Víkurfréttir - 29.07.2020, Side 8
Reykjadalur, sem starfrækir sumarbúðir fyrir fötluð börn og ungmenni í Mos-
fellsdal, hafa boðið upp á sumardvöl fyrir fatlað fólk í Grindavík í sumar. Dvölin
gengur undir nafninu „Sumarfrí Reykjadals“ og fer fram á GEO hótelinu í Grindavík.
Reykjadalur bauð þangað fólki með fötlun á aldrinum 21 til 35 ára og hefur dvölin
gengið mjög vel. „Við fréttum af þessu frábæra hóteli á lausu í sumar, könnuðum
málið og það var tekið ofsalega vel í beiðnina okkar,“ sagði Margrét Vala Marteins-
dóttir, forstöðukona Reykjadals.
Boðið er upp á fjölbreytta og
skemmtilega dagskrá á meðan
á dvölinni stendur. Á daginn er
spilað, farið í leiki og föndrað.
Allir dagar enda síðan á kvöld-
vöku. Einnig hefur verið farin
ferð í Bláa lónið vikulega og kíkt
á söfn í Reykjanesbæ.
„Ég hugsa að kvöldvökurnar
séu oftast á toppi listans hjá
gestunum en þá erum við oft
aðeins að fíflast í starfsfólkinu.
Þá halda þau hæfileikakeppni
eða „Reykjadalur got talent“ eins
og þau kalla það, blanda ógeðs-
drykki, setja upp leikrit, spila
bingó með alls konar tvisti og
margt fleira. Þau halda líka upp
á ógleymanleg böll þar sem allir
dansa og tjútta,“ segir Margrét.
Vonir standa til að hægt sé
að bjóða upp á sumarfrí aftur á
GEO hótelum á næsta ári.
Grindavík
tekur vel á
móti gestum
ReykjadalsMargrét Vala Marteinsdóttir,
forstöðukona Reykjadals.
8 // víkurFrÉttir á SuðurNESjuM í 40 ár
Miðvikudagur 29. júlí 2020 // 29. tbl. // 41. árg.