Dagblaðið Vísir - DV - 18.12.2020, Blaðsíða 2
Jólakúlu-hvað?
J ólakúlur eru jólakúkur, hugsar Svarthöfði á meðan hann skrollar í
gegnum símaskrána sína til
að gera upp við sig hverjir
aðstandenda hans verði það
óheppnir að sitja með honum í
fámennri jólakúlu kófsins.
Svarthöfði er líkt og margir
aðrir Íslendingar skilnaðar-
barn og frú Svarthöfði er
það líka. Enda stunda flestir
Íslendingar makaveiðar á
sjötta bjór og eru ekki endi-
lega lukkulegir þegar rennur
af þeim. Í tilfelli Svarthöfða
þýðir þetta að jólin eru flókið
púsluspil af endalausum jóla-
boðum, jafnvel tvö á dag.
Sturlað dæmi. Og nú á að
velja úr þessum stóra hóp
örfáa útvalda inn í einhverja
aumingjalega jólakúlu? Ætlar
Þórólfur þá að koma og gera
það fyrir okkur hjónin, því við
nennum ekki að bera ábyrgð á
afleiðingunum. Hversu margir
foreldrar okkar eiga eftir að
senda okkur línuna: „Já, elsk-
urnar þið gerið það sem þið
viljið. En ég verð líklega dauð/
ur næstu jól.“
Svona bítur fast í meðvirkn-
ina og keyrir jólastreituna upp
í „barn-í-frekjukasti-í-bónus-
ástand“.
Svarthöfði var einmitt að
hugsa um jólakúlu-klemmuna
þegar hann brá sér í Kringluna
einn eftirmiðdaginn þegar
flestir eðlilegir Íslendingar
ættu að vera við vinnu. Þegar
Svarthöfði beygði inn í bíla-
stæðahúsið rann þó fljótlega
upp fyrir honum ljós, að lík-
lega væri ekki einn einasti Ís-
lendingur í vinnu því þeir voru
greinilega allir í Kringlunni.
Ekki eitt einasta bílastæði að
sjá og heilu raðirnar af bílum
að hringsóla í leit að fyrir-
heitna stæðinu.
Ef það er eitthvert fólk sem
ætti að mega skjóta á færi þá
eru það fíflin í bílaröðum sem
stoppa alla röðina því þeir ætla
að bíða eftir að konan með inn-
kaupapokana sem var að labba
fram hjá finni bílinn sinn, komi
sér fyrir og rými stæðið. Þetta
hlýtur að vera eitthvert sérís-
lenskt frekju-heilkenni sem
Svarthöfði mun aldrei skilja.
Þegar hvert og eitt einasta
bílastæði er fullt fyrir utan
verslunarmiðstöð, þá á maður
ekkert erindi þangað inn.
En hvað er þá til ráða? Sami
heimsendamúgurinn er í
Smáralindinni líka og Lauga-
vegurinn er löngu orðin dauð
hugmynd, enda ekkert að finna
þarna fyrir Íslending lengur.
En Svarthöfði verður seint
kallaður skynsamur svo hann
lét sig hafa það að leggja hjá
Suðurveri og drösla sér í
Kringluna.
Þar inni var eina merkið um
heimsfaraldurinn grímurnar
sem fólk bar og raðirnar fyrir
utan verslanirnar. Hundruð
manna, stórar hópamyndanir,
sviti, blóð og tár. Grenjandi
börn með hor, grenjandi for-
eldrar í uppgjöf, eldri borgarar
í hressingargöngu, unglingar
með vesen og jólatónlist sem
enginn heyrir í fyrir látum.
Ógeðsleg smitgróðrarstía.
Hvílíkur viðbjóður, hugsaði
Svarthöfði ítrekað á meðan
hann olnbogaði sig í gegnum
þvöguna. Hann er nefnilega
ekkert skárri en hinir. Engin
jólakúla virðist vera stærri
en jólakúla Kringlunnar og
Smáralindar. Við hin fáum
bara þessa aumingjalegu tíu
manna kúlu og eigum að þakka
fyrir það. n
SVART HÖFÐI
Aðalnúmer: 550 5060
Auglýsingar: 550 5070
Ritstjórn: 550 5070
FRÉTTA SKOT
550 5070
abending@dv.is
Það koma samt jól
É
g líkt og aðrir hef bölvað þessu ástandi
í sand og ösku. Kannski meira ofan í
rauðvínsglasið og konfektkassann af
því að ég reyki ekki og er búin að setja
hellu ofan á sandkassann í garðinum
svo kettirnir í hverfinu mígi ekki í hann
eða næsta appelsínugula viðvörun feyki ekki öllum
hvolpasveitarfötunum út um allt hverfi.
Að því sögðu þá hefur Jólakúluástandið þó gefið
mér eitt. Nei, ekki frí frá leiðinlegum ættingjum í
útþynntum majónesboðum heldur heilbrigðari sýn á
hvað ég „þarf“ að gera.
Mér finnst ég yfirleitt þurfa að gera mikið. Ég vil
skara fram úr.
Heimabakað, handgert konfekt, heimagerðir
kransar og skreytingar, vel þrifið, huggulega inn-
pakkað, einstaklega velheppnaðar gjafir, handgerðir
merkimiðar, heimagerðar sápur og kerti, seríur á öllu
sem möguleiki er á að hægt sé að drífa í
næstu innstungu … jesús og ekki gleyma
samstæðum fötum á börnin, svo er það
jólamyndatakan, snjókarl í garðinn,
sleðaferð, kakó, skautaferð, jóla-
trésferð, skreyta tré og piparkökur,
þrífa bílinn, sópa tröppurnar, fara
í kirkjugarðinn og vinna tvöfalt til
að geta verið í fríi á frídögum, já og
einhvern veginn sinna börnunum
sem eru í jólafríi.
