Dagblaðið Vísir - DV - 18.12.2020, Blaðsíða 26

Dagblaðið Vísir - DV - 18.12.2020, Blaðsíða 26
HEILSURÁÐ SEM LÉTTA LUND UM HÁTÍÐIRNAR Alheimsfegurðardrottningin, frumkvöðullinn og lífsþjálfinn Linda Pétursdóttir, betur þekkt sem Linda Pé, gefur nokkur góð ráð til að bæta líðan um hátíðirnar. Hún segir mikilvægt að hlusta á líkam- ann og gera greinarmun á líkamlegu og tilfinningalegu hungri. H átíðirnar nálgast óðum ásamt góm-sætum mat og drykk, sem á það til að fara illa í marga, gæti fólk ekki hófs. Of mikil saltneysla getur leitt til óþæginda, eins og höfuð- verkjar og bjúgs. Það besta sem er hægt að gera til að draga úr bjúg að mati Lindu er að sleppa mikið unnum mat og drekka vel af vatni. „Besta ráðið er að drekka mikið vatn, helst tvo lítra á dag fyrir konur og þrjá lítra fyrir karla,“ segir hún. „Það er líka gott að standa upp úr sófanum og fara út í göngutúr og koma blóðrásinni af stað.“ Linda mælir með að borða sem náttúrulegasta fæðu. „Mikið grænmeti og enn og aftur, drekka mikið vatn,“ segir hún og bendir á vatns- losandi drykk sem hún deilir uppskrift að. Drykkurinn er tilvalinn til að losna við þrota eftir neyslu á reyktu og sölt- uðu kjöti. Hinn gullni meðalvegur Linda segir að það þurfi ekki að gilda boð og bönn yfir há- tíðirnar og allt sé gott í hófi. „En eins og ég sagði, þá er það mikið unnin fæða sem gerir fæstum okkar gott. Per- sónulega finnst mér mjög gott að skipta út einni máltíð, til dæmis hádegisverði, fyrir einn súperdrykk úr 28 daga Heilsuáskoruninni minni. Þá veit ég að ég er að fá alla þá næringu sem ég þarf og get þá leyft mér aðeins meira með kvöldverðinn,“ segir hún. Besta heilsuráðið? „Það er mikilvægt að þekkja muninn á líkamlegu og til- finningalegu hungri. Það eru svo margir sem þekkja það ekki og mörg okkar eru sí- fellt að borða þegar við erum „tilfinningalega svöng“. Sem hefur ekkert með raunveru- legt, líkamlegt hungur að gera,“ segir Linda og heldur áfram. „Við erum að svara löng- unum, sem koma frá frum- heilanum en hann vill alltaf fá umbun strax. Það er orðinn ómeðvitaður vani að borða út frá einhverjum tilfinningum með því að stinga mat upp í okkur, sem dæmi: Af því við erum svo þreytt, pirruð, glöð eða af því okkur finnst við eiga það skilið. Það hefur í raun og veru ekkert með líkamlegt hungur að gera.“ Linda þjálfar konur og er með nokkur heilsuprógrömm í boði á lindape.com. „Ég kenni konunum mínum með- al annars á það sem ég kalla „hungurkvarðann“. Með því að tileinka sér hann, þá förum við að hlusta betur á eigin lík- ama og vera meðvitaðar um matarvenjur okkar. Við lær- um að hlusta á framheilann, hann kann vel að gera plön, skapa rútínu og velja fyrir framtíðarsjálfið okkar. Það Linda segir góðan göngutúr geta bjargað miklu. MYND/AÐSEND er mikilvægt að þekkja mun- inn á framheila og frumheila og vera við stjórnvölinn sjálf í eigin lífi, en ekki alltaf á harðahlaupum að svara tíma- bundnum löngunum. Hver löngun varir í hámark tíu mínútur, oftar þó nær níutíu sekúndum. Ég vil hvetja fólk til að bíða þegar það finnur fyrir löngun að borða, fá sér heldur bara eitt glas af vatni og bíða í fimmtán mínútur. Ef þú ert enn þá svöng þá, þá færðu þér að borða. Annars ekki.“ Bestu heilsuráð Lindu eru að „borða þegar þú ert líkam- lega svöng, og hætta áður en þú verður pakksödd. Sofa í sjö til níu klukkustundir og drekka tvo lítra af vatni á dag.“ Hún gefur einnig annað ráð: „Ekki troða diskinn út af mat. Hafðu pláss á diskinum svo þú sjáir í hann.“ Jólabarn Linda er mikið jólabarn og sérstaklega hrifin af Nóa konfekti. Á aðfangadag er hún oftast með hnetusteik og einhvern ljúffengan fiskrétt. „Svo útbý ég heimalagaðan ís í eftirrétt, eftir uppskrift frá mömmu. Og klassíski möndlu- grauturinn er á sínum stað,“ segir hún. „Við mæðgur borðum ekk- ert kjöt þannig að það er ekki á boðstólum á mínu heimili. Í fyrra pantaði ég jólamatinn og fékk tilbúna ljúffenga veg- an-veislu, forréttur, aðalrétt- ur, eftirréttur og allt meðlæti, frá Whole Foods í Kanada. Ég myndi panta þannig aftur ef það væri í boði hér heima.“ Linda Pé er með fleiri ráð tengd heilsu í formi stuttra myndbanda á Instagram-síðu sinni, @lindape. n Vatnslosandi drykkur Drekktu 1 glas af þessum vatns- losandi drykk á dag til að losa þig við bjúg. Drykkurinn hefur sem dæmi jákvæð áhrif á hjarta- og æðakerfið, nýru og útlit,“ segir Linda og ráðleggur fólki að vera ekki langt frá salerni eftir að það hefur drukkið drykkinn. Vatnslosandi í eitt glas ½ glas eplasafi 2 tappar aloe vera 1 tsk. grænt te 1-2 cm engifer Myntulauf Klakar Vatnslosandi í heila könnu 6 lítil glös eplasafi 12 tappar aloe vera 10 mæliskeiðar engifer 12 mæliskeiðar grænt te 10-12 myntulauf Klakar, heil skeið Allt hrært saman þangað til drykk- urinn er vel blandaður. Verði þér að góðu! Guðrún Ósk Guðjónsdóttir gudrunosk@dv.is 26 FÓKUS 18. DESEMBER 2020 DV
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.