Sjómannadagsblaðið

Árgangur

Sjómannadagsblaðið - 02.06.2019, Blaðsíða 12

Sjómannadagsblaðið - 02.06.2019, Blaðsíða 12
12 s j ó m a n n a d a g s b l a ð i ð j ú n í 2 0 1 9 og á meginlandi Evrópu hafa menn þróað aðgerðir, búnað og verklag til að bregðast við svona uppákom- um. Ríkið hefur mætt útlögðum kostnaði og skipulagi í kringum þetta. Þess utan þarf að huga að tryggingum fyrir þá sem fara í þessi verkefni.“ Jón Viðar segir að SHS sé tilbúið að sinna þessu verkefni svo fram- arlega sem mannskapur slökkvi- liðsins fái viðeigandi þjálfun og ríkið komi til móts við það varð- andi þann kostnað sem af þessu hlýst. „Það er enginn að krefjast þess að fá aukalega greitt fyrir þetta, en það þarf að mæta útlögð- um kostnaði vegna þjálfunar, trygginga og þess búnaðar sem til þarf,“ segir Jón Viðar. „Við viljum að menn séu eins vel þjálfaðir og hægt er. Við höfum reynt að nýta reynslumeiri menn í svona verkefni en erum um leið að setja þá í óþægilega stöðu. Menn hafa þó hingað til verið til í að sinna þessu enda erum við með menn sem eru í þessum björg- unargeira og tilbúnir að leggja ýmislegt á sig til að bjarga öðrum.“ Þá segir Jón Viðar það ekki síður mikilvægt að geta starfað með hópum frá Norðurlöndun- um og Evrópu í kringum Ísland. Skipaumferð um Ísland hafi auk- ist töluvert, þar á meðal komur skemmtiferðaskipa, og með aukn- um siglingum um norðurskautið muni þessi umferð aukast enn frekar. Sjómenn vel þjálfaðir Nú verður ekki annað sagt en að ör- yggis- og björgunarmálum á sjó sé vel sinnt hér á landi, sem meðal annars hefur orðið til þess að slysförum og dauðsföllum á sjó fer sífellt fækkandi. Spurður af hverju þessi einstaki liður virðist hafa orðið út undan segir Jón Viðar að á því sé engin ein skýring. „Við höfum mætt velvilja, bæði frá stjórnendum Landhelgisgæsl- unnar og frá stjórnvöldum. En það þarf samt að stíga þessi skref til fulls og koma þessu í fastar skorður,“ segir Jón Viðar. „Ég get ekki sent mína menn í þessi verk- efni án viðeigandi þjálfunar. Það að nýta þá reynslu og þekkingu sem við höfum af slökkvistarfi er himnasending inn í þetta samstarf. Þetta er það módel sem menn nota á Norðurlöndum og í Evrópu. Þeir aðilar sem vinna í þessu módeli æfa mikið saman. Norðmenn og Svíar halda reglulegar æfingar þannig að þeir vita hvernig á að bera sig að ef upp koma stór atvik þar sem þeir þurfa að vinna saman. Ef þannig atvik kæmi upp hér á landi er nær sjálfgefið að hing- að kæmu alþjóðleg teymi til að aðstoða. Þá munum við, að öllu óbreyttu, ekki kunna að vinna með þeim og skilja þann strúktúr sem hefur verið byggður í kringum svona verkefni. Það getur verið mjög hættulegt.“ Jón Viðar segir að SHS og Land- helgisgæslan hafi í samstarfi fyrir nokkrum árum unnið skýrslu og kostnaðargreiningu á þessu verk- efni. Allt velti þetta þó á fjármagni frá ríkinu til að raungera samstarf sem feli í sér að SHS geti brugðist við með viðeigandi hætti þegar upp komi eldur um borð í skipi. Hann tekur þó fram að innan Slysavarnaskóla sjómanna hafi verið stigin mörg og góð skref í að þjálfa sjómenn til að bregðast við eldsvoða á sjó. „Þar hefur átt sér stað mikil bylting á undanförnum árum og það hefur skilað árangri,“ segir Jón Viðar. „Við sjáum það þegar við komum á vettvang í skipi að menn vita hvað þeir eiga að gera og hvernig á að bregðast við. Menn hafa vit og þekk- ingu til að loka hólfum sem þarf að loka og eru ekki að rjúka til í aðgerð- ir sem þeir hafa ekki hlotið þjálfun til að ráða við og stefna þannig bæði sjálfum sér og öðrum í voða. Þetta er því allt mjög faglegt hjá áhöfnun- um og það hefur skilað sér.