Víkurfréttir - 29.07.2020, Blaðsíða 5
Reykjanesbær fékk tvö þúsund
andlitsgrímur að gjöf frá Kína
Jin Zhijian, sendiherra Kína, afhenti Kjartani Má Kjartanssyni, bæjar-
stjóra í Reykjanesbæ, tvö þúsund andlitsgrímur í heimsókn bæjar-
stjórans í kínverska sendiráðið 22. júlí síðastliðinn. Tilefni heimsóknar-
innar var m.a. að endurgjalda heimsókn Jin í ráðhús Reykjanesbæjar
í apríl í fyrra en einnig til að ræða með hvaða hætti væri hægt að efla
vinabæjarsamstarf milli Reykjanesbæjar og Xianyang-borgar. Reykja-
nesbær og Xianyang hófu formlegt vinabæjarsamstarf árið 2014 og
hefur verið vilji til að efla tengslin.
Borgaryfirvöld í Xianyang vildu
gefa Reykjanesbæ andlitsgrím-
urnar til að styðja við mikil-
vægar sóttvarnir í baráttu við
kórónuveiruna. Grímurnar verða
nýttar í viðkvæmum stofnunum
og starfsstöðvum Reykjanesbæjar
fyrir bæði starfsmenn og aðra íbúa
bæjarins sem heimsækja þær.
Margrét Elín ráðin sem yfirkennari
Flugakademíu Íslands
Margrét Elín Arnarsdóttir hefur verið ráðin til
starfa sem yfirkennari hjá Flugakademíu Íslands.
Skólinn var nýlega sameinaður úr Flugakademíu
Keilis og Flugskóla Íslands og er nú stærsti flug-
skóli landsins. Margrét Elín býr yfir umtalsverðri
reynslu úr flugheiminum og hefur meðal annars
starfað sem flugmaður hjá Icelandair síðan 2014
og þar áður sem flugumferðarstjóri hjá Isavia.
Auk þess hefur Margrét starfað til fjölda ára sem
bók- og verklegur flugkennari hjá Flugakademíu Keilis.
„Ég er mjög spennt fyrir komandi
tímum. Stærsta verkefnið til að
byrja með er að innleiða upp-
færða samevrópska námsskrá.
Það er líka vert að minnast á það
að þrátt fyrir að flug sé í lágmarki
núna vegna veirufaraldurs þá
hefur sagan sýnt okkur að besti
tíminn til að læra flug sé í kreppu.
Það kemur á endanum uppsveifla
í fluginu aftur og þá er um að gera
að vera tilbúinn,“ segir Margrét
Elín, nýráðinn yfirkennari Flug-
akademíu Íslands.
Skólinn er sá eini sinnar teg-
undar sem býður upp á nám til
atvinnuflugmanns á Íslandi og er
jafnframt einn öflugasti flugskóli
á Norðurlöndunum. Þann 14. júní
síðastliðinn útskrifuðust 78 at-
vinnuflugnemar sem er stærsta
einstaka brautskráning atvinnu-
flugmanna á Íslandi frá upphafi.
Nú þegar er orðið fullt í einn bekk
á haustönn og búið að opna fyrir
umsóknir í annan bekk. Umsókn-
arfresturinn rennur út 15. ágúst.
„Við bjóðum Margréti hjartan-
lega velkomna til starfa. Það
er magnað að fá svona öflugan
og faglegan kennara til liðs við
okkur og við hlökkum mikið til
að starfa með henni,“ segir Björn
Ingi Knútsson, forstöðumaður og
rekstrarstjóri flugakademíunnar.
Nám í Flugakademíu Íslands er
kennt sem staðnám frá Keflavík
og Hafnarfirði. Einnig býðst nem-
endum að taka hluta af náminu í
fjarnámi. Flogið er frá bæði Kefla-
víkur- og Reykjavíkurflugvelli en
Flugakademía Íslands er eini flug-
skóli landsins sem býður upp á
flug frá alþjóðaflugvelli.
Kjartan Már og Jin Zhijian,
sendiherra Kína.
Fjölbreytt ferskt
Fiskbúð Reykjaness
þar sem ferðalag bragðlaukanna hefst
Tökum á móti ykkur með bros á vör ... hjartanlega velkomin!
Brekkustíg 40 // Opnunartími: Mánudaga til fimmtudaga frá 10:00 til 19:00, föstudaga frá 10:00 til 18:00
Þjónustum
fyrirtæki,
mötuneyti og
veitingastaði
Fyrirspurnir berist í bæði
síma 7839821 og tölvupóst
fiskbudreykjanes@gmail.com
Miðvikudagur 29. júlí 2020 // 29. tbl. // 41. árg.
víkurFrÉttir á SuðurNESjuM í 40 ár // 5