Víkurfréttir - 29.07.2020, Page 43
Grindavík með einn eitt jafnteflið í Lengjudeildinni:
Grindvíkingar fyrsta liðið til
að tapa stigi gegn botnliðinu
Grindvíkingar léku á Grenivík í áttundu umferð Lengjudeildar karla í knattspyrnu þar sem þeir mættu
botnliði Magna. Fyrir leikinn hafði Magni tapað öllum sínum leikjum og aðeins skorað þrjú mörk.
Lánlausir Grindvíkingar
Grindavík hefur gert jafntefli í síðustu fimm
umferðum Lengjudeilarinnar. Í síðustu
tveimur leikjum hafa Grindvíkingar fengið
jöfnunarmark á sig í uppbótartíma.
Stóra spurningin er hvort hlutirnir fari ekki að
detta fyrir Grindvíkinga og hvort það sé orðið
of seint.
Leikurinn gegn Magna
Í fyrri hálfleik tókst hvorugu liði að ná yfir-
ráðum í leiknum, hann einkenndist af baráttu
beggja liða á miðjunni en öðru hvoru komu
hættulegar skyndisóknir sem vantaði að klára.
Skyndisóknir Grindvíkinga voru þó heldur
betur útfærðar og öllu hættulegri en heima-
manna.
Eftir því sem leið á hálfleikinn færðist meiri
þungi í sókn Grindvíkinga og loks á 37. mínútu
fengu þeir hornspyrnu sem Magnamenn áttu
í miklum vandræðum með. Sindri Björnsson
reyndi skot sem hrökk af leikmanni Magna
fyrir Guðmund Magnússon sem átti hörku-
skot í stöng. Það var svo Josip Zeba sem náði
til boltans og afgreiddi viðsöðulaust í netið,
Grindavík búið að brjóta ísinn og komið í for-
ystu.
Skömmu fyrir leikhlé átti Elias Tamborini
góða sendingu fyrir markið sem rataði beint á
skallann á Guðmundi sem náði góðum skalla
rétt framhjá nærstönginni, stórhættulegt færi
sem hæglega hefði getað endað í marki.
Fjörugur seinni hálfleikur
Grindvíkingar mættu öflugir til leiks eftir hlé
og settu strax mikla pressu á heimamenn.
Á 52. mínútu sóttu þeir gulu og komu boltanum
fyrir markið þar sem Guðmundur var aleinn á
fjærstöng fyrir opnu marki og bætti við öðru
marki, 2:0 fyrir Grindavík.
Áfram hélt Grindavík að hafa yfirhöndina en á
64. mínútu náðu Magnamenn góðri skyndisókn
sem skilaði marki, 2:1 fyrir Grindavík.
Eitthvað hresstust Magnamenn við markið
og komust aðeins betur inn í leikinn sem hafði
verið í höndum Grindvíkingar fram að þessu.
Magni gerði tvöfalda skiptingu og fimm mín-
útum síðar áttu þeir hættulega sókn sem var
bjargað í horn en Grindvíkingar voru lánsamir
að fá ekki dæmda á sig vítaspyrnu. Úr horn-
spyrnunni barst boltinn út úr teignum þar sem
Magnamaður tók viðstöðulausa spyrnu í sam-
skeytin, óverjandi fyrir Vladan. Magnað mark
og staðan orðin jöfn.
Grindvíkingar missa mann af velli
Skömmu eftir að hafa misst leikinn niður í jafnt-
efli átti Magni aðra skyndisókn þar sem sending
komst inn fyrir vörn Grindvíkinga á framherja
Magna sem var við það að komast í gott færi
en Sindri renndi sér aftan í hann og fékk að
launum beint rautt spjald.
Grindvíkingar þurftu að leika manni færri
síðasta korterið en þrátt fyrir það náðu þeir
að skora þriðja markið skömmu fyrir leikslok.
Grindavík náði að stöðva skyndisókn Magna og
bruna sjálfir upp völlinn þar sem Guðmundur
Magnússon kom góðri sendingu á fjærstöng og
þar mætti Oddur Ingi Bjarnason og afgreiddi
boltann í netið.
Heimamenn gáfust ekki upp og lögðu allt
undir, pressuðu stíft og þegar fimm mínútur
voru liðnar af uppbótartíma fengu þeir horn-
spyrnu. Allt lið Magna mætti í sóknina og fyrir-
gjöfin barst inn á markteig þar sem Magni náði
að koma honum í netið. Þetta varð síðasta
sókn leiksins því um leið og Grindvíkingar tóku
miðju blés dómarinn leikinn af.
Grindvíkingar sitja nú í sjötta sæti Lengju-
deildarinnar og draumurinn um sæti í efstu
deild að ári verður sífellt fjarlægari.
Sigurbjörn Hreiðarsson, þjálfari
Grindvíkinga, hlýtur að vera vonsvikinn
með gengi sinna manna í sumar.
Josip Zeba skoraði bæði í jafnteflinu
gegn Magna og Keflavík.
Miðvikudagur 29. júlí 2020 // 29. tbl. // 41. árg.
víkurFrÉttir á SuðurNESjuM í 40 ár // 43