sem Jóhannes er
sagður hafa nauðgað.
Málið gegn Jóhannesi teygir
sig aftur til ársins 2017 þegar
talsverður fjöldi kvenna steig
fram og ásakaði Jóhannes um
kynferðisbrot. Hluti þeirra
lagði fram kæru og leitaði á
fjórða tug kvenna til Sigrúnar
Jóhannsdóttur lögmanns með
sín mál. Árið 2018 varð ljóst
að kærurnar yrðu á þriðja tug,
samkvæmt heimildum DV. Að-
eins var ákært í málum fjög-
urra kvenna. Um þær ákærur
er nú tekist á í Héraðsdómi
Reykjaness.
Ekki kírópraktor
Konurnar sem Jóhannes er
sagður hafa brotið á kyn-
ferðislega leituðu til hans í
meðferð vegna stoðkerfis-
vandamála. Jóhannes rekur
fyrirtækið Postura, sem sér-
hæfir sig einmitt í slíkri með-
ferð. Samkvæmt umfjöllun
Fréttablaðsins um málið
sögðu konurnar Jóhannes hafa
meðhöndlað sig í gegnum leg-
göng og endaþarm. Í samtali
við DV árið 2018 sóru þáver-
andi formenn Osteópatafélags
Íslands, Kírópraktorafélags
Íslands og Sjúkranuddara-
félags Íslands manninn af sér.
„Stétt kírópraktora er slegin
yfir þessum fréttum. Maður
sá sem kærður er, hefur ekki
menntun kírópraktors, er ekki
meðlimur í Kírópraktora-
félagi Íslands og tengist ekki
stétt kírópraktora á nokkurn
hátt,“ sagði Egill Þorsteinsson
formaður Kírópraktorafélags-
ins árið 2018.
Auglýsti í september
Jóhannes hélt starfi sínu
áfram sem meðhöndlari og
auglýsti síðast þjónustu sína
í septemberbyrjun með svo-
hljóðandi smáskilaboðum:
„Kæru viðskiptavinir. Vegna
fjárhagsástands þjóðarinnar
hef ég ákveðið að lækka
verðið á minni þjónustu tíma-
bundið. Verðið er nú komið úr
11.900 krónum niður í 10.000
krónur. Þá fá atvinnulausir
þjónustuna á enn betra verði
eða á 8.000 krónur,“ stóð í
skilaboðunum sem send voru
meðal annars á einstaklinga
sem hafa aldrei sótt þjónustu
hjá Jóhannesi.
Þegar blaðamaður DV hafði
samband við Jóhannes 9.
september var hann stuttur
í spuna. „Hvað með það?“
spurði Jóhannes þegar blaða-
maður spurði hann út í skila-
boðasendingar.
Aðspurður um hvernig gengi
eftir að hann sendi út tilboðið
svarar Jóhannes: „Það gengur
bara fínt.“ „Ég er allavega
ennþá á lífi,“ bætti hann síðan
við. Þegar blaðamaður ætlaði
að halda samtalinu áfram vildi
Jóhannes slíta samtalinu. „Ef
þig vantar svör við einhverjum
spurningum þá talar þú bara
við lögfræðinginn minn.“
Réttargæslumaður
verður vitni
Málið gegn Jóhannesi var
þingfest fyrr á árinu og hafa
sem fyrr sagði orðið miklar
tafir á meðferð málsins. Að
hluta til má rekja þær tafir til
þess að tekist var á um hæfi
Sigrúnar Jóhannsdóttur sem
réttargæslumanns kvennanna.
Sigrún var réttargæslumaður
allflestra kvennanna í málinu,
en var úrskurðuð vanhæf af
héraðsdómi til þess að gegna
því starfi áfram vegna kröfu
Steinbergs Finnbogasonar,
lögmanns Jóhannesar, um að
hún bæri vitni í málinu. Ósk
um að Jóhannes S. Ólafsson
tæki að sér réttargæslu var
enn fremur hafnað. Lands-
réttur felldi þessa úrskurði
síðar úr gildi. Sigrún fékk því
áfram að sinna réttargæslu í
málinu, þó hún vermi áfram
sæti á vitnalista Jóhannesar.
Þá má, samkvæmt heimildum
DV, einnig rekja tafir til þess
að vitni í málinu búi erlendis
og hefur dómari þurft að úr-
skurða um mál er tengjast
skýrslugjöf vitnisins með fjar-
fundabúnaði.
Ósmekkleg ummæli
Haft var eftir lögmanni Jó-
hannesar, Steinbergi Finn-
bogasyni, í fjölmiðlum í
tengslum við kröfu hans um
að Sigrún bæri vitni í málinu
að lögfræðilegur tilbúningur
málsins stæðist tæpast skoðun
og hann hygðist draga það
fram í vitnaleiðslum. Þar má
væntanlega gera ráð fyrir
því að hann vísi til meintrar
smölunar Sigrúnar á fórnar-
lömbum á fyrstu stigum máls-
ins árið 2018.
Í tilkynningu til fjölmiðla
af því tilefni sagði Sigrún um-
mæli Steinbergs ósmekkleg og
dæma sig sjálf. „Það sé enda
fullkomlega óásættanlegt að
lögmenn geti rutt svona hver
öðrum úr dómsmálum með því
einu að láta þá bera vitni um
störf sín í þágu málsins. Það
ógni öllu réttaröryggi,“ sagði
í tilkynningunni.
Samkvæmt dagskrá Héraðs-
dóms Reykjaness var aðal-
meðferð málsins á dagskrá í
gær og gert ráð fyrir að henni
verði haldið áfram í dag og
aftur á mánudaginn. Afar
fátítt er að þrír heilir dagar
séu lagðir undir aðalmeðferð
dómsmála, og því ljóst að um
umfangsmikið mál er að ræða.
Samkvæmt heimildum DV eru
vitnalistar langir og bersýni-
lega gert ráð fyrir löngum
tíma í skýrslutökur. Þing-
haldið er lokað. n
Heimir
Hannesson
heimir@dv.is
Jóhannes Tryggvi mætir í Héraðsdóm Reykjaness. MYND/ANTON BRINK
Leitaði á fjórða
tug kvenna
til Sigrúnar
Jóhanns dóttur
lögmanns.