Víkurfréttir - 29.07.2020, Blaðsíða 21
Missti tímaskynið aleinn
í heiminum að Fjallabaki
Myndavélin og kaffið alltaf með Ellerti Grétarssyni, ljósmyndara sem hefur farið víða í sumar
„Sumarið hefur leikið ákaflega vel við mig. Hef verið mikið á ferðinni um allt land að taka myndir,
heimsótt marga fallega og áhugaverða staði og upplifað íslenskrar sumarnætur eins og þær gerast
bestar. Þetta verður ekkert betra,“ segir Ellert Grétarsson, ljósmyndari og starfsmaður í Flugstöð
Leifs Eiríkssonar.
Hvaða staðir hafa heillað þig?
„Þeir eru svo margir, staðirnir sem hafa heillað
mig í sumar. Ég átti til dæmis alveg himneskt
sumarkvöld við sólsetur í Kálfshamarsvík í al-
gjöru logni og kyrrð þar sem ég var eina mann-
eskjan á svæðinu og ekki einu sinni einn bíll
uppi á vegi. Ekkert sem truflaði og einu hljóðin
voru í fuglunum og öldugjálfrið í fjöruborðinu.
Kálfshamarsvík er magnaður staður. Einnig átti
ég yndislega einveru að Fjallabaki í byrjun júlí
þar sem ég ók ýmsa hliðarslóða af Landmanna-
leið til að skoða og ljósmynda fornar eldstöðvar.
Hitti ekki eina manneskju í tvo daga og var bara
aleinn í heiminum. Ekkert stress, ekkert áreiti
og maður missir tímaskynið.
Hvað ætlar þú að gera um Verslunar-
mannahelgina?
„Ég hef verið mikið á ferðinni í sumar og
nánast ekkert heima hjá mér síðustu vikurnar
þannig að um Verslunarmannahelgina ætla ég
að vera rólegheitum heima hjá mér. Enda er
veðurútlitið heldur ekki gott. Ég er ekki mikið
gefinn fyrir mannmergð og mannmót, hef t.d.
aldrei farið á Þjóðhátíð og forðast slíka viðburði.
Þannig að um Verslunarmannahelgar hef ég
annað hvort verið heima hjá mér eða leitað á
staði þar sem fáir eru á ferli, t.d. á hálendinu.“
Hver er eftirminnilegasta Verslunarmanna-
helgin þín?
Eftirminnilegasta Verslunarmannahelgin mín
var árið 2012. Þá fór ég í fjögurra daga göngu-
ferð með allt bakinu frá Núpsstaðarskógum
yfir Skeiðarárjökull og Skaftafellsfjöllin, alveg
niður í Skaftafell í hrikalegu og ólýsanlega fal-
legu landslagi. Þessi ferð var mikil upplifun.“
Hvað finnst þér mikilvægt að hafa um
Verslunarmannahelgina?
„Mikilvægastu hlutirnir sem ég tek alltaf með
í ferðalög, hvort sem það er Verslunarmanna-
helgi eða ekki, eru myndavélin, kaffið og prím-
usinn til að hita vatnið í kaffið.“
Ellert er með tjald á
toppi bílsins þar sem
hann leggur sig á völdum
myndatökustöðum meðan
hann bíður eftir sólarupprás
og réttu birtunni.
Miðvikudagur 29. júlí 2020 // 29. tbl. // 41. árg.
víkurFrÉttir á SuðurNESjuM í 40 ár // 21