Víkurfréttir - 29.07.2020, Síða 15
Enn ein Skötumessan á Þor-
láksmessu á sumri tókst eins og
best verður á kosið. Eftir mikla
sprengingu í mætingu á síðast ári
mættu nú tæplega 400 manns,
gerðu sér glaðan dag og létu
gott af sér leiða í orði og verki.
Það er merkilegt að þegar allt er
talið mættu tuttugu manns til að
gera Skötumessuna mögulega.
Undirbúningur, að elda og fram-
reiða matinn, vaska upp og ganga
frá var á höndum hóps sem gert
hefur þetta saman í rúman áratug.
Ómetanleg er okkur hjálpin frá
stjórn Íþróttafélagsins Nes, félags
fatlaðra íþróttamanna á Suður-
nesjum, tíu manna hópur sem
tímunum saman tekur þátt í und-
irbúningi, framreiðslu, uppvaski
og frágangi fram á nótt án þess
að nokkur maður nefni nokkru
sinni laun fyrir sína vinnu. Alls
komu fram fimmtán listamenn
á skemmtidagskrá Skötumess-
unnar. Hópur þeirra kom langt að,
enginn þeirra, ekki einn, tók krónu
fyrir sitt framlag eða þáði greiðslu
vegna kostnaðar sem sýnir ótrú-
lega gott hjartalag og beittan vilja
til að láta gott af sér leiða. Baldvin,
Víkingur, Páll Rúnar, Andri Páll,
Sölvi, Eiríkur, Sigurbjörn, Sigga
Klingenberg, Örvar Þór, Lúðvík,
Óskar, Davíð Þór, Antonína, Ásdís
Rún, Björg og Ólafur Magnús gáfu
okkur sína vinnu og einhverjir
greiddu líka aðgangseyri fyrir að
fá að skemmta. Við erum ótrúlega
þakklát þessu fólki. Fyrir utan að-
gangseyri styrktu einstaklingar
og fyrirtæki Skötumessuna um
1,2 milljónir króna, fjöldi fólks og
fyrirtæki úti í bæ lögðu okkur lið
og hjálpsemi sem er ómetanleg
við verkefnið. Nefni sérstaklega
tólf manna hóp morgunhana sem
hittast í Reynisbakarí í Kópavogi.
Þeir gáfu 250.000 krónur auk að-
gangseyris til styrktar fallegu mál-
efni. Þeir gera meira en þeir tala.
Þúsund þakkir frá okkur í for-
svari Skötumessunnar,
Ási, Sigga, Teddi, Jóna,
Þórarinn, Ingunn og Gulli.
ÞÚSUND ÞAKKIR FRÁ SKÖTUMESSUNNI
STARFSMAÐUR Í BARNAVERND
FJÖLSKYLDUSVIÐ SUÐURNESJABÆJAR AUGLÝSIR 100% STÖÐU Í BARNA-
VERND. HELSTU VERKEFNI ERU MEÐFERÐ OG VINNSLA BARNAVERNDAR-
MÁLA OG EFTIRFYLGNI ÞEIRRA.
Suðurnesjabær er framsækið sveitarfélag sem veitir framúrskarandi þjónustu á sviði velferðarmála.
Fjölskyldusvið er samþætt þjónustueining og til þess heyrir öll félags-, frístunda- og fræðsluþjónusta.
Lögð er áhersla á að sérfræðingar á fjölskyldusviði vinni í teymum þvert á stofnanir.
Meðal verkefna eru:
• Vinnsla barnaverndarmála
• Ráðgjöf við foreldra og börn
• Samtarf við leik- og grunnskóla og
aðrar stofnanir er tengjast börnum
• Sinna bakvöktum
Hæfniskröfur:
• MA í félagsráðgjöf eða starfsréttindanám
• Reynsla af starfi barnaverndar æskileg
• Góð alhliða tölvukunnátta, þekking
á OneSystem kostur
• Frumkvæði, nákvæmni og sjálfstæði
í starfi er mikilvægt
• Hæfni í mannlegum samskiptum og
áhugi á þverfaglegri teymisvinnu
• Hæfni til að tjá sig í ræðu og riti
• Bílpróf er skilyrði
• Hreint sakavottorð
Umsóknarfrestur er til og með 14. ágúst 2020
Umsókn ásamt starfsferilsskrá skulu berast á netfangið afgreiðsla@sudurnesjabaer.
is eða á skrifstofu Suðurnesjabæjar. Nánari upplýsingar um starfið veitir María Rós
Skúladóttir mariaros@sudurnesjabaer.is deildarstjóri félagsþjónustu eða Guðrún Björg
Sigurðardóttir gudrun@sudurnesjabaer.is sviðsstjóri fjölskyldusviðs í síma 425-3020.
Miðvikudagur 29. júlí 2020 // 29. tbl. // 41. árg.
víkurFrÉttir á SuðurNESjuM í 40 ár // 15