Dagblaðið Vísir - DV - 18.12.2020, Blaðsíða 54
54 SPORT 433 18. DESEMBER 2020 DV
verið að ganga í gegnum sitt
besta tímabil í sögu landsliðs-
ins undanfarin ár og því erfitt
fyrir nýja og unga leikmenn
að komast inn í byrjunarliðið.
Arnór segist hins vegar hafa
lært mikið af leikmönnum
liðsins.
„Ég hef lært ótrúlega mikið
á því að vera hluti af þessum
leikmannahóp sem myndar
landsliðið hverju sinni. Þarna
eru miklir karakterar og leið-
togar eins og Kári Árnason
og Aron Einar Gunnarsson.
Það hefur kennt mér mikið
að fylgjast með þeim og vera
í kringum þá í þessum mikil-
vægu leikjum.“
Arnór hlakkar til komandi
verkefna með landsliðinu og
er með sín markmið klár.
Ég er mjög spenntur fyrir
næstu undankeppni með
landsliðinu. Ég er tilbúinn í að
taka að mér stærra hlutverk
með landsliðinu en ég átta mig
líka á því að liðið hefur verið
að gera frábæra hluti undan-
farin ár og þess vegna er ég
þolinmóður.“
Hann gefur lítið fyrir
vangaveltur sumra um að
tími sé kominn á stórfelldar
breytingar í landsliðinu.
„Það er auðvitað alltaf
markmið að vinna sér fast
sæti í landsliðinu. Það hefur
verið talað um möguleg kyn-
slóðaskipti í liðinu en megnið
af landsliðshópnum er í kring-
um þrítugt og það er enginn
aldur. Þetta er í raun aldur
þar sem leikmenn geta verið
að toppa. Það hefur verið mik-
ið talað um að einhverjir leik-
menn séu komnir á endastöð
en það er bara alls ekki rétt.“
Erik Hamrén, fyrrverandi
landsliðsþjálfari Íslands og
aðstoðarmaður hans, Freyr
Alexandersson, létu af störf-
um eftir að liðinu mistókst
að tryggja sér sæti á Evrópu-
mótinu á næsta ári. Arnór er
ánægður með störf þeirra.
„Ég hef bara góða hluti að
segja um Hamrén og Frey.
Þeir voru mjög flottir og
miklir fagmenn. Ég átti í
góðum samskiptum við þá
báða. Þetta verkefni sem þeir
tóku að sér með landsliðinu
var fyrirfram erfitt og síðan
spilast inn í meiðslavandræði
leikmanna. Við vorum bara
hársbreidd frá því að komast
á Evrópumótið og það sýnir
bara hversu góða hluti þeir
gerðu með liðið. Við leikmenn-
irnir erum bara ánægðir með
þeirra störf og þakklátir fyrir
þeirra framlag. Framhaldið er
spennandi, við erum að fara í
mikilvæga undankeppni og
ég er spenntur að vinna með
þeim einstaklingum sem taka
við liðinu af Hamrén og Frey.“
Er að upplifa
æskudrauminn
Það hefur verið markmið
Arnórs frá því í barnæsku að
verða atvinnumaður í knatt-
spyrnu. Hann tekur þessu
starfi sínu ekki sem sjálf-
sögðum hlut.
„Það eru forréttindi að fá
tækifæri til þess að vinna
við það sem manni finnst
skemmtilegt að gera. Þetta
hefur verið draumur minn
frá því í barnæsku. Ég komst
fljótt að því þegar ég hélt út
til Svíþjóðar að þetta ferli
væri langhlaup. Ég hef fundið
mikinn meðbyr síðastliðin ár
og mér hefur gengið vel.“
Arnór er með báða fætur á
jörðinni og þótt hann væri til
í að vera spila meira núna þá
veit hann að hann getur tekist
á við komandi verkefni.
„Ég er kannski að lenda í
aðeins erfiðari tímum núna
og þá sér maður þetta í öðru
ljósi. Ég er þakklátur fyrir
það á hverjum degi að fá að
spila knattspyrnu á þessu stigi
og fá að hafa það sem atvinnu
mína. Ég er bara 21 árs og er
nú þegar búinn að fá tækifæri
til að spila í Meistaradeild
Evrópu, Evrópudeildinni og
með landsliðinu. Ef mér hefði
verið sagt fyrir tíu árum að
þetta yrði staðan, þá er ég
ekki viss um að ég hefði trúað
því að ég yrði kominn svona
langt á þessum tímapunkti.“
Mun skoða stöðu sína
varðandi næstu skref
Árið 2020 hefur skorið sig úr
sökum COVID-19 faraldurs-
ins, faraldurinn hefur þó ekki
haft eins mikil áhrif á Arnór
og kollega hans á Englandi svo
dæmi sé nefnt.
„Deildin hérna í Rússlandi
stoppaði um stund á síðasta
tímabili vegna COVID-19. Þá
hélt maður bara heim á leið
til Íslands og eyddi tíma þar.
Rússland hefur samt verið eitt
af fáum ríkjum sem hafa leyft
áhorfendur á knattspyrnuvöll-
unum í gegnum faraldurinn
og það hefur verið lítið um
lokanir hérna úti. Þetta eru
skrýtnir en jafnframt áhuga-
verðir tímar.“
Arnór skrifaði undir nýjan
samning við CSKA Moskvu
árið 2018 og á tvö og hálft ár
eftir af samningi sínum þar.
Hann viðurkennir hins vegar
að hann sé farinn að íhuga
stöðu sína hjá félaginu.
„Rússneska deildin fer fljót-
lega í vetrarfrí. Það er alveg
ljóst að ég mun skoða mína
stöðu hjá félaginu á næstu vik-
um. Ég hef ekki verið nægi-
lega sáttur við stöðu mína hjá
CSKA Moskvu undanfarið.
Ég mun líta í eigin barm og
skoða þetta allt saman út frá
því hvað ég tel vera best fyrir
mig og minn knattspyrnuferil.
Hvort sem það verður áfram
hjá CSKA Moskvu eða í nýju
umhverfi.“
Fyrst á dagskrá sé hins
vegar að koma heim til Ís-
lands yfir jólin og verja tíma
með fjölskyldunni. n
Arnór skrifaði undir nýjan samning við CSKA Moskvu árið 2018. MYNDIR/GETTY
FAGNAR
Það hefur
verið mark-
m i ð A r n -
órs frá því
í barnæsku
að verða at-
vinnumaður í
knattspyrnu.
KLÁR
Arnór hlakkar
t il komandi
verkefna með
landsl ið inu
og er með
mark mið sín
klár.