Víkurfréttir - 29.07.2020, Side 30
Friðrik Árnason er búinn að reka
hótelið vel á annan áratug en það
opnaði árið 1983. Friðrik hefur
upplifað ýmislegt í hótelrekstri og
ferðaþjónustu en ekkert í líkingu
við afleiðingar kórónuveirunnar.
„Eftir langt stopp vegna Covid-19
fór allt í gang seinni part júnímán-
aðar þegar Íslendingarnir fóru að
mæta og þeir hafa verið góðir við-
skiptavinir í sumar. Það er mikill
munur á íslenskum og erlendum
ferðamönnum þegar þeir eru í fríi.
Íslendingarnir velja sér til dæmis
dýrari rétti á matseðli, gjarnan dýr-
ustu steikina og fá sér gott rauðvín
með á meðan útlendingurinn velur
sér það ódýrasta á matseðli og fær
sér sjaldan vín með matnum. Við
höfum verið að selja jafn mikið af
rauðvíni á einu kvöldi eins og við
gerðum á þremur vikum þegar
útlendingar voru að megninu til
gestir á hótelinu,“ segir Friðrik.
Aðbúnaður til
fyrirmyndar á Bláfelli
Eitthvað hefur verið um erlenda
ferðamenn í sumar en þó í mjög
litlum mæli og þegar Víkurfréttir
litu við hjá Friðriki um miðjan
júlí var von á svissneskum ferða-
mönnum sem ætluðu að hertaka
hótelið eina nótt. Njarðvíkingurinn
segir að sumarið eigi eftir að verða
fínt en mikil óvissa sé með haustið
og veturinn.
Á Hótel Bláfelli eru margar teg-
undir herbergja í boði í hótelbygg-
ingunni og í gömlu pósthúsi sem
nú sinnir gistihlutverki á staðnum.
Alls eru 39 vel búin herbergi í boði,
standard herbergi, bjálkaherbergi,
junior-svítur og fjölskylduher-
bergi. Aðbúnaður á herbergjum
er til fyrirmyndar. Þá er á hótelinu
hugguleg setustofa með arni og
bókasafni. Þar er líka finnskt sána
og veitingastaður þar sem boðið
er upp á ekta íslenska rétti, mat-
reidda úr fersku, íslensku hráefni
úr nærumhverfi hótelsins.
Ástríðuverkefni
„Þetta er skemmtilegur rekstur og
það er gaman að vinna í ferðaþjón-
ustu. Ísland er magnað land og það
er gaman að skoða það og heim-
sækja, Íslendingar og útlendingar
eru sammála um það, en að reka
hótel er svolítið ástríðuverkefni
og tekur mikinn tíma ef maður vill
gera það vel,“ segir Friðrik.
Auk hefðbundins hótelsreksturs
hefur Friðrik staðið fyrir ýmsum
uppákomum á staðnum en á móti
Hótel Bláfelli er hann með aðgang
að stórum salarkynnum fyrir allt
að 300 manns þar sem frysti-
húsið á staðnum var áður með
starfsemi. Þar er góð aðstaða fyrir
hvers kyns fundarhald og þá hafa
verið haldnir þar margir tónleikar
og fyrir jólin hefur hann fengið vini
sína frá Suðurnesjum til að hjálpa
sér með jólahlaðborð. Friðrik hefur
verið útsjónarsamur í ýmsu sem
hann hefur gert þarna eystra. Hann
útbjó til dæmis stórar ljósakrónur í
veislusalinn úr trampólínum.
Friðrik hafði mikið fyrir því að fá Íslandskortið
en það hafðist og hér stendur hann við það.
Gamla frystihúsið er núna stór veislusalur.
Hugguleg arinstofa er á Hótel Bláfelli. Trampólín-ljós voru útbúin í veislusalinn.
Séð inn í eitt af herbergjum Hótels Bláfells.
Páll Ketilsson
pket@vf.is
30 // víkurFrÉttir á SuðurNESjuM í 40 ár
Miðvikudagur 29. júlí 2020 // 29. tbl. // 41. árg.