Víkurfréttir - 29.07.2020, Blaðsíða 44
Keflavík er lið og bær sem
ætti að vera í efstu deild
– Jæja Joey, tímabilið hefur farið vel af
stað hjá þér.
„Já, þetta er gott upphaf á tímabilinu. Ekki
bara hjá mér einum heldur liðinu öllu.
Við höfum örlítið misst taktinn á tímum
en verið að taka framförum eftir því sem
líður á deildina – sem er jákvætt því við
erum ekki enn upp á okkar besta, við
eigum meira inni.
Metnaður okkar og markmið er að vinna
okkur upp um deild og leika í efstu deild
að ári. Af því sem ég hef kynnst á þeim
tíma sem ég hef verið hér á Íslandi þá
finnst mér Keflavík vera lið og bær sem
ætti að vera í efstu deild og þar viljum við
virkilega vera á næsta ári.“
– Nú ert þú markahæstur í Lengju-
deildinni þó Gary Martin [ÍBV] hafi
reyndar verið að jafna það með því að
skora „hat-trick“ í kvöld. Ertu ekki í
góðu standi?
„Jú, ég lít reyndar á það þannig að mörkin
eru afrakstur þeirrar „þjónustu“ sem ég fæ
frá liðsfélögum mínum. Ég tek hlaupin og
stóla á sendingar frá félögunum – og ég hef
verið að fá góða aðstoð frá þeim. Ég vona
að sú tenging sem við höfum náð haldi
áfram. Ég meina, þetta er ein ástæða þess
að ég elska að leika fótbolta. Þú skorar
mörk sem lið, ég er bara sá sem sé um að
setja boltann í netið.“
Metur sjálfan sig ekki
út frá markaskorun
„Ég held að það séu alls kyns týpur af
sóknarmönnum til, ég sjálfur fæ mest
út úr því að vinna vinnuna mína vel. Ég
lít ekki á mitt hlutverk sé bara að skora
mörk, að vera sóknarmaður snýst um svo
margt annað. Sérstaklega þegar maður
er í svona liði eins og Keflavík, það er
mikil áhersla lögð á hvernig við pressum,
hvernig við verjumst og stundum er það
mitt verk að halda boltanum. Ég legg
mikinn metnað í að vinna vinnuna mína
vel, ekki bara að skora mörk því stundum
spilar maður vel án þess að skora og
stundum spilar maður illa en skorar.
Þannig að mér finnst mikilvægt að meta
ekki sjálfan sig eingöngu út frá marka-
skorun.“
– Hvernig stóð á því að þú endaðir uppi
á Íslandi af öllum stöðum?
[Hlær] „Ég bjóst nú reyndar aldrei við að
ég myndi leika á Íslandi, ég er reyndar
ekki alveg viss hvernig stendur á því en
býst við að Keflavík hafi sett sig í sam-
band við fulltrúa minn eða öfugt. Um leið
og ég hafði rætt við Sigga [Sigurð Garð-
arsson, formann Keflavíkur] fannst mér
það hljóma freistandi. Hann sagði mér frá
sínum fyrirætlunum, hvernig þeir vildu
leika og hverju þeir væru að leita eftir. Ég
hafði séð eitthvað af Íslandi í sjónvarpinu
og vissi að það væri falleg land svo ég
hugsaði með mér: „Því ekki?,“ og sló til.
Ég er mjög ánægður að hafa komið því
ég hef notið þess að vera hérna, notið
bæjarins og félagið hefur reynst mér mjög
vel. Leikmennirnir hafa tekið mér vel og
okkur hefur gengið vel að smella saman.
Allt hefur gengið virkilega vel.“
– Hefurðu getað ferðast eitthvað um
landið fyrir utan keppnisferðir?
„Já, aðeins. Ekki eins mikið og ég hefði
viljað því Covid setti einhvern veginn allt
úr skorðum. Eftir á að hyggja hefði sá tími
kannski verið upplagt tækifæri til þess
Joey Gibbs hefur heldur betur leikið vel í
Lengjudeildinni í sumar og reynst mikil-
vægur hlekkur í liði Keflavíkur. Þessi knái
Ástrali hefur fallið vel að leik Keflavíkurliðs-
ins og bætt gæði sóknarleiks þess. Blaða-
maður Víkurfrétta heyrði í Joey eftir leikinn
gegn Vestra þar sem hann skoraði tvö mörk
og er markahæstur í Lengjudeildinni eftir
átta umferðir ásamt Gary Martin leikmanni
ÍBV. Joey er samt hógværðin uppmáluð
þegar talið berst að markaskorun og segir
hana aðeins lokahlekkinn í langri keðju sem
allt liðið stendur að baki í sameiningu.
Þú skorar mörk sem lið
– ég er bara sá sem sé um að koma boltanum í netið
44 // víkurFrÉttir á SuðurNESjuM í 40 ár
Miðvikudagur 29. júlí 2020 // 29. tbl. // 41. árg.