Dagblaðið Vísir - DV - 18.12.2020, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 18.12.2020, Blaðsíða 6
6 FRÉTTIR 18. DESEMBER 2020 DV UPPLIFA RASISMA HJÁ FJÖLSKYLDUHJÁLP Fjöldi fólks hefur stigið fram og greint frá rasisma og annars konar mismunun hjá Fjölskylduhjálp Íslands. Málið er tekið alvarlega innan Reykjavíkurborgar og kallar fjölmenningarráð eftir svörum. É g var svakalega spennt að mæta sem sjálfboða­liði. Þarna mættu mér svo þrír, fjórir öfgarasistar sem eru fastir sjálfboðaliðar. Ég var þarna ásamt einni annarri útlenskri konu og við bara frusum við að hlusta á þær,“ segir ung kona af mar­ okkóskum uppruna sem mætti til Fjölskylduhjálparinnar í vor. Konan er ein þeirra sem komu á fund fjölmenningar­ ráðs Reykjavíkurborgar í vikunni og lýstu reynslu sinni af Fjölskylduhjálp. Hún er í Háskóla Íslands þar sem hún tók valkúrs í sjálfboðaliðastarfi og var þar hvött til að sækja um hjá ýmsum stöðum, og var Fjöl­ skylduhjálp sérstaklega nefnd sem góður möguleiki. „Það var skelfilegt að heyra hvern­ ig nokkrar eldri konur þarna töluðu um útlendinga. Ein þeirra fór síðan að gera grín að nafninu mínu og reyndi að fá aðra til að taka undir og hlæja með,“ segir konan sem síðar hafði samband við Ásgerði Jónu Flosadóttur, for­ mann Fjölskylduhjálparinnar, til að upplýsa hana um rasism­ ann sem hún varð vör við meðal annarra sjálfboðaliða. „Ég bjóst við að hún segðist ætla að skoða málið en hún fór strax í vörn, sagði engan ras­ isma hjá Fjölskylduhjálpinni og neitaði meira að segja að hafa haft sjálfboðaliða hjá sér af erlendum uppruna, eins og hún væri að neita að ég hefði verið sjálfboðaliði hjá þeim.“ Sögurnar safnast saman Fjölmenningarráð Reykja­ víkurborgar fékk á fund sinn í vikunni fjölda aðila sem miðluðu reynslu sinni af Fjöl­ skylduhjálp. Í kjölfarið sendi ráðið frá sér sameiginlega bókun þar sem óskað er eftir því að Fjölskylduhjálp Íslands skili greinargerð um hvernig unnið sé gegn mismunun þar. Fyrrverandi sjálfboðaliði hjá Fjölskylduhjálp Íslands kom fram í viðtali hjá Stöð 2 í síðustu viku og sagðist hafa ákveðið að hætta að starfa með samtökunum eftir að hún hefði orðið vitni að mismunun á grundvelli trúarbragða við úthlutun matvæla. Þá hafði Stöð 2 rætt við fleiri fyrrver­ andi og núverandi skjólstæð­ inga sem saka formanninn um niðurlægjandi framkomu gagnvart sér. Þá hefur Ásta Þórdís Skjald­ dal Guðjónsdóttir, formaður Pepps sem eru samtök fólks um fátækt, sagst hafa fengið niðurbrotna skjólstæðinga Fjölskylduhjálparinnar til sín. Í framhaldi af þessum fréttaflutningi sendu Sam­ tök kvenna af erlendum upp­ runa (W.O.M.E.N) frá sér yfirlýsingu þar sem þau hvetja Reykjavíkurborg til þess að krefjast rannsóknar á starf­ semi góðgerðasamtakanna Fjölskylduhjálpar og draga til baka fjárstuðning frá borginni ef Fjölskylduhjálp starfar ekki í samræmi við mannréttinda­ stefnu Reykjavíkurborgar. Fjölskylduhjálp sendi síðan frá sér yfirlýsingu þar sem kemur fram að 58 prósent skjólstæðinga hennar séu af erlendum uppruna og því hafnað að nokkur mismunun eigi sér þar stað. Skammaðist mín Unga konan sem fór sem sjálfboðaliði í gegn um HÍ til Fjölskylduhjálpar segist hafa fengið orkudrykki, gos og snarl fyrir framlag sitt. Þegar mamma hennar, sem er öryrki, frétti af því vildi hún einnig gerast sjálfboðaliði því hún hafði vart efni á mat. „Ég skammaðist mín svo fyrir að hafa verið spennt fyrir