Sjómannadagsblaðið

Volume

Sjómannadagsblaðið - 02.06.2019, Page 33

Sjómannadagsblaðið - 02.06.2019, Page 33
Kröftug hátíðarhöld að venju Sjómannadagurinn hefur verið haldinn hátíðlegur í Hafnarfirði síðan 1953 enda tengist saga Hafnarfjarðar nær öll sjó- sókn og fiskvinnslu. Eins og síðustu ár eru tveggja daga hátíðarhöld við Flensborgarhöfn sjómannadagshelgina, en nánari dagskrá er að finna á vef Hafnarfjarðarbæjar. Hér til hliðar getur svo að líta myndir frá gleðinni í fyrra, þar á meðal frá heiðrun sjó- manna, sem Lúðvík Geirsson hafnarstjóri og Karel Ingvar Karelsson, fyrrverandi skipstjóri, önnuðust á sjómannadaginn. Hjá þeim eru Guðrún Brynjólfsdóttir, Gylfi Kjartansson, Jenný Þórisdóttir, Guðmundur Hjörleifsson, Jenný Guðmundsdóttir, Gunnar Guðmundsson, Páll J. Egilsson og Anna Sigurjónsdóttir. Karel fékk einnig viðurkenningu fyrir sex áratuga fórnfúst starf fyrir sjómannadaginn í Hafnar- firði. Þá má sjá myndir frá kappróðri, en sú hefð hefur fengið að halda sér í Hafnarfirði, auk fleiri mynda af gleðinni. 33 S j ó m A n n A D A G S b l A ð i ð J ú N Í 2 0 1 9 Sjóminjasafnið í Reykjavík www.borgarsogusafn.is Opið alla daga 10:00-17:00 Varðskipið Óðinn - leiðsögn 13:00, 14:00 og 15:00

x

Sjómannadagsblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannadagsblaðið
https://timarit.is/publication/557

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.