Dagblaðið Vísir - DV - 18.12.2020, Blaðsíða 25
FÓKUS 25DV 18. DESEMBER 2020
ÞINGMENNIRNIR
GOS-ARNIR
BORGARSTJÓRNIN
DEILUAÐILAR
Brynjar Níelsson, þingmaður Sjálf-
stæðisflokksins, og Helga Vala
Helgadóttir, þingman Samfylk-
ingarinnar, eru sjaldan sammála í
stjórnmálum enda annað þeirra í
sitjandi meirihluta og hitt í stjórnar-
andstöðunni.
Það eru líklega fá fyrirtæki í jafn stífri sam-
keppni og Ölgerð Egils Skallagrímssonar og kók-
framleiðandinn CCEP (áður Vífilfell). Fyrirtækin
hafa meira að segja skipt þjóðinni í tvo hópa – þá
sem drekka kók og þá sem drekka pepsí.
Dagur B. Eggertsson borgarstjóri og Vigdís
Hauksdóttir, borgarfulltrúi Miðflokksins, eru
engin skoðanasystkin. Vigdís er í minnihluta
borgarstjórnar og hefur verið dugleg að láta í sér
heyra þegar borgarstjórn gerir eitthvað sem hún
er ósammála. Eins hefur Dagur ósjaldan látið í
ljós skoðanir sínar á minnihlutanum.
Dóra Björt Guðjónsdóttir, borgar-
fulltrúi Pírata, og Eyþór Laxdal
Arnalds, borgarfulltrúi Sjálfstæðis-
flokksins, hafa tekist á árið 2020.
Dóra Björt hefur krafið Eyþór um
að gera hreint fyrir sínum dyrum
varðandi Samherja á meðan Eyþór
hefur sakað Dóru Björt um þrá-
hyggju og samsæriskenningar.
BRYNJAR NÍELSSON
„Ég myndi gefa henni tvær litlar gjafir. Annars vegar
gorma undir skóna svo hún geti stokkið hærra á vin-
sældavagninn og hins vegar bókina Frelsið eftir John
Stuart Mill.”
EINAR MAGNÚSSON,
FORSTJÓRI CCEP
„Ég get ekki hugsað mér að nokkur
maður fari í gegnum jólin án Coca-
Cola, ég myndi gefa honum nokkr-
ar klassískar og nokkrar án sykurs.
Svo hefði hann örugglega gaman
af því líka að smakka vinsælasta
íslenska jólabjórinn, Víking.”
VIGDÍS
HAUKS-
DÓTTIR
„Ég ætla að
gefa Degi B.
Eggertssyni
mjög mikil-
væga g jöf
f y r ir hann
og gjöfin er
friður frá mér
yfir jólahátíð-
ina.”
EYÞÓR ARNALDS
„Það væri ekki úr vegi að gefa Dóru Björt Frelsið eftir
John Stuart Mill í jólagjöf. Enda eru hugmyndir hennar
um að borgin eigi að reka malbikunarstöð til að tryggja
samkeppni álíka skynsamlegar og að borgin reki sjálf
matvörubúðir í hverfum borgarinnar fyrir skattfé.
Frelsið er verðmætt og Frelsið er góð og holl jóla-
lesning fyrir Dóru. Minni afskipti og lægri skattar auka
frelsi fólksins í borginni.”
HELGA VALA HELGADÓTTIR
„Ég gef Brynjari vini mínum það tvennt sem hann ann
mest, fyrir utan Fríðu, eiginkonu sína; tvöfaldan vodka
í kók og Árskort Vals – gullslegið.”
ANDRI ÞÓR GUÐMUNDSSON,
FORSTJÓRI ÖLGERÐARINNAR
„Til þess að hann og fjölskylda
hans eigi fullkomin jól myndi ég
gefa honum kassa af sykurskertu
Malti og Appelsíni enda er það að
verða uppselt. Það eru engin jól
án Egils Malts og Appelsíns.”
DAGUR B. EGGERTSSON
Ég myndi gefa Vigdísi frí og risastóran konfektkassa.
DÓRA BJÖRT GUÐJÓNSDÓTTIR
Mér finnst bestu jólagjafirnar vera eitthvað sem sá sem gefur hefur upp-
götvað að viðkomandi vanti, jafnvel án þess að viðkomandi geri sér grein
fyrir því. Móðir mín er til dæmis mjög lagin við þetta og heldur lista yfir
mögulegar gjafir allt árið. Í þessum anda með gjafmildina alltumlykjandi
myndi ég vilja gefa Eyþóri vel bruggaðan sannleiksseyð svo hann komi loks
hreint fram með þetta ókeypis lán og hvort hann sé í vasanum á Samherja
sem ég hef enn ekki fengið nein almennileg svör við. Enginn á svo að fara
inn í hátíðina án góðs lesefnis svo ég myndi bæta við Jólasögu Dickens
um Ebenezer Scrooge sem fékk þrjá drauga í heimsókn - enda mikið að
læra af þeirri sögu.
MYND/DV
MYND/EYÞÓR
MYND/AÐSEND MYND/GVA
MYND/AÐSEND
MYND/DV
MYND/ALÞINGI
MYND/ALÞINGI