Dagblaðið Vísir - DV - 18.12.2020, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 18.12.2020, Blaðsíða 4
MEST LESIÐ Á DV Í VIKUNNI Í FRÉTTUM ER ÞETTA HELST... Jónína Benediktsdóttir látin Jónína Benediktsdóttir, íþróttafræðingur og frumkvöðull, varð bráðkvödd á heimili sínu í Hveragerði. Hún var 63 ára gömul. Hún lætur eftir sig þrjú börn og fjögur barnabörn. Veiran ekki á förum Seinkanir hafa átt sér stað í áætlunum Íslands í bólusetningu við kórónuveirunni og verður því ekki hægt að vinna bug á kórónuveirufaraldinum með hjarðónæmi fyrr en seinni hluta næsta árs. Því verða Íslendingar að sæta sóttvarnatakmörk- unum áfram næstu mánuðina. Tundurskeyti í trolli Séraðgerða- og sprengjueyðingarsveit Landhelgisgæslunnar var kölluð út á miðvikudag vegna tundurskeytis sem hafði lent í veiðarfærum togarans Pálínu Þórunnar GK í Sandgerði. Talið er að um sé að ræða fremsta hluta þýsks tundurskeytis úr seinni heimsstyrjöldinni. Sprengjan var um 300 kíló. Skriðuföll á Seyðisfirði Aurskriður féllu á Seyðisfirði í vikunni og var lýst yfir óvissu- stigi almannavarna eftir að tvær skriður féllu á þriðjudag á hús í bænum. Hluti bæjarins var rýmdur og fjöldahjálparstöð opnuð. Þegar mest var dvöldu tæplega 70 manns í hjálpar- stöðinni. Mikil rigning hefur verið á svæðinu og er veðurspá í næstu viku ekki góð. Engin slys hafa orðið á fólki. Rósa Björk í Samfylkinguna Rósa Björk Brynjólfsdóttir gekk til liðs við Samfylkinguna á miðvikudag. Rósa Björt hafði setið sem óháður þingmaður síðustu þrjá mánuði eftir að hún sagði sig úr þingflokki Vinstri grænna (VG). Rósa segir að hún hafi ekki lengur átt samleið með VG en hins vegar hafi pólitískar áherslur hennar og Sam- fylkingarinnar verið nátengdar. Samfylking er nú með átta þingmenn. Blæðingar á vegum Miklar bikblæðingar hafa verið á þjóðveginum, einkum á leiðinni milli Borgarness og Akureyrar og hefur fjöldi bif- reiða orðið fyrir tjóni auk þess sem slíkar blæðingar skapa hættuástand. Ferðalangar hafa verið hvattir til að fylgjast með framvindu mála og fresta ferðalögum ef það er unnt. Borghildur ber ekki ábyrgð Stjórn Knattspyrnusambands Íslands var einhuga sammála um að Borghildur Sigurðar- dóttir, varaformaður KSÍ, og annað starfsfólk kvenna- landsliðsins hefði sinnt starfi sínu í ferðalagi til Ungverja- lands af fagmennsku og bæri ekki ábyrgð á framkomu Jóns Þórs Haukssonar, fráfarandi landsliðsþjálfara. Jón Þór lét ummæli falla í ferðinni undir áhrifum áfengis sem þóttu afar óviðeigandi og sagði hann í kjölfarið starfi sínu lausu. 1 Guðlaugur Victor kveður móður sína með hjartnæmu bréfi: „Ég fyrirgef þér allt og ég vona að þú fyrirgefir mér“ Guð- laugur Victor Pálsson, landsliðs- maður í knattspyrnu, minntist móður sinnar sem féll frá aðeins 47 ára gömul. 2 14 ára sonur Kristjáns fékk lífstíðardóm – „Tölfræðin er á móti honum. En ég hef fulla trú“ Sonur Kristjáns Jóhanns Matthías- sonar, Brandon, var einungis 12 ára gamall þegar hann myrti unglings- dreng. Hann er nú kominn út á reynslulausn. 3 Samfélagsmiðlastjörnuferð á Þingvöllum – Kampavín og pakkaleikur Hópur áhrifavalda fór saman í sumarbústað á Þingvöllum og deildi myndum frá ferðinni. 4 Hélt að hún væri ættleidd – Sannleikurinn var skelfilegur Ung bandarísk kona komst að því að henni var rænt frá fjölskyldu sinni þegar hún var ungbarn. 5 Sakamál: Konan sem hvarf og fannst í gegnum Google Maps Maribel Ramos hvarf sporlaust árið 2013. Grunaður morðingi kom upp um sig með því að skoða ítrekað stað- setningu líkamsleifa hennar á Google Maps. 6 Annþór var með lögreglumenn á launum – „Yfirleitt nennti maður ekki að hreyfa sig fyrir minna en milljón“ Annþór Kristján Karlsson fór með Sölva Tryggvasyni yfir feril sinn í glæpum. 7 Rósa sveik 30 milljónir út úr aldraðri frænku sinni og geymdi í bankahólfi á Akureyri Landsréttur staðfesti dóm yfir Rósu Maríu Stefánsdóttur fyrir að svíkja 30 milljónir í reiðufé út úr aldraðri frænku sinni. 8 Læknir varar við – „Ef fyrsta bylgjan kom í vor þá er þetta flóðbylgja“ Læknir á háskóla- sjúkrahúsinu í Malmö lýsir óboð- legu ástandi á sjúkrahúsinu vegna kórónuveirunnar. 4 FRÉTTIR 18. DESEMBER 2020 DV
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.