Sjómannadagsblaðið

Árgangur

Sjómannadagsblaðið - 02.06.2019, Blaðsíða 28

Sjómannadagsblaðið - 02.06.2019, Blaðsíða 28
28 s j ó m a n n a d a g s b l a ð i ð j ú n í 2 0 1 9 á fundum félagsins, en inn á þá sé selt og matur og kaffi á fundunum. „Við leigjum þennan sal en höfum reynt að hafa hlutina þannig að þetta bara standi undir sér og það hefur tekist vel undanfarin ár. Þá skiptir máli að þær sem eru í stjórn og skemmtinefnd hafa lagt mikið til og hefur aldeilis munað um það,“ segir Jónína og Guðrún tekur undir að félagsstarfið allt einkenn- ist af jákvæðni. „Það er rosalega skemmtilegt að hittast og halda þessu gangandi, því það er meira en að segja það í dag að halda svona félögum gangandi og mörg hafa lognast út af,“ segir Guðrún. Þá bæt- ir Jónína við að ákveðið hafi verið fyrir nokkrum árum að félagskon- ur hættu að greiða árgjald í félagið þegar vissum aldri var náð, en það hafi í raun ekki komið vel út því þá hafi félagsstarfið mætt um of á þeim sem eftir stóðu. „Þannig að við ákváðum í hitteðfyrra að setja aftur á árgjald fyrir alla og það kom okkur á óvart hversu vel var tekið í þetta og konur sem ekki geta alltaf mætt, eða mæta bara í afmælið, voru fegnar að fá með þessu að staðfesta aðild sína og leggja áfram sitt af mörkum til félagsstarfsins.“ Órjúfanleg vinabönd Samheldni félagskvenna er rík, en frá upphafi hafa þær líka notið stuðnings hver af annarri. Matthild- ur segir það líka hafa verið rótina að stofnun félagsins á sínum tíma, þegar konur voru langtímum saman einar heima að sinna börnum og búi á meðan eiginmenn þeirra voru í siglingum. „Ferðirnar voru svo langar og ekki eins og núna þegar fríin eru lengri á móti,“ bætir hún við og þær eru sammála um að breytingin sé mjög mikil og til batn- aðar frá því sem áður var. „Þeir gátu verið þrjá mánuði í burtu og ekkert símasamband. Þetta var náttúr- lega alveg skelfilegt,“ bætir Guðrún við. Þá hafi bara verið skrifuð bréf, skýtur Matthildur inn í. Nútíminn sé lúxus í samanburði, frí annan hvern túr og Skype-samtöl alla daga. Út af þessum löngu fjarvistum eiginmannanna á árum áður hafi félagsskapurinn verið þeim mun mikilvægari á árum áður og innan hans myndast órjúfanleg vinabönd, segja þær forsvarskonur Kven- félagsins Hrannar. Á þeim tíma hafi heldur ekki tíðkast að sjómannskon- ur væru útivinnandi og félagsstarfið hafi því verið mikilvægur liður í að koma í veg fyrir einangrun þeirra. Konurnar hittust með handavinnu og svo voru lesnar sögur. Þá kom hver með sinn kaffibolla á fund og hélst sá siður í mörg ár. Hvað framtíð félagsins varð- ar segir Jónína að hennar sýn sé að þær geti haldið áfram á sömu braut og nú síðustu ár. „Og hugað bara að okkur í leik og starfi og haft gaman saman.“ Um leið sé ljóst að engin endurnýjun sé í félaginu. „Við stöndum hins vegar meðan stætt er og svo verður bara að hafa það þegar það er ekki hægt lengur. Ég held við eigum eftir að njóta þess í þó nokkur ár í viðbót að vera saman og við höldum áfram ferðum og samkomum.“ - óká Fyrrverandi formenn voru heiðraðir á afmælisfundi Hrannar. Hér eru stjórnar- konurnar dagbjört Bergmann ritari og Jónína Steiney Steingrímsdóttir for- maður, ásamt fyrrverandi formönnum, Þórunni ólafsdóttur, matthildi Her- borgu Kristjánsdóttur, guðrúnu Valgerði Einarsdóttur og Svövu gestsdóttur. Stjórn Kvenfélagsins Hrannar í afmælisfögnuði félagsins. Frá vinstri: Helga Vallý Björgvinsdóttir, Kristín Salóme guðmundsdóttir, anna Jóna arnbjörnsdóttir gjaldkeri, Steinunn arnórsdóttir, Jónína Steiney Steingrímsdóttir for- maður, dagbjört Bergmann ritari og matthildur Herborg Kristjánsdóttir. Verið velkomin í verslun okkar Opið virka daga kl. 8:30–17:00 Síðumúli 16 I 108 Reykjavík I Sími 580 3900 I fastus.is fastus.is Fastus býður uppá mikið úrval af tækjum og búnaði fyrir báta og skip. Leitið upplýsinga hjá sölufulltrúum okkar í síma 580 3900 eða kíkið við í verslun okkar í Síðumúla 16. TÆKI OG BÚNAÐUR FYRIR SKIP
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Sjómannadagsblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannadagsblaðið
https://timarit.is/publication/557

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.