Dagblaðið Vísir - DV - 04.12.2020, Blaðsíða 27

Dagblaðið Vísir - DV - 04.12.2020, Blaðsíða 27
 Klámbúllur og hjálpar tæki ástalífsins Sýningar- hópurinn Pan (síðar Pam) sýndi varn- inginn sem seldur var í fyrstu kyn- lífshjálpar- tækjaverslun Íslands. MYND/TIMARIT.IS TÍMAVÉLIN Menn þurfa ekki að vera margsigldir til þess að vita að í flest- um erlendum stórborgum er að finna svonefndar „sex- búðir“. Eins og forvitnir ferðalangar kannast við, er í þessum verslunum seldur ýmis sá varningur sem á einhvern hátt tengist kynlífi – í víðustu merkingu þess orðs. Þarna má sjá græsku- laus grínleikföng, klámblöð, myndbönd, gervilimi, upp- blásnar plastkonur, leður- fatnað, gegnsæ undirföt og svipur, að maður tali ekki um allan þann varning sem venjulegir einfeldningar kunna engin skil á og geta ekki ímyndað sér til hvers séu brúklegir. Enn sem komið er hefur enginn opnað slíka búð hér á landi, en í Reykjavík er hins vegar starfrækt póstversl- un, sem selur ýmiss konar hjálpartæki fyrir þá sem kynda vilja lítillega undir kynlífinu.“ Þetta var skrifað í Helgarpóstinum í janúar 1986. Tilefni skrifanna var tilkoma póstverslunarinnar Pan, sem var fyrsta versl- unin á Íslandi til að selja hjálpartæki ástalífsins. Kynsveltur markaður Pan póstverslun hafði starf- semi í lok árs 1986. Að baki versluninni stóðu félagarnir Guðmundur Rúnar Ásmunds- son og Sæmundur Haukur Haraldsson. Þeir höfðu tekið eftir því að í Sóhó-hverfi í London mátti finna fjölda sérverslana með kynlífsvör- ur, en enga slíka mátti finna á Íslandi. Mátu það þeir svo að hér á landi væri eftir- spurn sem þeir gætu svarað, eða eins og þeir orðuðu sjálf- ir „markaður sem hafði verið í svelti frá landnámi“. Vakti verslunin hratt mikla athygli, bæði viðskiptavina sem og fjölmiðla. Athygli fjölmiðla beindist þó fremur að rekstrinum heldur en vöruframboðinu þar sem fyrirtækið lenti í þó nokkr- um deilumálum þetta tæpa ár sem það var starfrækt. Rekin vegna aukavinnu Fljótlega eftir áramótin 1986 ákváðu Pan-félagarnir að færa út kvíarnar og hófu að skipuleggja sýningarkvöld, þar sem fatnaður sem þeir höfðu til sölu var sýndur á nokkurs konar tískusýningu þar sem finna mátti klæða- litlar fyrirsætur, svo klæða- litlar að sýningin þótti helst minna á nektardans að er- lendri fyrirmynd. Hins vegar voru fyrirsæturnar af báðum kynjum. Mátti panta slíka sýningu í einkasamkvæmi en einnig fóru þær fram á skemmtistöðum. Ein stúlka Fyrir rúmlega 30 árum gafst Íslendingum í fyrsta sinn kostur á að kaupa sér hjálpartæki ástalífsins hér á landi. Starfsemin, póst- þjónusta með meiru, vakti mikla athygli, ekki alltaf jákvæða. FÓKUS 27 Erla Dóra Magnúsdóttir erladora@dv.is sem var fyrirsæta á slíkum sýningum var rekin úr dag- vinnu sinni hjá Verzlunar- skóla Íslands sökum þess að skólastjóra þótti póstverslun- in Pan og sýningarhópurinn ósiðsamlegur og til þess fall- inn að fæla burt nemendur og foreldra þeirra. „Ég er ekki að skilgreina þessa vöru í anda klámlaga. Þetta er varningur, sem við sjáum seldan í vissum verslunum erlendis. Þær verslanir ganga á íslensku undir heitinu klámbúllur. Sá varningur, sem seldur er í klámbúllum, hlýtur að vera klámvara,“ sagði skólastjór- inn, Þorvarður Elíasson, í samtali við Helgarpóstinn í mars 1986. Blygðunarsemi almennings Starfsemin vakti einnig athygli lögreglunnar. En í Morgunblaðinu í mars 1986 kom fram að lögreglustjór- inn í Reykjavík hefði til skoðunar hvort starfsemi póstverslunarinnar Pan bryti gegn lögum um bann við dreifingu kláms eða hvort það bryti gegn blygðunar- kennd almennings. „Það er alltaf matsatriði og háð tíðar- anda hvað telst klám