Dagblaðið Vísir - DV - 04.12.2020, Síða 27
Klámbúllur og
hjálpar tæki ástalífsins
Sýningar-
hópurinn Pan
(síðar Pam)
sýndi varn-
inginn sem
seldur var í
fyrstu kyn-
lífshjálpar-
tækjaverslun
Íslands.
MYND/TIMARIT.IS
TÍMAVÉLIN
Menn þurfa ekki að vera margsigldir til þess að vita að í flest-
um erlendum stórborgum er
að finna svonefndar „sex-
búðir“. Eins og forvitnir
ferðalangar kannast við, er
í þessum verslunum seldur
ýmis sá varningur sem á
einhvern hátt tengist kynlífi
– í víðustu merkingu þess
orðs. Þarna má sjá græsku-
laus grínleikföng, klámblöð,
myndbönd, gervilimi, upp-
blásnar plastkonur, leður-
fatnað, gegnsæ undirföt og
svipur, að maður tali ekki
um allan þann varning sem
venjulegir einfeldningar
kunna engin skil á og geta
ekki ímyndað sér til hvers
séu brúklegir.
Enn sem komið er hefur
enginn opnað slíka búð hér á
landi, en í Reykjavík er hins
vegar starfrækt póstversl-
un, sem selur ýmiss konar
hjálpartæki fyrir þá sem
kynda vilja lítillega undir
kynlífinu.“ Þetta var skrifað
í Helgarpóstinum í janúar
1986. Tilefni skrifanna var
tilkoma póstverslunarinnar
Pan, sem var fyrsta versl-
unin á Íslandi til að selja
hjálpartæki ástalífsins.
Kynsveltur markaður
Pan póstverslun hafði starf-
semi í lok árs 1986. Að baki
versluninni stóðu félagarnir
Guðmundur Rúnar Ásmunds-
son og Sæmundur Haukur
Haraldsson. Þeir höfðu tekið
eftir því að í Sóhó-hverfi í
London mátti finna fjölda
sérverslana með kynlífsvör-
ur, en enga slíka mátti finna
á Íslandi. Mátu það þeir svo
að hér á landi væri eftir-
spurn sem þeir gætu svarað,
eða eins og þeir orðuðu sjálf-
ir „markaður sem hafði verið
í svelti frá landnámi“.
Vakti verslunin hratt mikla
athygli, bæði viðskiptavina
sem og fjölmiðla. Athygli
fjölmiðla beindist þó fremur
að rekstrinum heldur en
vöruframboðinu þar sem
fyrirtækið lenti í þó nokkr-
um deilumálum þetta tæpa
ár sem það var starfrækt.
Rekin vegna aukavinnu
Fljótlega eftir áramótin 1986
ákváðu Pan-félagarnir að
færa út kvíarnar og hófu að
skipuleggja sýningarkvöld,
þar sem fatnaður sem þeir
höfðu til sölu var sýndur á
nokkurs konar tískusýningu
þar sem finna mátti klæða-
litlar fyrirsætur, svo klæða-
litlar að sýningin þótti helst
minna á nektardans að er-
lendri fyrirmynd. Hins vegar
voru fyrirsæturnar af báðum
kynjum. Mátti panta slíka
sýningu í einkasamkvæmi
en einnig fóru þær fram á
skemmtistöðum. Ein stúlka
Fyrir rúmlega 30 árum gafst Íslendingum í fyrsta sinn kostur á að
kaupa sér hjálpartæki ástalífsins hér á landi. Starfsemin, póst-
þjónusta með meiru, vakti mikla athygli, ekki alltaf jákvæða.
FÓKUS 27
Erla Dóra
Magnúsdóttir
erladora@dv.is
sem var fyrirsæta á slíkum
sýningum var rekin úr dag-
vinnu sinni hjá Verzlunar-
skóla Íslands sökum þess að
skólastjóra þótti póstverslun-
in Pan og sýningarhópurinn
ósiðsamlegur og til þess fall-
inn að fæla burt nemendur og
foreldra þeirra.
„Ég er ekki að skilgreina
þessa vöru í anda klámlaga.
Þetta er varningur, sem
við sjáum seldan í vissum
verslunum erlendis. Þær
verslanir ganga á íslensku
undir heitinu klámbúllur. Sá
varningur, sem seldur er í
klámbúllum, hlýtur að vera
klámvara,“ sagði skólastjór-
inn, Þorvarður Elíasson, í
samtali við Helgarpóstinn í
mars 1986.
Blygðunarsemi
almennings
Starfsemin vakti einnig
athygli lögreglunnar. En í
Morgunblaðinu í mars 1986
kom fram að lögreglustjór-
inn í Reykjavík hefði til
skoðunar hvort starfsemi
póstverslunarinnar Pan bryti
gegn lögum um bann við
dreifingu kláms eða hvort
það bryti gegn blygðunar-
kennd almennings. „Það er
alltaf matsatriði og háð tíðar-
anda hvað telst klám og hvað
ekki og því munum við ekki
hafast að í þessu máli nema
okkur berist kæra,“ sagði
Böðvar Bragason, þáverandi
lögreglustjóri, í samtali við
Morgunblaðið.
