Dagblaðið Vísir - DV - 18.12.2020, Blaðsíða 13
Saga er einn vinsælasti grínisti landsins og hefur meðal annars tekið þátt í skrifa og leika í áramótaskaupinu. MYND/ANTON BRINK
FRÉTTIR 13DV 18. DESEMBER 2020
tala um það í kringum árið 16
eftir Krist. Við eigum að ögra
hinu hefðbundna. Það er ekki
bara spennandi, það er líka
nauðsynlegt og oft fyndið.“
Batmanprinsessa
Saga ögrar staðalímyndum
ítrekað í starfi sínu sem leik-
kona og grínisti en hún er með
einstaklega áhugavert verk
í vinnslu sem hefur hlotið
vinnuheitið Batmanprins-
essan og Mjallhvít kóngur.
„Ég held reyndar að Batman
sé höfundarréttarvarið en það
kemur í ljós, en það fjallar
um að Batman getur vel verið
prinsessa líka. Þú þarft ekki
að vera annað hvort. Eitt úti-
lokar ekki hitt. Eins og þegar
fólk talar um stelpustrák.
Það er bara stelpa sem hefur
áhuga á kannski fótbolta eða
er æst og agressíf. En það
gerir hana ekkert að strák.
Hún er bara æst stelpa. Það
er óþolandi að það sé búið
að eigna einu kyni einhverja
ákveðna eiginleika. Þessi kvöð
að skilgreina sig sem konu eða
mann er svo hamlandi.“
Saga les mikið fyrir dóttur
sína og segist ítrekað leið-
rétta myndmálið í bókunum
og gefa kvenpersónunum ný
nöfn. „Eina leiðin til að kom-
ast í gegnum til dæmis Eril-
borg er að hætta að tala um
hvort dýrin eru karl eða kona
og segja bara: Þarna er flotta
kanínan að versla í matinn.
Og ef dóttir mín spyr hvort
þetta sé mamman segi ég: Eða
pabbinn í nýjum fínum kjól.
Svo er alltaf verið að setja ein-
hverjar risa slaufur á konur
eins og konur séu alltaf með
risa slaufu. Þá geri ég í því að
segja: Sjáðu hvað pabbinn er
með fallega slaufu á hausnum.
Hún mótmælir þá strax en
ég lýg því blákalt að pabbi
hennar gangi með slaufu
oná hausnum á sumrin þegar
hann er ekki með hatt. Annars
reyni ég að segja satt.“
Kamína og gleðileg jól
Saga átti að stíga á svið í
Borgarleikhúsinu í mars í
leikritinu Veisla sem hún
samdi ásamt leikhópnum sem
stendur að sýningunni. Til-
hlökkunin var mikil, tónlistin
samin af Berndsen og öll um-
gjörð verksins lofaði sannkall-
aðri veislu. Faraldurinn tók
þó í taumana og ítrekað hefur
sýningunni verið frestað.
„Ég var svo spennt að fá
fasta vinnu með kaffivél.
Þetta er stærsta tækifærið
mitt í leikhúsinu – árið sem
leikhús er bannað. Við erum
líklega að fara að frumsýna
ári eftir að æfingar hófust,
þetta er mögulega mest æfða
leikrit heims.“
Frumsýningunni hefur
verið frestað þrisvar en
Saga heldur í jákvæðnina og
gleðina. „Það tekst oftast –
en það tekur sinn toll. Það er
enginn sem ég þekki sem hef-
ur ekki sömu sögu að segja.
Stundum nær fólk að halda í
jákvæðnina í COVID-aðstæð-
unum en ekki alltaf. En mikið
verður gaman að hitta fólk og
segja því brandara og halda
veislu.“
Saga er jólabarn og hlakkar
til jólanna þó að hún vilji helst
skilgreina sig sem sumarbarn.
Hún er þó ekki búin að kaupa
neina gjöf en er laus við alla
örvæntingu. „Ég veit ekkert
hvað ég ætla að gefa neinum.
En við eigum kamínu! Við vor-
um að flytja og fengum okkur
kamínu. Það er ekkert jóla-
legra,“ segir JólaSaga – sem er
rétt að hefja sína eigin sögu.
Full af orku og eldmóði. n
Batman getur vel verið
prinsessa líka. Þú þarft
ekki að vera annað hvort.