og hvað ekki og því munum við ekki hafast að í þessu máli nema okkur berist kæra,“ sagði Böðvar Bragason, þáverandi lögreglustjóri, í samtali við Morgunblaðið. Lögbann á nafnið Þetta var ekki það eina sem varð umdeilt við verslunina. „Eins og fram hefur komið, hefur fyrirtækið Pan h.f. á Akureyri lagt fram lögbanns- beiðni vegna nafnsins á póst- versluninni Pan, sem verslar með hjálpartæki ástalífsins. Segja kunnugir að lögbanns- beiðni sé til komin sökum margendurtekinna kvart- ana sárþjakaðra bænda sem versla við fyrrnefnt Pan- fyrirtæki á Akureyri. Þegar bændurnir mæta á næsta pósthús til þess að leysa út „kítti“ frá Akureyri, sem sent er í póstkröfu, verða oft úr því hin vandræða- legustu augnablik. „Kíttið“ er nefnilega selt í stórum og myndarlegum túbum, en þegar póstafgreiðslumenn og aðrir nærstaddir sjá að um er að ræða sendingu frá Pan, myndast gjarnan hlátur- viprur við munnvikin. Bændum á Norðurlandi finnst það hins vegar lítt fyndið að þurfa að leysa út þessa innpökkuðu sívalninga í votta viðurvist.“ Þetta var skrifað í Helgarpóstinn í apr- íl 1986. Eftir að lögbannið var sett á þurfti verslunin að skipta um nafn. Bankastjórar hjálpartækjabanka Á sama tíma hafði stærra mál komið upp í tengslum við reksturinn. Pan-sýningar- hópurinn hafði verið orðaður DV 4. DESEMBER 2020 Sæmundur sagði Guðmund veikan á geði. Bjargvættir og draumaprinsar Orðrómurinn um vændi meðal Pam-sýningarhóps- ins virtist ekki úr lausu lofti gripinn. Rannsóknar- blaðamenn prufuðu að hafa samband við Sæmund Hauk og mátti af tilsvörum hans dæma að ýmislegt stæði þar til boða sem ekki væri alveg eftir lögum. Hins vegar hélt Guðmundur sig áfram við hjálpartækjasölu, enda virt- ist þar nóg að gera. Notast var við góð íslensk orð yfir þann búnað sem til sölu var. Titrarar voru kall- aðir „juðarar“ og oft nefndir draumaprinsar. Vörur sem voru ætlaðar körlum voru kallaðir „bjargvættir“. Bjargvættirnir voru fjöl- margir og státuðu af nöfn- um á borð við „Raf-Svalinn, Hólkurinn, Kreistari og Út- limalausa ambáttin.“ Fleiri höfðu þó þarna gert sér grein fyrir gullkúnni sem var fólgin í sölu hjálpar- tækja ástalífsins. Annað fyrirtæki, Rómeó og Júlía, fór einnig að bjóða upp á póstverslun. Fór svo að Rómeó og Júlía keypti Pan- póstverslunina, fyrir 400 þúsund krónur, og opnaði í kjölfarið fyrstu eiginlegu verslunina á Íslandi sem bauð upp á hjálpartæki ásta- lífsins. n við vændi. Úr varð nokkurt fjölmiðlafár. Enda virtust fjölmiðlar elska að fjalla um þennan umdeilda verslunar- rekstur. „Tveir af kunnustu oddvit- ar ástarinnar í hinu íslenska samfélagi eru komnir í hár saman. Gagnkvæm vinátta virðist hafa breyst í hatur og þegar ég segi að það sé út af tittlingaskít, þá fer ekki á milli mála hverjir mennirnir eru. Að sjálfsögðu banka- stjórar hjálpartækjabanka ástarinnar, þeir Guðmundur Ásmundsson, eigandi fyrir- tækisins „House of Pan“, sem selur hjálpartæki ásta- lífsins og Sæmundur Haukur Haraldsson sem hefur snúið sér alfarið að rekstri sýning- arhópsins „Pam“. Eftir því sem næst verður komist gegnir sá flokkur margþættu hlutverki í ástar- lífi borgarinnar, meðal ann- ars með því að lyfta þeim mönnum upp, sem of niður- dregnir eru orðnir af lang- varandi búsorgum og veita þeim viðunandi úrlausn. Það er sárt til þess að vita að þessir tveir gömlu, góðu vinir og samstarfsmenn um ástamál skuli nú vera orðnir hatursmenn,“ sagði Flosi Ólafsson í vikulegum pistli sínum í júní árið 1986. Guðmundur og Sæmundur Haukur stigu fram í fjöl- miðlum sitt á hvað, Guð- mundur sakaði Sæmund um vændisstarfsemi og

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.