að gerast sjálfboðaliði þarna að ég sagði henni ekki frá rasismanum. Mamma er líka stolt af sínum uppruna en ég hvatti hana til að sleppa því að fara þangað. Mér fannst ég þurfa að vernda hana og hafði áhyggjur af því að hún yrði lögð í einelti ef hún færi í Fjöl­ skylduhjálpina sem sjálfboða­ liði,“ segir hún. Konan vildi koma fram nafnlaust af ótta við hefnd­ araðgerðir Ásgerðar Jónu en Ásgerður nafngreindi skjól­ stæðing Fjölskylduhjálpar í beinni útsendingu í þættinum Í bítið á Bylgjunni fyrir þrem­ ur árum eftir að konan hafði nafnlaust í viðtali við DV lýst yfir vonbrigðum vegna jóla­ hjálpar Fjölskylduhjálpar­ innar. Þá var það ekki fyrr en nýlega sem hún tilkynnti kennaranum sínum úr HÍ um viðmótið en þá hafði hún heyrt fleiri viðlíka sögur eftir að hafa fyrst haldið að hennar upplifun væri undantekning. Öruggari með hvítri systur DV ræddi einnig við aðra unga konu sem hefur þurft að leita til Fjölskylduhjálpar vegna fá­ tæktar og upplifað mismunun vegna húðlitar. Konan er ríf­ lega þrítug, tveggja barna móðir, ættuð frá Suður­Am­ eríku og Afríku og var ætt­ leidd inn í hvíta fjölskyldu á Íslandi. „Systir mín er hvít og ég reyndi að fara með henni þegar ég var að sækja mat­ araðstoð til Fjölskylduhjálp­ arinnar því þá fannst mér ég vera öruggari,“ segir hún. Hún segist hafa upplifað mikinn hroka og dónaskap, og heyrt sjálfboðaliða tala illa um konur með blæjur. „Í eitt skiptið sagði ein konan: „Ekki setja svona mikið hjá henni,“ en ég veit ekki alveg hvort hún átti við mig eða múslimska konu sem var við hliðina á mér. Kannski héldu þær að ég skildi ekki íslensku. Ég hef líka heyrt hvernig tónninn er í röddinni hjá sumum sjálf­ boðaliðunum þegar einhver sem talar íslensku kemur. Það er allt annað viðmót.“ Hún rifjar upp eitt skiptið þegar hún hafði gleymt að sækja um úthlutun, og systir hennar hringt og sagt henni bara að drífa sig. „Hún hafði þá líka gleymt því en fór til Fjölskylduhjálparinnar og fékk matarúthlutun. Ég lagði strax af stað en þegar ég kom mætti ég bara dónaskap. Það var ekki fyrr en ég nefndi ís­ lenskt nafn systur minnar að það breyttist,“ segir hún. Konan segist enn þurfa á mataraðstoð að halda en tvö ár séu síðan hún hætti að fara til Fjölskylduhjálparinnar. „Ég fer frekar til Mæðrastyrks­ nefndar því þær eru almenni­ legar og koma fram við mig eins og ég sé manneskja en ekki, tja, brún manneskja. Ég var farin að upplifa mikinn kvíða í hvert sinn sem ég fór í Fjölskylduhjálpina en það er allt annað að fara til Mæðra­ styrksnefndar. Þær sýna manni virðingu,“ segir hún. Of upptekin fyrir viðtal Blaðamaður DV fór á úthlutun Fjölskylduhjálparinnar í vik­ unni og spurði eftir Ásgerði Jónu en hún var þá baka til og vildi ekki koma og ræða við blaðamann. Sjálfboða­ liði á staðnum sagðist mjög ósáttur við þá gagnrýni sem hefur birst í garð Fjölskyldu­ hjálparinnar að undanförnu, sagði það algjöra firru að þar liðist nokkur mismunun. Í símtölum til Fjölskyldu­ hjálparinnar fengust þau svör að Ásgerður Jóna væri of upp­ tekin við úthlutanir til að veita viðtal. n Margir segjast hafa upplifað mismunun þegar þeir sækja sér að- stoð hjá Fjöl- skylduhjálp Íslands. Ás- gerður Jóna Flosadóttir, formaður Fjöl- skylduhjálpar, hefur ekki tjáð sig undan- farna daga. MYND/SAMSETT Erla Hlynsdóttir erlahlyns@dv.is Ekki setja svona mikið hjá henni.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.