Og allt þetta án þess að grenja.
Alla vega ekki hátt. Það er svo
óhátíðlegt. Snyrtilegast að
skæla mjög stutt og ákveðið
– helst í baði. Nánast eins og
að hnerra.
Að því sögðu þá bókaði
ég okkur í myndatöku.
Af því að ég trúi því að
við getum verið venjuleg
fjölskylda og látið það
ganga upp.
Nei. Barn 1 trylltist yfir
fatavalinu. Fannst ég ömurlegur
stílisti.
„Ætlarðu að eyðileggja líf mitt
með þessum kjól?“
Við komu til ljósmyndarans
hringir síminn stanslaust hjá eiginmanninum.
Jólastjarna í glugganum heima, glugginn opinn og
öryggiskerfið fór í gang. Það þarf að virkja nágrann-
ann til að fara inn og slökkva á kerfinu sem ærir nú
allt hverfið.
Börnin eru aldrei á sama bletti hjá ljósmyndar-
anum. Önnur hefur komið auga á akrýlmálningu sem
hún ætlar sér að komast í. Það er búð í sama rými
sem sú yngri er með á heilanum og fær „lánað í“.
Ég skila og afsaka og lofa sjálfri mér að næsta
myndataka verði vídeóverk.
Komum heim. Gefum börnunum að borða, reynum
að koma þeim í bólið. Allir lagstir.
Jólasveinninn verðlaunar ekki óþekkt.
Ahhh. Þögn.
Dásamlegt.
Nei, guð. Þetta stenst ekki.
Fer upp og góma þar yngri dótturina skellihlæjandi
í rimlarúminu. Búin að rífa sig úr öllum fötunum og
bleyjunni. Henda því á gólfið og pissa í rúmið.
„Sjáðu, mamma. Fyndið.“
Muna – ekki bugast. Það er svo óhátíðlegt!
Tek af rúminu, skipti á barninu, afhendi það föð-
urnum.
Jæja, þá er myndatakan búin og allt hitt á listanum
eftir. Eða hvað?
Það má kannski sleppa því að baka nema eina sort
því það kemur enginn í heimsókn? Hvað ef ég vel
bara 10 atriði af 62 atriða listanum? Sleppi bara hinu?
Ég fékk mér tvo jólabjóra í eitt glas, gaf skít í langa
listann og vitið þið hvað …
Það koma samt jól. n
Nei guð. Þetta
stenst ekki.
UPPÁHALDS
ÚTGÁFUFÉLAG: Torg ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Helgi Magnússon FORSTJÓRI OG ÚTGEFANDI: Björn Víglundsson RITSTJÓRI: Þorbjörg Marinósdóttir, tobba@dv.is
FRÉTTASTJÓRI: Erla Hlynsdóttir, erlahlyns@dv.is AUGLÝSINGAUMSJÓN: Sigurbjörn Richter,sigurbjorn@dv.is PRENTUN: Torg prentfélag DREIFING: Póstdreifing
DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins á stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds.
Öll viðtöl blaðsins eru hljóðrituð. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis. DV, Kalkofnsvegi 2, 101 Reykjavík Sími: 550 7000.
2 EYJAN
Bergrún Íris Sævarsdóttir
metsöluhöfundur elskar
sundlaugar. „Ég er svo glöð
að sundlaugar landsins séu
loks að opna aftur að ég varð
að telja upp fimm uppáhalds
baðstaðina mína.“
1 Sundhöll Hafnarfjarðar
Á toppnum trónir fallegasta
laug landsins, Sundhöll
Hafnarfjarðar eftir Guðjón
Samúelsson, þáverandi húsa-
meistara ríkisins. Við köllum
laugina stundum „stóra bað-
karið okkar“ því við búum
í götunni og notum hana
mikið. Laugin hefur birst í
ótalmörgum sjónvarps- og
tískumyndaþáttum enda er
hún heillandi fögur með sína
háu glugga.
2 Guðlaug
Guðlaug er einstök perla á
Akranesi en myndi líklega
frekar teljast heitur pottur
frekar en sundlaug. Þar er
útsýnið óviðjafnanlegt, hita-
stigið akkúrat mátulegt og
stutt í sjóinn fyrir hugrakka!
3 Ásvallalaug
Í þriðja sæti er Ásvallalaug
sem er nær öll innanhúss.
Laugin er bæði góð fyrir þá
sem æfa sund, eins og syni
mína tvo, en líka fyrir kulda-
skræfur sem finnst gott að
bleyta sig án þess að norpa á
köldum sundlaugarbakka.
4 Kópavogslaug
Kópavogslaugin á Kársnesi
var annað heimili mitt hér í
denn. Þar lærðum við systur
að synda og á sumrin var
farið lágmark tvisvar á dag í
laugina. Seinni laugarferðin
var alltaf seint um kvöld
til að ná allra síðustu ferð í
rennibrautina.
5 Vök Baths
Vök Baths, rétt hjá Egils-
stöðum, kom svo rækilega
á óvart í sumar að hún nær
strax á topp fimm listann,
þrátt fyrir að ég hafi bara
komið þangað einu sinni!
Gullfallegt umhverfi og
gaman að dýfa sér í Urriða-
vatn í leiðinni til að sýna sitt
sanna hetjueðli.
SUNDLAUGAR
18. DESEMBER 2020 DV