Lögbann á nafnið
Þetta var ekki það eina sem
varð umdeilt við verslunina.
„Eins og fram hefur komið,
hefur fyrirtækið Pan h.f. á
Akureyri lagt fram lögbanns-
beiðni vegna nafnsins á póst-
versluninni Pan, sem verslar
með hjálpartæki ástalífsins.
Segja kunnugir að lögbanns-
beiðni sé til komin sökum
margendurtekinna kvart-
ana sárþjakaðra bænda sem
versla við fyrrnefnt Pan-
fyrirtæki á Akureyri.
Þegar bændurnir mæta
á næsta pósthús til þess að
leysa út „kítti“ frá Akureyri,
sem sent er í póstkröfu, verða
oft úr því hin vandræða-
legustu augnablik. „Kíttið“
er nefnilega selt í stórum
og myndarlegum túbum, en
þegar póstafgreiðslumenn
og aðrir nærstaddir sjá að
um er að ræða sendingu frá
Pan, myndast gjarnan hlátur-
viprur við munnvikin.
Bændum á Norðurlandi
finnst það hins vegar lítt
fyndið að þurfa að leysa út
þessa innpökkuðu sívalninga
í votta viðurvist.“ Þetta var
skrifað í Helgarpóstinn í apr-
íl 1986. Eftir að lögbannið
var sett á þurfti verslunin að
skipta um nafn.
Bankastjórar
hjálpartækjabanka
Á sama tíma hafði stærra
mál komið upp í tengslum við
reksturinn. Pan-sýningar-
hópurinn hafði verið orðaður
DV 4. DESEMBER 2020
Sæmundur sagði Guðmund
veikan á geði.
Bjargvættir og
draumaprinsar
Orðrómurinn um vændi
meðal Pam-sýningarhóps-
ins virtist ekki úr lausu
lofti gripinn. Rannsóknar-
blaðamenn prufuðu að hafa
samband við Sæmund Hauk
og mátti af tilsvörum hans
dæma að ýmislegt stæði þar
til boða sem ekki væri alveg
eftir lögum. Hins vegar hélt
Guðmundur sig áfram við
hjálpartækjasölu, enda virt-
ist þar nóg að gera.
Notast var við góð íslensk
orð yfir þann búnað sem til
sölu var. Titrarar voru kall-
aðir „juðarar“ og oft nefndir
draumaprinsar. Vörur sem
voru ætlaðar körlum voru
kallaðir „bjargvættir“.
Bjargvættirnir voru fjöl-
margir og státuðu af nöfn-
um á borð við „Raf-Svalinn,
Hólkurinn, Kreistari og Út-
limalausa ambáttin.“
Fleiri höfðu þó þarna gert
sér grein fyrir gullkúnni
sem var fólgin í sölu hjálpar-
tækja ástalífsins.
Annað fyrirtæki, Rómeó
og Júlía, fór einnig að bjóða
upp á póstverslun. Fór svo að
Rómeó og Júlía keypti Pan-
póstverslunina, fyrir 400
þúsund krónur, og opnaði í
kjölfarið fyrstu eiginlegu
verslunina á Íslandi sem
bauð upp á hjálpartæki ásta-
lífsins. n
við vændi. Úr varð nokkurt
fjölmiðlafár. Enda virtust
fjölmiðlar elska að fjalla um
þennan umdeilda verslunar-
rekstur.
„Tveir af kunnustu oddvit-
ar ástarinnar í hinu íslenska
samfélagi eru komnir í hár
saman. Gagnkvæm vinátta
virðist hafa breyst í hatur
og þegar ég segi að það sé út
af tittlingaskít, þá fer ekki á
milli mála hverjir mennirnir
eru. Að sjálfsögðu banka-
stjórar hjálpartækjabanka
ástarinnar, þeir Guðmundur
Ásmundsson, eigandi fyrir-
tækisins „House of Pan“,
sem selur hjálpartæki ásta-
lífsins og Sæmundur Haukur
Haraldsson sem hefur snúið
sér alfarið að rekstri sýning-
arhópsins „Pam“.
Eftir því sem næst verður
komist gegnir sá flokkur
margþættu hlutverki í ástar-
lífi borgarinnar, meðal ann-
ars með því að lyfta þeim
mönnum upp, sem of niður-
dregnir eru orðnir af lang-
varandi búsorgum og veita
þeim viðunandi úrlausn.
Það er sárt til þess að vita
að þessir tveir gömlu, góðu
vinir og samstarfsmenn
um ástamál skuli nú vera
orðnir hatursmenn,“ sagði
Flosi Ólafsson í vikulegum
pistli sínum í júní árið 1986.
Guðmundur og Sæmundur
Haukur stigu fram í fjöl-
miðlum sitt á hvað, Guð-
mundur sakaði Sæmund
um vændisstarfsemi og