Víkurfréttir - 29.07.2020, Side 12
Nærri 400 manns mættu á elleftu Skötumessu að sumri sem haldið var í sal
Gerðaskóla í Suðurnesjabæ 22. júlí. Þrjár og hálf milljón króna söfnuðust í
þessari einni stærstu góðgerðarmálahátíð sem haldin er á Suðurnesjum.
Gestir komu víða að og nutu góðra
veitinga á Þorláksmessu að sumri
en það var að venju kæst skata,
saltfiskur og plokkfiskur ásamt
meðlæti við hæfi. Þá voru fjöl-
breytt skemmtiatriði, söngur og
fjör og ræðumaður kvöldsins var
Njarðvíkingurinn Örvar Þór Krist-
jánsson sem fór á kostum.
Ásmundur Friðriksson, þing-
maður og fyrrverandi bæjarstjóri í
Garði, er frumkvöðull Skötumess-
unar og heldur utan um þetta
merka framtak ár hvert. Hann var
í skýjunum með mætingu og þann
mikla velvilja sem verkefnið nýtur.
„Ég vil þakka öllum sem komu og
einnig þeim mikla fjölda fólks og
aðila sem hjálpa okkur að gera
þetta að veruleika. Við styrkjum
marga einstaklinga og aðila sem
ýmist eiga á brattan að sækja eða
eru veikir. Þá var ánægjulegt að fá
Ásmund Einar Daðason, félags-
og barnamálaráðherra, sem veitti
verkefninu 300 þúsund króna
styrk og notaði einnig tækifærið til
að undirrita styrktarsamning við
Fjölskylduhjálp Íslands.
„Þetta er magnað starf sem
Skötumessan er að gera, ég hefði
ekki trúað því og er ánægður með
að hafa komið og orðið vitni að
því,“ sagði ráðherra m.a. í stuttri
ræðu á Skötumessunni.
Þrjár og hálf milljón frá Skötu-
messu til góðra málefna
Fulltrúar styrkþega sem voru fjölmargir ásamt nöfnunum,
Ásmundunum, Friðrikssyni og Daðasyni. VF-myndir/pket.
Páll Ketilsson
pket@vf.is
12 // víkurFrÉttir á SuðurNESjuM í 40 ár
Miðvikudagur 29. júlí 2020 // 29. tbl. // 41. árg.