“ Þá vinnur SHS í samstarfi við Slysavarnafélagið að uppbyggingu á þjálfunaraðstöðu sem einnig get- ur nýst fyrir sjómenn. Sú aðstaða verður byggð upp við slökkvistöð- ina í Hafnarfirði. Þar verður beitt nýjustu tækni við þjálfun. Aðstað- an inniheldur þröng rými, tækja- búnað og annað sem getur skapað erfiðar aðstæður. Að lokum liggur beinast við að spyrja Jón Viðar hvort íslenskir viðbragðsaðilar myndu ráða við eld um borð í skemmtiferðaskipi, vildi svo óheppilega til að slíkar aðstæð- ur kæmu upp. „Alltaf þegar þú ert að senda menn í stór verkefni verður þú að vera það sem kallað er yfirsterkur, þ.e. að vera sterkari en atburðurinn sjálfur sem farið er í. Annars ertu í raun að elta atburðarásina allan tímann og nærð aldrei stjórninni,“ segir Jón Viðar. „Ef það kæmi upp eldur í skemmtiferðaskipi þyrftum við að senda nokkur teymi frá okkur en jafnframt að óska eftir aðstoð að utan. Þannig er það bara og það verður ekki hjá því komist. En þannig er það líka erlendis. Hinar Norðurlandaþjóðirnar myndu kalla eftir aðstoð í sambærileg- um aðstæðum og þess vegna eru menn að æfa saman. Þessi hætta er til staðar þar líka. Menn hafa líka verið að þjálfa upp áhafnir skemmtiferðaskipa og mjög gott skipulag er í kringum það. Við höfum líka nýtt tækifærin og æft okkur þegar skemmtiferðaskip koma hingað. Þá höfum við nýtt tímann þegar farþegarnir eru í dagferðum. Allt kemur þetta að góðum notum.“ – gfv í byrjun október 2018 kom upp eldur í vélarrúmi togskipsins Frosta ÞH 229. TF-SYn, flutti fimm slökkviliðsmenn frá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins (SHS) um borð í skipið. Mynd/LHg • 13–17 Skemmtisigling í boði Hafnarfjarðar- hafnar – lagt af stað á hálftíma fresti • 13:00 Dasbandið • 13-14 Kappróður við Flensborgarhöfn • 13:50 Lúðrasveit Hafnarfjarðar • 14:00 Setning og heiðrun sjómanna • 14:20 Ávarp og verðlaunaafhending • 14:30 Jóhanna Guðrún og Davíð Sigurgeirs • 15:30 Leikhópurinn Lotta - söngvasyrpa • Þyrla Landhelgisgæslunnar og björgunar- sýning með Björgunarsveit Hafnarfjarðar Skemmtidagskrá • 8:00 Fánar dregnir að húni á hátíðarsvæðinu • 10:00 Lúðrasveit Hafnarfjarðar leikur við Hrafnistu • 10.30 Blómsveigur lagður að minnivarða við Víðistaðakirkju um horfna sjómenn • 11:00 Sjómannamessa í Hafnarfjarðarkirkju Hátíðardagskrá Nánari upplýsingar á hafnarordur.is • Kaffisala Slysavarnardeildar Hraunprýði • Þrautabraut í sjó, rennibraut, gámasig, kassaklifur, fluglínutæki og koddaslagur • Opið hús í siglingaklúbbnum Þyt. Árabátar, kajakar, kænur og kjölbátar • Opnar vinnustofur listamanna í Íshúsi Hafnarfjarðar og við Fornubúðir • Bátasmíði fyrir krakka • Aflraunakeppnin Sterkasti maður á Íslandi • Furðuverur úr undirdjúpunum frá Hafró • Ljósmyndasýning á Strandstígnum • Sýning um tímabil erlendu útgerðanna í Bookless bungalow og í Siggubæ er sýnishorn af heimili sjómanna í Hafnar- firði frá fyrri hluta 20. aldar Önnur dagskrá SJÓMANNADAGURINN 2 19 2. JÚNÍ SKEMMTILEG HÁTÍÐARHÖLD VIÐ FLENSBORGARHÖFN Göngum í bæinn Notum strætó eða stæði við Flensborg, Fjörð eða íþróttahús Skiptiaðstaða Í siglingaklúbbnum Þyt fyrir þá sem blotna Gleðilegan Sjómannadag! hafnarfjordur.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Sjómannadagsblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannadagsblaðið
https://timarit.is/publication/557

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.